Víkurfréttir - 26.02.2004, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ S V E I TA R F É L A G I Ð G A R Ð U R
➤ T Ó N L I S TA R S K Ó L A R N I R Á S U Ð U R N E S J U M
Dagur tónlistarskólanna er orðinn árvissviðburður hérlendis, en tilgangur þessdags er að vekja athygli á því mikla og
fjölbreytta starfi sem unnið er í tónlistarskólum
landsins og til að vekja athygli á gildi tónlistar-
menntunar. Að þessu sinni er Dagur tónlistar-
skólanna haldin hátíðlegur laugardaginn 28.
febrúar n.k.
Í tilefni dagsins hafa tónlistarskólarnir á Suðurnesj-
um hrint af stað samstarfsverkefni, sem lýkur með
stór-tónleikum í Kirkjulundi, félagsheimili Kefla-
víkurkirkju.
Efnisskrá fyrri hluta tónleikanna samanstendur af
tónlistaratriðum frá hverjum tónlistarskóla fyrir sig
en seinni hlutinn er tileinkaður söngleikjum, en þá
munu söngnemendur Tónlistarskólans í Garði, Tón-
listarskólans í Grindavík, Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar og Tónlistarskóla Sandgerðis, sameinast og
flytja lög úr þekktum söngleikjum við undirleik
hljómsveitar, eins og til dæmis úr West Side Story,
My Fair Lady og Sound of Music.
Ágætt samstarf er á milli tónlistarskólanna á Suður-
nesjum og hafa þeir nokkrum sinnum áður hleypt af
stokkunum samstarfsverkefni í tilefni af Degi tón-
listarskólanna. En nokkur ár eru síðan það var síðast
gert og eru tónleikarnir n.k. laugardag því sérstakt
fagnaðarefni. Tónleikarnir hefjast kl.14.
Suðurnesjamenn eru eindregið hvattir til að gera sér
dagamun n.k. laugardag, koma á skemmtilega tón-
leika í Kirkjulundi kl.14 og njóta þess að hlusta á
tónlistarflutning ungra og efnilegra tónlistarmanna.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Fyrsti fundur bæjarráðs Garðs varhaldinn á miðvikudag í síðustu viku.Fyrsta verk fundarins var að kjósa
formann bæjarráðs, varaformann og rit-
ara. Ingimundur Þ. Guðnason var kosinn
formaður, Einar Jón Pálsson var kosinn
varaformaður og Arnar Sigurjónsson rit-
ari. Þessir þrír aðilar skipa bæjarráð
Garðs. Auk þeirra situr fundi bæjarráðs
Sigurður Jónsson bæjarstjóri.
Fyrsti fundur bæjarráðs í Garðinum
Meðfylgjandi mynd er af bæjarráðinu í Garði. F.v.: Ingimundur Þ. Guðnason, Jón Pálsson, Sigurður Jónsson
og Arnar Sigurjónsson. Neðri mynd af ráðinu að störfum.
Halda sameiginlega tónleika
á Degi tónlistarskólanna
Nú er yfirstandandi sér-stök þemavika í Tón-listarskóla Reykjanes-
bæjar. Þemað er „Út í bæ“.
Eins og það ber með sér, þá
eru nemendur skólans þessa
dagana víðs vegar um bæinn
að spila og eru kennarar skól-
ans á „ferð og flugi“ með þá
að heimsækja stofnanir bæj-
arins. Nemendum og kennur-
um hefur alls staðar verið af-
skaplega vel tekið, en meðal
þeirra stofnana sem nemend-
ur heimsækja í vikunni eru
allir leikskólar bæjarins, bæj-
arskrifstofur Reykjanesbæjar
og félagsaðstaða eldri borg-
ara.
Í þemavikunni stendur Tón-
listarskólinn einnig fyrir
hljóðfærakynningum fyrir
alla nemendur í 2. bekk
grunnskólanna, en þeir eru
nemendur Forskóladeildar
Tónlistarskólans og munu
ljúka námi úr þeirri deild í
vor.
Strax að lokinni þemavikunni,
heldur Tónlistarskóli Reykja-
nesbæjar upp á Dag tónlistar-
skólanna, sem er laugardag-
inn 28. febrúar n.k., með stór-
tónleikum í Kirkjulundi fé-
lagsheimili Keflavíkurkirkju,
ásamt öllum hinum tónlistar-
skólunum á Suðurnesjum. Sjá
greinina hér að neðan.
Þemavikan „Út í bæ“
T Ó N L I S TA R S K Ó L I R E Y K J A N E S B Æ J A R
9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 14:01 Page 4