Víkurfréttir - 18.12.2003, Blaðsíða 29
tók Lauriz að ókyrrast og sendi
eftir reiðhestum sínum. Í því sá
hann hvar aðkomumenn létu einn
af skipsbátum sínum síga niður
og fór allt að þremur tugum
manna um borð í hann. Þeir voru
vopnaðir. Taldi kaupmaður sig þá
vita hvers kyns var um heim-
sóknina og sendi tvo menn fram í
sitt skip að vara kafteininn við.
Annað heimafólk sitt lét hann
byrgja varning og fela vörur úr
búðum sínum.
Menn kaupmanns voru ekki fyrr
komnir í farskipið en ræningjarn-
ir ruddust þar yfir borðstokkinn.
Höfðu þeir hröð handtök, fjötr-
uðu kaftein og mennina tvo án
mótstöðu og yfirtóku skipið.
Þegar þetta var orðið voru hestar
kaupmanns komnir í hlað við
búðir hans. Hann lét söðla þá hið
snarasta og reið þegar á brott
ásamt þeim dönsku sem hjá hon-
um störfuðu og
tóku stefnu á Þorbjarnarfell aust-
anvert. Þeir fóru mikinn og slup-
pu naumlega undan gestagangi
því jóreykur var enn í lofti er hin-
ir óboðnu gengu á land í víkinni
og tóku að ræna búðir kaup-
mannsins. Báru þeir ránsfenginn
niður í Staðarvör þar sem bátur
þeirra lá með skutinn við flasirn-
ar. Félagar þeirra, þeir sem í fjör-
unni biðu, höfðu þá smalað sam-
an lambfé og borið um borð í
bátinn.
Sveimur af kríu var yfir og veitt-
ist að komumönnum.
Áður en heimamenn á Járngerð-
arstöðum settust að snæðingi las
Efri Jón langa og ítarlega bæn
upp úr postillu síra Guðbrands
biskups Þorlákssonar. Þótti
bræðrum hans heldur of lengi
lesið og lymskuðust til þess að fá
sér flís af kjötinu, smjöttuðu og
trufluðu bænina. Efri Jón lét sér
þetta í léttu rúmi liggja, lauk
lestrinum, sagði „bernskubrek“
stundarhátt, dæsti og dró sér mat
á disk. Kímdu þá Jón smiður og
Guðrún kona hans samtímis ofan
í borðið.
Meðan setið var að snæðingi
gekk Halldór Jónsson í bæinn.
Hann var bróðir húsfreyju. Þeir
Jón höfðu ætlað að gera með sér
samning um sambýli á Járngerð-
arstöðum þá um daginn og
ákveða hvor þeirra ætti að kosta
mann til dagsláttar í Skálholt og í
viðarhögg þegar eftir því yrði
kallað að þeir uppfylltu skyldur
sínar við jarðeigandann. Halldór
þáði sýrudrykk og spurði mág
sinn hvort hann gæti ekki hugsað
sér að fresta samningsgerð um
hríð því sig fýsti niður á kamb að
skoða skipið sem komið var.
Hann sagðist ekki kunna mann
að þekkja ef Jón bróðir hans og
þeirra Guðrúnar hefði ekki verið
einn þeirra sem reru út í skip og
sig langaði að spyrja hann út úr
sem fyrst og áður en hann barn-
aði frásögnina. Jón féllst þegar á
málaleitan hans því þeir voru
áfram um það synir hans og hann
sjálfur að fara niður úr. Þegar
máltíðinni lauk mælti Efri Jón
snarlega fram stutta en heita bæn
sem hann hafði lært um veturinn
og gengu svo allir karlmenn út í
sama mund og vopnaðir gestir
komu í hlað í klæðamiklum og
marglitum fötum sem þeir tóku
að sér um mittið með breiðum
linda og eða leðuról og höfðu
hnífahulstur fólgin þar undir. Þeir
voru í víðum brókum og skálm-
arnar hnýttar saman neðan við
hnén, sumir í leðurstígvélum sem
náðu upp og undir skálmarnar,
aðrir í lágum skóm og háleistum
yfir hnén svo hvergi sást í bert.
