Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Side 12

Víkurfréttir - 18.12.2003, Side 12
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!12 G le ð il e g a h á tí ð ! Sagan segir að Gvendur hafi einhverju sinni farið upp á Keflavíkurvöll, logið að hann væri háttsettur innan íslensku lögreglunnar og Kanarnir hafi bugtað sig og beygt fyrir hon- um. Að þessu var mikið hlegið í Keflavík. Gvendur þribbi var réttnefndur góðkunningi lögreglunnar og fékk að gista fangaklefana þeg- ar hann vildi. Ég var oft uppi á löggustöð hjá pabba og fannst Gvendur æðislega skemmtileg- ur. Einu sinni spurði ég mömmu hvort hann mætti ekki koma í mat til okkar vegna þess að hann væri alltaf svo svangur. Mamma eldaði fiski- bollur sem hún hafði aldrei gert áður og Gvendur var hæstá- nægður þar til hann smakkaði á bollunum. Þá þakkaði hann pent fyrir sig og kvaddi. Eftir það fékkst hann ekki til að koma í mat til okkar. Þegar Magnús Kjartansson og hljómsveitin Júdas voru að mana krakkana til að koma upp á svið 17. júní 1973 vildi eng- inn koma með mér nema Gvendur þribbi, sem notaði þetta tækifæri til að spila á munnhörpuna sína. Ég bað um að fá að syngja Hann Gulli er svo sætur en Gulli þessi var strákur sem öllum stelpunum þótti sætastur og því lá söngur- inn beint við. Mér hafði alltaf þótt frábærlega gaman að syng- ja og mamma sagði mér seinna að ég hafi varla verið nema fimm ára þegar ég útvegaði mér kassettutæki til þess að taka upp það sem ég söng og síðan spilaði ég upptökuna aft- ur og aftur. Ég söng um sætindi Gulla og þegar lagið var á enda hélt ég áfram að sniglast við sviðið með Gvendi þribba og skemmti mér svo vel að ég at- hugaði ekkert hvað tímanum leið. Mamma fór að undrast um mig og hringdi í pabba upp á lögreglustöð til þess að spyrja hvort hann hefði eitthvað séð til mín. „Vertu bara róleg,“ sagði pabbi. „Hún er niðri í skrúð- garði að syngja með Gvendi þribba og hljómsveitinni.“ Nokkru seinna hafði Magnús Kjartansson samband við mig til að biðja mig um að syngja inn á barnaplötu um Róbert bangsa. Einhver hafði keypt undirspil af hljómplötum um þessa teiknimyndahetju sem var mjög vinsæl í Bretlandi og það vantaði barnarödd til að syngja hlutverk Róberts. Maggi hafði þá munað eftir mér frá 17. júní skemmtuninni og dottið í hug að mín rödd hentaði vel til verkefnisins. Ég varð ægilega spennt fyrir því að fá að syngja inn á plötu og vildi endilega slá til. Mamma lagði mikið á sig við að kenna mér textana og ég æfði mig heima daginn út og inn áður en farið var í stúdíóið til að taka plötuna upp. Þegar að því kom kunni ég hlutverk Róberts aftur á bak og áfram og mætti til leiks í fínu hvítu kápunni minni, með lopa- vettlinga og húfu. Ég fór ekki úr nokkurri spjör, tók mér bara stöðu við hljóðnemann og söng plötuna alla í gegn, enn með húfuna á höfðinu og vettling- ana á höndunum. Maggi og hinir tónlistarmenn- irnir í stúdíóinu voru mjög kumpánlegir við mig en ég var óskaplega feimin. Þeir voru all- ir að gæða sér á hamborgurum og frönskum kartöflum þegar ég kom og spurðu mig hvort ég vildi ekki fá mér líka. Ég var sársvöng og mér þóttu ham- borgarar rosalega góðir en hafði ekki uppburði í mér til að þiggja boðið. Þess í stað söng ég með gaulandi garnir og að kafna úr hita, í orðastað bangs- ans Róberts sem líka var hlý- lega klæddur ... „með gulan trefil um hálsinn á mér.“ Ú R B Ó K I N N I R U T H R E G I N A L D S E F T I R Þ Ó R U N N I H R E F N U S I G U R J Ó N S D Ó T T U R Á sviði með Gvendi þribba Gvendur þribbi var einn af sérkennilegri karakterum í Keflavík þegar ég var að alast upp.Viðurnefnið þribbi bar hann vegna þess að hann var þríburi og þó að systkini hans hefðudáið við fæðingu þótti þríburafæðingin slíkt undur að nafnið festist umsvifalaust við hann. Gvendur þribbi var drykkjumaður en gerði engum mein nema sjálfum sér og Keflvíking- ar höfðu gaman af honum. Hann bar jafnan kaskeiti sem var þakið alls slags merkjum og jakkinn sem hann gekk í hafði sennilega verið lúðrasveitarjakki á árum áður. Róbert, Róbert minn ... Átta ára söngkona. Bekkjarmynd úr Grunnskólanum í Keflavík. Rut er fremst á peysunni með stóra vettlinga. Úlpan farin veg allrar veraldar. Úr lífi Barnastjörnu Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 9:22 Page 12

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.