Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.03.2005, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 03.03.2005, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! FERÐAMÁL Á SUÐURNESJUM/FERÐAMÁLARÁÐSTEFNA Í SVARTSENGI Fljótasiglingar og ylsjáv-ar leikja garð ur gætu orðið að veruleika hér á Reykjanesi en þetta kom meðal annars fram á ferðamálaráð- stefnu sem haldin var í Eld- borg í Svartsengi síðastliðinn föstudag. Fram kom einnig að ímynd Grindavíkurbæjar sé sú sterkasta af öllum bæjarfélög- unum á Suðurnesjum en Krist- ján Pálsson, formaður Ferða- málasamtaka Suðurnesja, telur nauðsynlegt að sameina kynn- ingar- og markaðsmál Reykja- nessins. Kristján Pálsson telur nauðsyn- legt fyrir Suðurnesin að skýra ímynd sína betur en áður hefur verið gert. „Mér líst vel á þá hug- mynd sem sett hefur verið fram að einn aðili sjái um kynningu og markaðssetningu Suður- nesja,” sagði Kristján en hann var ánægður með hvernig ráð- stefnan tókst til. „Það var góð mæting á ráðstefnuna og það er mikil gróska í ferðamálum á Suðurnesjum og margar hug- myndanna sem fram komu á ráðstefnunni voru alveg magn- aðar og sér í lagi þær sem Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri Hitaveitu Suðurnesja, setti fram. Eftir um tvö ár verða ylár renn- andi frá Reykjanesvirkjun með allskonar fossum og flúðum og þá er jafnvel tilefni til þess að vera þar með brimbrettaiðkun en kunningi minn frá Bandaríkj- unum sagði mér að hvergi væri eins gaman og að stunda þá íþrótt en einmitt hér á landi.” Aðspurður svaraði Kristján því að þingmennska og brimbrettaí- þróttin gætu vel farið saman. Alberts þáttur Alberts- sonar Vinna er haf in að fullu við Reykjanesvirkjun og á ráðstefn- unni kynnti Albert Albertsson marg ar skemmti leg ar hug- myndir til sögunnar tengdar virkjuninni. Í náinni fram- tíð mun ferðafólki á ferð um Reykjanesið gefast kostur á því að kynna sér starfsemi Reykja- nesvirkjunar í aðstöðu sem Al- bert nefnir fræðslu-ferðamanna- að stöðu. Í þess ari að stöðu byðist gestum að kynnast virkj- uninni í miklu návígi með því að fara sjálfir um stöðvarhúsið undir leiðsögn. Albert nefndi fleira fáheyrt á ráðstefnunni og meðal annars greindi hann frá því að til þess að kæla orkuver Reykjanesvirkjunar þarf 4000 sek úndulítra af sjó en það jafnar næstum því meðalrennsli Elliðaánna. Sjórinn rynni síðan 32 gráðu heitur til sjávar. Vakti Albert máls á því að þennan 32 gráðu heita sjó mætti til að mynda starfrækja til þess að koma á laggirnar ylsjávarleikja- garði eða jafn vel rækta þar hlýsjávarfiska. Hann tekur þó fram að Hitaveitan hyggi ekki á þau ráð að fara út í ferðaþjón- ustu. Um níutíu manns mættu á ráð- stefnuna í Svartsengi og fengu þar fróðlegar upplýsingar um stöðu Reykjanessins í ferða- málum. Mikla athygli vakti erindi Rögnvaldar Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferða- þjónustunnar, en í erindi sínu kynnti hann niðurstöður við- horfskönnunar sem gerð var á meðal fagfólks í ferðaþjónustu. Í ljós kom að ímynd Grindavík- urbæjar virðist vera hvað skýr- ust af öllum þéttbýlisstöðunum á Suðurnesjum. Aðspurðir nefndu Saltfisksetrið, öflugt íþróttalíf og höfnina þegar þeir voru spurðir um Grindavík en áttu erfiðara um vik að nefna eitthvað markvert þegar þau voru spurð um önnur bæjarfé- lög á Suðurnesjum. Í skýrslu þeirri er Rögnvaldur greindi frá í erindi sínu kemur m.a. fram að auglýsa þurfi betur gönguleiðir í friðlandinu og möguleika á silungaveiði. Gera meira úr mannlífi og sögu svæð- isins því það gæti verið aðlað- andi og áhrifaríkt fyrir ferðafólk en kæmist vart með tærnar þar sem Bláa lónið hefur hælana. Ímynd Grindavík- urbæjar sterkust

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.