Þeir voru með höfuðföt af margri
gerð.
Undrun Járngerðarstaðamanna
yfir heimsókninni var svo mikil
að þeir hreyfðu hvorki legg né lið
þótt gestirnir slægju um þá hring,
yggldu sig framan í þá, hvæstu
líkt og fresskettir og skækju vopn
að þeim. Þegar aðkomumenn
höfðu fengist við þetta litla stund
öskraði einn þeirra að hinum og
samstundis sveipuðu fjórir þeirra
klæðum fyrir vit sér og ruddust
inn í bæinn með hönd á hnífum.
Einn þeirra kom að vörmu spori
út aftur og hélt á Guðrúnu Rafns-
dóttur í fanginu. Hún var í striga-
serk einum fata og hafði verið
tekin í bólinu. Maðurinn fleygði
telpunni til félaga sinna sem
gripu hana við hlátrasköll án þess
að æmti í henni en hún var níu
vetra þegar þetta var og smávax-
in.
VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 18. DESEMBER 2003 JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 29
Fyrir hönd Hraunsetursins ehf., óskar
Verkfræðistofa Suðurnesja eftir tilboðum í verkið
„Bláa Lónið – Meðferðarstöð – Jarðvinna“.
Þessu verki skal að fullu lokið eigi síðar en 30. mars 2004.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Verkfræðistofu Suðurnesja
að Víkurbraut 13, Keflavík, á 5.000 kr. Tilboð verða opnuð
á sama stað þriðjudaginn 6. janúar 2004, kl. 11.00.
Bláa Lónið – Meðferðarstöð
Jarðvinna
Upptaka á hrauni 100 m3
Uppgröftur á yfirborðshrauni 8.000 m3
Gröftur og fylling úr hraunlögum 17.000 m3
Klapparfleygun 1.500 m3
Verkið felst í upptöku á hrauni, uppgreftri, klapparvinnu
og yfirborðsfrágangi.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
VERKSVIÐ: HÖNNUN ÚTLITS, BURÐARVIRKIS OG LAGNAKERFA.
EFTIRLIT MEÐ FRAMKVÆMDUM.
einhver harðasti aðdáandi Roll-
ing Stones hér á landi og hann
hefur farið fimm sinnum erlendis
á tónleika með sveitinni. „Ég var
aldrei hrifinn af þessu Bítlavæli á
sínum tíma!“, tekur hann fram.
Eitt það fyrsta sem maður rekur
augun í á veggjunum er mynd af
Kela ásamt Bill Wyman, fyrrum
bassaleikara Stones. „Það var
gaman að hitta Wyman og hann
var mjög hissa þegar ég sýndi
honum eina úrklippubókina mína
og hann sá hvað hafði verið
skrifað mikið um hljómsveitina á
íslensku. Annars var ég að farast
af stressi þegar ég var að tala við
hann, en hann bara klappaði mér
á öxlina og sagði mér að slappa
bara af.“ Annars er Mick Jagger
efstur á blaði hjá Kela og hann
sagðist vera ánægður fyrir hönd
rokkarans að hafa verið aðlaður á
dögunum. Svo klykkir hann út
með því að hann eigi eftir að
hitta þá alla áður en yfir lýkur.
Söfnunaráráttan hefur verið hluti
af lífi Kela allt frá æskuárum og
hann er síður en svo hættur í dag.
Hann er jafn virkur og alltaf og
vill benda fólki sem að er að
henda út gömlu dóti sem gæti
tengst einhverju af ofantöldu að
hafa samband við sig áður en því
er hent.
Hér sést Keli með Bill Wyman.
Þess má geta að myndin endaði á
aðdáendasíðunni stonesplanet.com
í hópi annarra mynda af að-
dáendum sem hafa hitt goðin.
Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 13:34 Page 29