Víkurfréttir - 18.12.2003, Blaðsíða 34
Marglytta réðist á mig
Fyrstu tvo dagana slöppuðum við
bara af og fórum á ströndina og
fl.. Svo lögðum við af stað frá
bryggju og sigldum í þrjá tíma til
Corsiku (eyja í Frakklandi) þar
var mikið að skoða t.d. lítill bær
uppi á fjallinu og lítil höll sem er
eldgömul. Við fórum undir bjarg-
ið þar sem fólk synti og „snork-
aði“. Þar voru ekkert nema
klettar og steinar. Fyrir ofan voru
húsin á klettinum fram á brún-
inni, ef það myndi koma jarð-
skjálfti þá mundu öll húsin
hrynja niður bjargið. Ég fór í sjó-
inn og byrjaði að „snorka“ hjá
klettunum, en þar voru mikið af
f iskum og marglyttum. Ein
marglyttan réðst á mig og ég
öskraði af öllum krafti, ég fékk
tvö brunasár eftir hana og þorði
ekki að fara í sjóinn í þrjá daga
eftir þetta.
Á eyðieyju
Svo sigldum við á eyðieyju og
hentum út ankeri og fór auðvitað
strax í sjóinn að kafa og
„snorka“. Við sváfum eina nótt
þar á ankeri en samt smá rok.
Strax morguninn eftir fór ég að
hoppa aftur í sjóinn með pabba
meðan allir voru sofandi. Svo
þegar allir voru vaknaðir lögðum
við aftur á stað til Santa Teresu.
Á leiðinni var mikið rok (28
hnútar) ég systir mín og frændi
minn lágum framan á skútunni
en þá kom stór alda yfir okkur og
við fórum bara inn í skútuna. Við
héldum okkur fast því skútan var
byrjuð að halla svakalega mikið.
Það var svo mikið rok að við
sáum ekkert fyrir stórum öldum.
Eftir 7-8 klukkutíma vorum við
loks komin í heimahöfn skútunn-
ar. Síðan voru liðnar 2 vikur og
þrjár manneskjur þurftu að fara
aftur heim á leið. Í eina viku vor-
um við í höfninni vegna veður-
tafar, en það var samt geggjað
gaman. Við fórum á ströndina
þar var mikið rok og þriggja
hæða háar öldur, ég og systir mín
vorum á brimbrettum í öldunum.
Borðuðum pizzur í mánuð
Svo fórum við á kvöldin út að
borða og ekkert hægt að fá nema
pizzur og pasta, þannig að ég og
systir mín borðuðum pizzur í
mánuð. Svo eftir matinn fórum
við alltaf á torgið og þar var alltaf
eitthvað um að vera, ég var alltaf
að fá ís, en mesti gallinn var að
ekki var hægt að finna nammi á
Sardiniu. Við gengum mikið og
skoðuðum meðan veðrið var
leiðinlegt, við skoðuðum t.d.
kastala leifar og virki til að verja
innsiglinguna í gamla daga. En
óveðrið gekk niður, við lögðum
af stað úr höfn og sigldum til
Spargí eyju sem er eyðieyja,
lögðumst við ankeri. Síðan fór-
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!34
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
Ævintýri úr Miðja
F A N N E Y R U T G E O R G S D Ó T T I R , 1 1 Á R A , S K R I F A R F E R Ð A S Ö G U F R Á S Í Ð A S TA S U M R I
É g fór til útlanda í sumar, nánar tiltekið til Ítalíu.Við lögðumaf stað seint um kvöld og þurftum að sofa í flugstöðinni íMílano. Morguninn eftir tókum við bílaleigubíl og keyrð-
um niður til Genova sem er hafnarborg ofarlega á Ítalíu. Á leið-
inni var mikið af fjöllum og margir gamlir bæir. Þegar við vorum
komin til Genovu fórum við að skoða bæinn við löbbuðum niður á
bryggju og sáum stórt gamalt sjóræningjaskip. Við skoðuðum
það, inni í því voru gamlar fallbyssur og fangaklefar. Eftir það fór-
um við á strönd og höfðum gaman. Um kvöldið fórum við niður á
höfn og fórum í stærsta Moby skemmtiferðaskipið og sigldum í
níu klukkutíma til Olbiu en það er hafnarbær norðarlega á Sar-
diniu. Inn í skipinu voru margir veitingastaðir, dansstaður með
tónleikum, bíó, boltaland, spilavíti og fl. Þegar við vorum komin til
Olbiu tókum við rútu til Santa Teresu. Svo gengum við út á
bryggju og í skútuna okkar sem við áttum eftir að vera á í heilan
mánuð.
Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 9:28 Page 34