Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2003, Page 53

Víkurfréttir - 18.12.2003, Page 53
kring um flugstöðina sjálfa. Það er töluvert mikil starfsemi hér á þessu borgaralega flugsvæði. Meðal annars eru hér þrjár fragt- flugvélar staðsettar, en yfir 40 þúsund tonn af vörum fóru um flugvöllinn á arínu 2002. Um flugvöllin fara einnig hundruð einkaflugvéla á ári hverju á leið sinni yfir norður atlantshafið sem einungis nýta sér eldsneytis- þjónustu vallarins.“ Eftir 11. september hafa öryggis- kröfur á flugvöllum aukist gríð- arlega. Björn segir að endurskoð- un öryggismála á Keflavíkurflug- velli hafi hafist á árinu 1999. „Hér á Keflavíkurflugvelli hefur verið unnið gríðarlega gott starf í flugöryggismálum. Flugvallaryf- irvöld hafa verið í góðu sam- starfi við Sýslumannsembættið um framkvæmd flugverndar. Stærstu verkefnin sem við höfum farið í er bygging fragtflughlaðs, viðamikil endurnýjun á aðflugs- búnaði flugvallarins, gerð nýs aðalskipulags, færanlegur gegn- umlýsingarbúnaður og ýmis önn- ur öryggisatriði,“ segir Björn og hann er bjartsýnn á framtíð Keflavíkurflugvallar. „Það er krafa farþega sem um flugvöll- inn fara að framkvæmd öryggis- mála sé eins og hún gerist best annars staðar í heiminum og í samræmi við alþjóðlega kröfur og reglur sem íslensk yfirvöld hafa undirgengist að framfylgja. Keflavíkurflugvöllur er alþjóða- flugvöllur okkar Íslendinga, flug- völlurinn varð 60 ára 24. mars sl og skipar mikilvægan sess sem eitt öflugasta samgöngumann- virki landsins. Frá þvi að Kefla- víkurflugvöllur tók til starfa hafa rúmlega 27 milljónir millilanda- farþega farið um völlinn og um 600 þús tonn af vörum og pósti í rúmlega 218 þúsund gjaldskyld- um lendingum flugvéla,“ segir Björn að lokum. VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 18. DESEMBER 2003 JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 53 Munið að skila Jólalukkumiðum í pottinn í Samkaup! Björn Ingi heimsótti fjölmarga framandi staði á þeim tíma sem hann starfaði í Ástralíu. Hér er hann á Nýja Sjálandi. Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 14:57 Page 53

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.