Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Blaðsíða 45

Víkurfréttir - 18.12.2003, Blaðsíða 45
mmi&maggi Það var ekki fyrr en Hemmi loksins spurði Sai hvernig hann hefði það að hann sagði eitthvað. Þá vildi Sai bara vita hvort við ætluðum ekki að fara út aftur. Við svöruð- um bara neitandi enda gaurinn orðinn full krípi fyrir okkar smekk. Og eins og þetta væri ekki nóg af furðulegum uppákomum fyrir eitt kvöld heldur bankaði Melly líka á gluggann hjá okkur klukkan 4 um nóttina og vakti Hemma. Og eins og Sai fyrr um kvöldið var hann að reyna að fá okkur til að koma út. Hemmi látinn fara úr skónum í tollinum Við vorum búnir að taka þá ákvörðun að fara frá Tubakula daginn eftir og eftir þetta kvöld gátum við ekki verið fegnari að komast þaðan. Að fara til Nadi lá beinast við því að þar værum við næst flugvellin- um. Enn og aftur tókst okkur að velja okk- ur gistiheimili sem nánast enginn gisti á með viðbjóðslegri strönd eins og var á Tubakula. Okkur skilst að allar fallegu strendur Fiji séu að finna á smáeyjunum fyrir utan aðaleyjuna. Við sáum fram á að við gætum ekki hang- ið á þessum of af- slapp- andi stað þá fjóra daga sem við áttum eftir á Fiji þannig að við flýttum fluginu okkar til Los Angeles um tvo daga. Á flugvellinum á Fiji lentum við í því að leitað var í tösk- unum okkar eins og aldrei áður og Hemmi var meira að segja látinn fara úr skónum því allir geta verið með sprengju nú til dags. Ellefu tíma flug til LA Svo flugum við til Los Angeles. Flugið frá Fiji tók tæpa ellefu tíma en við flugum yfir dagsetningarlínuna (eða hvað sem við köllum það á íslensku) og lentum aftur á sama deginum í Los Angeles. Við getum sagt ykkur alveg hreinskilnislega núna að okkur fannst ekkert gaman í Bandaríkjun- um og við höfum eiginlega frá engu að segja þaðan. Við setjum samt nokkrar myndir frá Bandaríkjunum inn á slóðina www.picturetrail.com/heimsreisan og reynum að gefa smá mynd af því. Banda- ríkin kostuðu okkur bara mikla peninga og í staðin fengum við litla skemmtun! Vandræði í Brasilíu Og eftir 9 langa daga í Bandaríkjunum vorum við komnir með flugmiða til Bras- ilíu í hendurnar og við tilbúnir að fara til Suður-Ameríku á vit nýrra ævintýra. Já, við vorum nefnilega búnir að ákveða að fara alla leið niður til Sudur-Ameríku og þaðan ætluðum við að taka okkur nægan tíma í að ferðast í átt að Norður-Ameríku. Það fyrsta sem við þurftum að gera var að taka 5 tíma rútuferð frá Las Vegas til Los Angeles. Í Los Angeles þurftum við svo að bíða í 10 tíma eftir fyrsta fluginu okkar sem var til Miami og á Miami mætti okkur svo önnur tveggja tíma bið. Við flugum í 8 tíma yfir til Rio de Janeiro og eftirvænt- ingin orðin gríðarleg. Í Rio de Janeiro leið mjög langur tími þangað til röðin kom að okkur til að fá stimpil inn í landið. Gaur- inn sem skoðaði vegabréfin spurði okkur allskonar spurninga og endaði svo á því að spyrja okkur hvort við værum með flugmiða sem sannaði að við ætluðum að yfirgefa landið. Nei, við vorum ekki með það vegna þess að við ætluðum ekki að fljúga frá Brasilíu heldur að taka rútu yfir til Bólivíu. Hann sendi okkur því inn í her- bergi, sem var fullt af gaurum sem töluðu enga ensku, en voru samt fullir af hroka og stælum og eiginlega á hálfgerðu valdafyll- eríi. Við fengum eiginlega strax þá tilfinn- ingu að þeir ætluðu sér ekki að hleypa okkur inn í landið og auðvitað gátum við ekki skýrt okkar mál nægilega vegna þess að við tölum ekki portúgölsku. Þó höldum við reyndar að það hafi ekki hjálpað okkur neitt að þeir stoppuðu líka einhvern þjóð- verja þarna, sem hafði oft verið í Brasilíu áður og talaði þeirra tungumál sæmilega. Ætluðu að lemja Hemma Svo komu þeir með blað til okkar sem við áttum að kvitta undir. Hemmi fékk fyrsta blaðið í hendurnar og þegar hann var að skrifa síðasta stafinn í nafninu sínu rann á hann smá reiði og hann krotaði eiginlega yfir hálft blaðið í leiðinni. Þeir spurðu hann strax hvort að það væri svona sem hann skrifaði alltaf undir pappíra og þegar Hemmi sagði þeim að svo væri ekki fauk ekkert smávegis í þá og þeir hótuðu að berja Hemma og henda honum í fangelsi. Þeir gerðu þó hvorugt heldur hentu honum bókstaflega út af