Víkurfréttir - 18.12.2003, Blaðsíða 47
Ágætu Suðurnsejabúar.
Nú líður senn að jólum og ára-
mótum, þeim tíma ársins sem
mest er verið með óvarin eld, svo
sem kerti og skreytingar.
Fólk fer að komast í hátíðarskap,
bæirnir taka á sig breyttan svip
og ljósaskreytingum fjölgar.
Er ekki tilvalið mitt í öllu annrík-
inu að staldra við og huga að
þeim eldvörnum sem við höfum
á heimilum okkar og í fyrirtækj-
um t.d. hvort ekki sé í lagi með
reykskynjara slökkvitæki og eld-
varnateppð, þarf ef til vill að
skipta um rafhlöðu í reykskynjar-
anum eða yfirfara slökkvitækið
ef svo er, þá er upplagt að gera
það núna.
Við hvetjum alla að huga vel að
brunavörnum því með getum
við ef til vill komið í veg fyrir að
eldur spilli gleði okkar um hátíð-
arnar.
Því miður er það staðreynd að
margir eldsvoðar verða í kringum
jól og áramót og flestir eru þess
eðlis að það hefði mátt koma í
veg fyrir þá með því að sýna að-
gæslu sem alltaf er nauðsyn-
leg,haf ið því kertin í góðum
kertastjökum, þannig staðsettum
að ekkert sé nálægt sem getur
kviknað í. Kertaskreytingar eiga
að vera þannig gerðar að ekki sé
hætta á að kertið geti brunnið al-
veg niður og logar náð til skrauts-
ins,t.d. með álpappír upp með
kertisbotni og utan um kertið,
þannig að gott bil sé á milli svo
að eldurinn komist ekki að
skrautinu.
Varist að tengja of mörg raf-
magnstæki við sömu innstungu
til að ekki verði ofhleðsla á raf-
magnstenglum. Yfirfara þarf
jólaljósin og ganga úr skugga um
að þau séu í lagi, látum aldrei
loga á ljósunum á jólatrénu yfir
nótt eða þegar við erum að heim-
an, og munum að engin jólaljós
eru svo örugg að hægt sé að úti-
loka íkveikju af þeirra völdum.
Reykskynjari á að vera á hverju
heimili, hann er ódýrasta líf-
trygging sem völ er á og hefur
fyrir löngu sannað að hann kem-
ur í veg fyrir tjón þar sem að
hann greinir eld á byrjunarstigi
og gerir viðvart þannig að hægt
er að bregðast strax við ef eldur
verður laus.
Þá ber að minnast á hættu sem er
samfara áramótabrennum, skot-
eldum og ýmiskonar blysum
sem fylgja áramótum. Ganga
þarf vel og tryggilega frá undir-
stöðum þegar skotið er upp
skoteldum og fylgjið ávallt þeim
leiðbeiningum sem standa á skot-
eldunum, notið hanska og hlífð-
argleraugu við notkun þeirra og
farið varlega við brennur um ára-
mót.
Þurfi fólk á ráðleggingum að
halda um brunavarnir eru starfs-
menn Brunavarna Suðurnesja
ávallt reiðubúnir til að aðstoða og
ráðleggja fólki, hægt er að hafa
samband við varðstofu slökkvi-
liðsins í síma 421-4749 allan
sólahringinn.
Ágætu Suðurnesjabúar starfs-
menn Brunavarna Suðurnesja
hvetja alla til að sýna sérstaka
aðgát yfir hátíðarnar um leið og
við óskum ykkur gleðilegra jóla
og gæfuríks komandi árs með
þökk fyrir árið sem er að líða.
F.h starfsmanna Brunavarna
Suðurnesja
Jón Guðlaugsson
Varaslökkviliðsstjóri
VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 18. DESEMBER 2003 JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 47
Eitthvað fyrir alla um jólin!
Eigum öll slysalaus jól og áramót
Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 14:28 Page 47