Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Side 27

Víkurfréttir - 18.12.2003, Side 27
VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 18. DESEMBER 2003 JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 27 NJARÐVÍK-TINDASTÓLL Í kvöld mætir Tindastóll í Ljóna- gryfjuna og freistar þess að ná stigum gegn Njarðvíkurliðinu sem hefur verið á góðri siglingu síðustu vikurnar. Njarðvík hefur ekki tapað leik síðan þeir lutu óvænt í gras gegn Hamri í lok október og virðist vera eina liðið sem á raunhæfa möguleika á því að skáka Grindvíkingum úr topp- sætinu. Heimamenn mæta til leiks með fullskipað lið þar sem ökklameiðsli sem Brandon Woudstra varð fyrir í síðasta leik reyndust óveruleg. Kristin Frið- riksson verður hins vegar að stjórna Tindastóli frá bekknum þar sem hann er meiddur. Friðrik Ragnarsson hjá Njarðvík er bjartsýnn fyrir leikinn enda er góð stemmning í hans hópi. „Við erum á góðu róli, en við megum alls ekki tapa því þá eru Grind- víkingar svo gott sem búnir að tryggja sér deildarmeistaratitil- inn. Þetta verður pottþétt hörku- leikur. Tindastóll er með fínan mannskap og við þurfum að eiga góðan dag til að vinna.“ Njarðvík er í öðru sæti deildar- innar eftir 10 umferðir en Tinda- stóll er í því sjötta með fimm sig- urleiki. BREIÐABLIK-GRINDAVÍK Topplið Grindavíkur sækir Breiðablik heim á laugardag og verður leikurinn í beinni útsend- ingu á RÚV í tengslum við úr- slitaleikinn í Hópbílabikar kvenna. Fyrirfram hljóta Grind- víkingar að vera sigurstranglegri, en þeir spiluðu tvo erfiða leiki við ÍR um síðustu helgi sem gætu setið í mönnum. Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur, sagði leikinn þó leggjast vel í sína menn. „Það er náttúrulega stemmning að spila sjónvarpsleik, en við erum að jafna okkur eftir helgina og auk þess er sennilegt að Helgi Jónas verði ekki með okkur vegna meiðsla.. En það kemur alltaf maður í manns stað.“ KEFLAVÍK-HAUKAR Eins og hefur komið fram áður standa Keflvíkingar í ströngu á öllum vígstöðvum um þessar mundir og hafa spilað mjög marga leiki að undanförnu. Á sunnudaginn fá þeir Hauka í heimsókn í „Sláturhúsið“ eftir erfitt keppnisferðalag til Portú- gals sem er fjallað ítarlega um annars staðar í blaðinu. Haukar eru þó ekki öfundsverðir vegna þess að Keflvíkingar eru gríðar- lega sterkir á heimavelli sínum og víst er að þrátt fyrir álag munu Keflvíkingar ekki gefa tommu eftir. Haukar eru í 6.-8. sæti fyrir leikinn, en Keflvíkingar eru í því þriðja eftir misjafnt gengi á úti- velli í haust. ■ Intersport-deildin í körfuknattleik ■Bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik ■Hópbílabikar kvenna: Úrslitaleikur CAB MADEIRA-KEFLAVÍK Í kvöld spilar Keflavík einn af mikilvægustu leikjum sínum í ár þegar þeir halda til sólskinsparadísarinnar Madeira og etja kappi við heima- menn í bikarkeppni Evrópu í lokaumferð riðlakeppninnar. Mikið liggur við vegna þess að ef Keflvíkingar vinna í kvöld og Tou- lon vinnur Ovarense í hinum leik riðilsins, hafa þeir tryggt sér efsta sætið og um leið heimavallarréttinn í útsláttarkeppninni sem tekur við. Falur Harðarson segir að sínir menn séu alls ekki bugaðir eftir tapið gegn Ovarense í síðustu umferð. „Það þýðir ekki að gráta orðinn hlut heldur ætlum við okkur bara að sigra í Madeira og taka efsta sætið“, segir Falur og er engan bilbug á Keflvíkingum að finna. Áhugasamir geta fylgst með framvindu leiksins á keflavik.is og vf.is. KEFLAVÍK-KR Á laugardaginn mætast Keflavík og KR í úrslitaleik Hópbílabikars kvenna í Smáranum í Kópavogi. Keflavíkurstúlk- ur hljóta að telj- ast sigurstrang- legri fyrir leik- inn, enda með stærri leikmenn og mikla breidd. Þó hafa þær átt til að missa sig út í einbeitning- arleysi sem hef- ur á tíðum orðið þeim til falls. Hjörtur Harðar- son, þjálfari K e f l a v í k u r , sagði í samtali við Víkurfréttir að þær stelpur sem hafa verið fjarverandi í síð- ustu leikjum vegna veikinda séu allar búnar að ná sér og verði leikfærar á laugardag. „Við eig- um eftir að leggja mesta áherslu á að stoppa Hildi Sigurðar- dóttur og Katie Wolfe, og eins eiga okkar stóru leikmenn eftir að valda K R - i n g u m hausverk undir körfunni. Ef það gengur upp eigum við að klára þennan leik.“ Leikurinn hefst kl. 14.15 og er athygli vakin á því að hann verður sýndur beint á RÚV. Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 11:51 Page 27

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.