Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Blaðsíða 40

Víkurfréttir - 18.12.2003, Blaðsíða 40
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!40 G le ð il e g a h á tí ð ! ® Fimm heppnir lesendur voru dregnir út í aukaúrdrætti jólaleik Samhæfni og Víkurfrétta. Vinningshafar eru: 1. vinningur: Jón J. Ögmundsson vann sér inn HP Desk Jet 3650 litaprentara 2.-5. vinningur: Ingibjörg Pálsdóttir, María Hrund, Kristín Erla Albertsdóttir og Sigurjón Torfason unnu sér inn 2500 kr. gjafabréf frá Pizza 67. Samhæfni og Víkurfréttir óska vinningshöfum til hamingju með vinningana. Við minnum á aðalúrdrátt á Þorláksmessu þar sem glæsileg HP tölva er í aðalvinning ásamt fjölda annarra gæsilegra vinninga. VINNINGSHAFAR VIKUNNAR Í JÓLALEIK SAMHÆFNI OG VÍKURFRÉTTA Ámeðal landsliðsmannasem kepptu í Evrópu-meistaramótinu í 25m laug voru þrír liðsmenn ÍRB. Það voru þau Íris Edda Heim- isdóttir, Jón Oddur Sigurðsson og Örn Arnarson. Jón Oddur náði sér ekki á strik og komst ekki í úrslit í sínum greinum þar sem hann náði best 29. sæti í 50m bringusundi. Íris Edda Heimisdóttir hefur átt við meiðsli að stríða undanfarið og náði ekki að bæta sig í sínum greinum. Hún var í 29. og 34.sæti og komst ekki í úrslit. Örn Arnarson bætti enn einu af- reki á ferilsskrána á mótinu þar sem hann vann til silfurverðlauna í 100m baksundi. Sá eini sem skákaði Erni var heimsmethafinn frá Þýskalandi. Örn komst í öll- um sínum greinum og endaði í 5. sæti í 200m baksundi og í 7. sæti í 50 metrunum eftir að hafa tví- bætt Íslands- og Norðurlanda- metið í greininni. Með því á Örn öll gildandi Norðurlandamet í baksundgreinum. Steindór Gunnarsson, þjálfari ÍRB og landsliðsins, sagði að ár- angur Arnar síðustu ár væri óvið- jafnanlegur. „Hann hefur verið að vinna til verðlauna á stórmót- um síðan 1998 og keppt við suma bestu sundmenn heims. Þrátt fyrir að hann hafi ekki unn- ið til verðlauna í tveimur grein- um á þessu móti var hann samt að bæta sig þar og var meðal efstu manna í 50 metrunum þó að hann hafi ekki verið mikill sprettamaður hingað til.“ Næsta stórmót verður í maí á næsta ári þegar Evrópumeistara- mótið í 50m laug verður haldið í Madrid og eru Íris, Örn og Jón Oddur þegar búin að tryggja sér þátttöku. Eftir það kemur að sjálfum Ólympíuleikunum sem verða í Aþenu í ágúst. Þar er Íris Edda búin að ná lágmörkum fyrir 100m bringusundið og Örn er búinn að tryggja sig í 4 greinum nú þegar og þeim getur jafnvel fjölgað. E V R Ó P U M E I S TA R A M Ó T I Ð Í S U N D I Í 2 5 M L A U G EVRÓPUSILFUR TIL ÍRB Á meðal landsliðsmanna sem kepptu í Evrópumeistaramótinu í 25m laug voru þrír liðsmenn ÍRB. Það voru þau Íris Edda Heimisdóttir, Jón Oddur Sigurðsson og Örn Arnarson. Laugardaginn 6. desember afhenti Guttorm Vik sendiherraNoregs Reykjanesbæ jólatré frá vinabænum Kristiansand ogvar þetta í 40 sinn sem vinabærinn færir íbúum Reykjanesbæjar jólatré. Nemendur úr tón- listarskóla Reykjanesbæjar léku og sungu og boðið var upp á heitt kakó. Í Garðinum var einnig kveikt á jólatré bæjarins og var mikill fjöldi jólasveina þar saman- komin og sprelluðu þeir mikið við mikinn fögnuð ungu kynslóðarinn- ar. Sandgerðingar hafa einnig kveikt á jólatrénu í bænum, en við það tæki- færi bauð foreldrafélag grunnskólans upp á kakó. Jólasveinarnir tóku for- skot á sæluna og létu sjá sig. Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 12:40 Page 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.