Víkurfréttir - 18.12.2003, Qupperneq 58
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!58
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
Ertu mikill bókaormur?
Það er svo einkennilegt með mig
að ég er stundum í mesta bóka-
stuðinu þegar ég ætti að vera að
gera eitthvað allt annað. Maður
ætti t.d. ekki að lesa afþreyingar-
bækur í upplestrarfríinu í skólan-
um eða í jólaundirbúningnum.
Ég á það líka til að taka með mér
bækur í sumarfrí erlendis, við lít-
inn fögnuð innan fjölskyldunnar
og hef þurft að huga að yfirvigt
ef svo ber undir.
Hvaða bækur ertu með á nátt-
borðinu?
Aðallega skólabækur og fræðirit
um uppeldisvísindi og þroskasál-
fræði. Ein góð þar er Ríki
mannsins eftir norskan geðlækni
Vibeke Engelstad En þar eru
líka aðrar bækur sem mér finnst
gott að grípa í t.d. Kvöldljósin
eru kveikt eftir Kristínu Marju
Baldursdóttur sem Hjörtur bæjar-
ritari las upp úr um daginn í Ís-
landsbanka.
The secret life of bees sem er
ensk metsölubók um mæður og
dætur. Konur og karlar í blóma
lífsins nýútgefin bók eftir
sálfræðingana Álfheiði Stein-
þórsdóttur og Guðfinnu Eydal
ágæt bók í anda þeirra. Ég fékk
þessa bók í afmælisgjöf um dag-
inn. Þarna er líka Ritsafn Kristins
Reyrs, leikrit og ljóð en ég hef
mikinn áhuga á að skoða það
nánar. Ég leit á þetta um daginn
þegar ég var að viða að mér efni
um Hafnargötuna. Ýmislegt í
þessu safni gefur mynd af mann-
lífinu í Keflavík hér áður fyrr eða
um miðja síðustu öld.
Hvaða bók lastu síðast?
Síðasta bókin sem ég las (í próf-
unum og í jólaundirbúningnum)
heitir Að láta lífið rætast nýút-
komin bók eftir Hlín Agnarsdótt-
ur sem er trúnaðarbréf Hlínar til
lesenda. Hún segir þar frá sextán
ára sambúð með alkóhólista.
Hver er þín uppáhaldsbók?
Ég á nú erfitt með að gera upp á
milli nokkurra bóka en um þess-
ar mundir held ég mikið upp á
bókina Tvær gamlar konur eftir
Velmu Wallis í þýðingu Gyrðis
Elíassonar. Í þeirri bók er mikil
viska og svo er það bókin Þriðju-
dagar með Morrie eftir Mitch
Albom sem er góð bók um lífið
og dauðann. Ég hef gefið
nokkrum karlmönnum þessa bók
af því ég held hún höfði á sér-
stakan hátt til þeirra.
Eru einhverjar bækur sem þú
ætlar þér að lesa á næstunni?
Ég hef alltaf ætlað að lesa um
góða dátann Svejk en einhvern
veginn ekki komið mér að því.
Ég hef stundum þurft að lesa
ákveðnar bækur til að skilja betur
húmor eiginmannsins og þessi
bók kemur aftur og aftur upp
hvað það varðar. Peð á plánet-
unni jörð og bækur eftir Olgu
Guðrúnu Árnadóttur koma svo
næstar. En sem betur fer á ég
mikið eftir að lesa af áhugaverð-
um bókum.
Hvaða bókaorm skorarðu á
næst?
Ég ætla að skora á Jóhönnu
Brynjólfsdóttur fyrrum hjúkrun-
arforstjóra á heilsugæslunni en
hún gaf mér fyrstu bókina í jóla-
gjöf um Millí Mollí Mandí þegar
ég var lítil stelpa.
Jóhanna hefur kennt mér að um-
gangast bækur með sérstakri
virðingu. Hún hefur oft bent mér
á áhugaverðar bækur og ekki síð-
ur ljóð en hún er ótrúleg þegar
kemur að ljóðum og þylur heilu
ljóðabálkana utanbókar.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
háseti úr Grindavík segist fara
alltof sjaldan í bíó, en að það
standi til bóta. Kvikmyndin
sem hann langar mest til að sjá
þessa dagana er Hafið.
Hvaða kvikmynd sástu síðast í
bíó?
The Texas chainsaw massacre,
hrottalega ógeðsleg. Þurfti að
halda í hendina á konunni allan
tímann því ég var tæpur á að að
skíta á mig úr hræðslu..
Hver er uppáhaldskvikmyndin
sem þú hefur séð?
Scareface
Hver finnst þér vera besti leik-
ari/leikkona sem nú er á lífi?
Edward Burns / Chaice Lane
Hvað ferðu oft í bíó á mánuði?
Allt of sjaldan en það stendur til
bóta
Hvaða spólu leigðirðu þér síð-
ast?
„The Ring“, olli mér miklum
vonbrigðum og er ekki enn búinn
að fyrirgefa Jónsa bróður fyrir að
hafa mælt með henni
Er einhver kvikmynd sem þú átt
eftir að sjá, en langar mikið til?
Hafið
Hvern skorarðu á í næsta blaði
að svara þessum spurningum?
Guðmund Vigni Helgason dokt-
or í líffræði
Helga Margrét Guðmundsdóttir, starfsmaður Reykjanesbæjar og talsmaður
foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ, er bókaormur vikunnar.
Spólan í tækinu
Bókaormurinn
Með bækur í yfirvigt í frí erlendis
Tæpur á að gera í buxurnar af hræðslu
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar bauð fötluðum
einstaklingum á jólaball á veitinga-
húsinu Ránni í Keflavík á dögunum.
Dóttir Árna, Védís Hervör, söng fyrir
viðstadda við undirleik Baldurs
Guðmundssonar. Þá var boðið upp á
kakó og kökur fyrir þá sem vildu.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum Hilmars Braga, var mikið
fjör á jólaballinu og jólailmur í lofti.
Árni bauð á ball!
Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 14:30 Page 58