skrifstofunni og sögðu honum að þeir vildu ekki að hann heim- sækti landið þeirra. Leið eins og glæpamönnum Þegar þetta gerðist var Hemmi strax kom- inn með hugmyndir í hausinn um að byrja að framleiða klósettpappír með brasilíska fánanum á og ef það seldist ekki nógu vel myndi hann bara nota hann sjálfur. Síðan vorum við látnir bíða í 12 klukkutíma eftir að það yrði flogið aftur til Miami. Allan þann tíma voru þeir með vegabréfin okkar og flugmiðana líka og enginn kom og tal- aði við okkur allan tímann. Okkur leið eins og við værum glæpamenn. Lítill svefn Eftir 37 tíma og þar af 5 tíma svefn án þess að komast í sturtu eða að hafa tækifæri til að skipta um föt vegna þess að við sáum töskurnar okkar aldrei frá því að við tjékkuðum þær inn í Los Angeles kom loksins að fluginu til Miami. Við héldum að þessi dagur gæti ekki orðið skrýtnari, en þá kom flugfreyja frá Amer- ican Airlines til okkar með lista í höndun- um sem innifól bara nöfnin okkar. Hún las upp nöfnin og spurði hvort þetta væru við. Já, sögðum við og það næsta sem hún sagði var að ef við ættum að fá að fljúga með þeim tilbaka þyrftum við að fara í sturtu og skipta um föt vegna þess að við værum bæði móðgandi og illa lyktandi. Bolirnir skiptu máli Við vorum reyndar báðir í hálfgerðum Anti-America bolum vegna þess að Maggi var í Che Guevara bol og Hemmi var í bol með víetnömsku stjörnunni á. Við sögðum kerlingardruslunni að við sæjum hvergi sturtu nálægt og að við gætum ekki skipt um föt vegna þess að við vissum ekki einu sinni hvar töskurnar okkar væru, en ef hún hefði eitthvað sem við gætum þrifið okkur með væri minnsta málið að gera það. Hún lét okkur því fá pínkulitla þvotta- poka en sagði jafnframt að við yrðum að versla okkur nýja boli. Við tókum það ekki í mál að gera það og fórum bara á klósett- ið, þrifum okkur og fórum svo upp í Duty Free til að sprauta á okkur smá ilmvatni. Uppi í Duty Free hittum við fyrir flugstjór- ann sem átti að fara með okkur til Miami. Hann vissi hvað hafði á undan gengið og skildi greinilega aðeins hvað var búið að gerast hjá okkur síðustu tæpa tvo sólar- hringana. Hann bauðst því til að splæsa sitt hvorum bolnum á okkur og við tókum því tilboði bara vegna þess að við vorum hvort sem er farnir að vilja skipta um föt. Erfitt að komast inn í Bandaríkin aftur Aðrir átta tímar aftur til Miami biðu okkar en við vorum orðnir svo þreyttir að við sváfum nánast allt flugið. Við lentum í Bandaríkjunum og þar sá fólkið sem vann í vegabréfsskoðun- inni strax að við höfðum yfirgefið landið fyrir sólar- hring síðan og auðvitað fyllt- ust allir grun- semdum þeg- ar við sögð- um þeim í hreinskilni að við hefðum verið reknir úr landi í Brasilíu. Við vorum aftur sendir inn á eitthvað herbergi og báðir vissir um það að við yrðum komnir aftur til Íslands innan sólarhrings. Þeir slepptu okkur þó í gegn eftir að við sýnd- um þeim að við værum með peninga á okkur og fengum þá til að trúa að við ætl- uðum okkur ekki að vinna einhversstaðar í uppvaski með 3 dollara á tímann sem ólöglegir innflytjendur. Gott að komast úr vestrænu menningunni Við fórum því og keyptum okkur miða til Panama þar sem við erum núna. Það er strax áhugaverðara að vera kominn úr vestrænu menningunni, en við sjáum að það á ekki alltaf eftir að vera auðvelt að ferðast hérna í Mið-Ameríku. Það talar enginn ensku hérna og því mæðir á Hemma að nota sína brotnu spænsku til að koma einhverju í gegn. Við erum ennþá að jafna okkur eftir allt þetta djöfulsins helvít- is rugl sem við höfum verið að lenda í upp á síðkastið og það er ástæða þess að þessi pistill kemur svona seint. Í sannleika sagt er ferðalagið hjá okkur búið að vera frekar leiðinlegt upp á síðkastið eins og þið kannski sjáið á þessum pistli en allt er þetta lífsreynsla sem kemur vonandi til nota seinna. Við erum búnir að setja fleiri myndir inn á www.picturetrail.com/heims- reisan ef þið hafið áhuga. Kveðja frá Panama Hemmi & Maggi VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 18. DESEMBER 2003 JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 45 Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 9:32 Page 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.