Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.09.2003, Side 6

Víkurfréttir - 25.09.2003, Side 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ® Reykjanesbær mun takaþátt í orkuátaki Lata-bæjar sem hefst 1. októ- ber nk. og stendur til 1. nóvem- ber en markmið þess er að hvetja til heilbrigðari lífstíls hjá komandi kynslóðum. Þjóð- arátakið er unnið í samvinnu við ráðuneyti, landlæknisemb- ættið og ýmis fyrirtæki og er byggt upp á orkubók, sjón- varpsþáttum og auglýsingaher- ferð. Því er ætlað að höfða til barna í 1. og 2. bekk grunn- skóla og tveggja elstu árganga leikskólabarna. Verkefnið hófst með kynning- arfundi í Reykjanesbæ með matráðum, matreiðslukennur- um, leik- og skólastjórum, um- sjónarkennurum, íþróttakenn- urum sem og deildarstjórum og leikskólakennurum tveggja ár- ganga leikskólabarna. Foreldrar barna sem fædd eru á árunum 1997 til 1999 fá heim Orkubækur en hverri bók mun fylgja aðgangsorð sem börn og foreldrar þeirra nota til að skrá sig inn á heimasíðu átaksins. Þar getur hvert barn fyllt út eins konar Orkubók á netinu sem gefur jafnframt möguleika á að fylgjast með hvernig átak- ið gengur í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Að auki verður árang- ur átaksins mældur af næring- arfræðingi við Háskóla Íslands og samanburðarmælingar gerð- ar eftir 3 ár. Sjónvarpsþáttur mun fara í gang í tengslum við átakið en alls verða sýndir 8 orkuríkir þættir fyrir alla fjöl- skylduna með persónum Lata- bæjar. Reynt verður að tengja sem flesta við verkefnið og vekja umræður um heilbrigðari lífsstíl fyrir komandi kynslóðir, segir á vef Reykjanesbæjar. V innueftirliðið stöðvaði ísíðustu viku málningar-framkvæmdir við DUUS-húsin í Keflavík. Bún- aður sem notaður var við vinnuna reyndist ófullnægj- andi og málarar höfðu ekki réttindi á lyftara sem notaður var til verksins. Málarar af erlendu bergi brotnir unnu við að mála þakskegg hús- anna. Notaður var gaffallyft- ari með stórri körfu. Til þess að komast upp að þakbrún- inni þar sem hún rís hæst var hins vegar notaður stigi sem reistur var upp úr körfunni. Lögreglan í Keflavík skoðaði aðstæður við DUUS-húsin og boðaði fulltrúa vinnueftirlits- ins á staðinn. Hann stöðvaði framkvæmdir þar sem búnað- urinn uppfyllti ekki þær kröf- ur sem gerðar eru til þessarar vinnu. Ferskasta blaðið á Suðurnesjum í haust! Vinnueftirliðið stöðvar málning- arvinnu við DUUS-húsin Meðfylgjandi ljósmynd var tekin af málningarframkvæmdunum, skömmu áður en þær voru stöðvaðar. Málarinn er í stiganum sem reistur er upp úr körfunni á lyftaranum. Orkuátak í Reykjanesbæ VF 39. tbl. 24 pages 24.9.2003 13:43 Page 6

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.