Víkurfréttir - 03.03.2005, Page 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
FERÐAMÁL Á SUÐURNESJUM/FERÐAMÁLARÁÐSTEFNA Í SVARTSENGI
Fljótasiglingar og ylsjáv-ar leikja garð ur gætu orðið að veruleika hér á
Reykjanesi en þetta kom meðal
annars fram á ferðamálaráð-
stefnu sem haldin var í Eld-
borg í Svartsengi síðastliðinn
föstudag. Fram kom einnig að
ímynd Grindavíkurbæjar sé sú
sterkasta af öllum bæjarfélög-
unum á Suðurnesjum en Krist-
ján Pálsson, formaður Ferða-
málasamtaka Suðurnesja, telur
nauðsynlegt að sameina kynn-
ingar- og markaðsmál Reykja-
nessins.
Kristján Pálsson telur nauðsyn-
legt fyrir Suðurnesin að skýra
ímynd sína betur en áður hefur
verið gert. „Mér líst vel á þá hug-
mynd sem sett hefur verið fram
að einn aðili sjái um kynningu
og markaðssetningu Suður-
nesja,” sagði Kristján en hann
var ánægður með hvernig ráð-
stefnan tókst til. „Það var góð
mæting á ráðstefnuna og það
er mikil gróska í ferðamálum
á Suðurnesjum og margar hug-
myndanna sem fram komu á
ráðstefnunni voru alveg magn-
aðar og sér í lagi þær sem Albert
Albertsson, aðstoðarforstjóri
Hitaveitu Suðurnesja, setti fram.
Eftir um tvö ár verða ylár renn-
andi frá Reykjanesvirkjun með
allskonar fossum og flúðum og
þá er jafnvel tilefni til þess að
vera þar með brimbrettaiðkun
en kunningi minn frá Bandaríkj-
unum sagði mér að hvergi væri
eins gaman og að stunda þá
íþrótt en einmitt hér á landi.”
Aðspurður svaraði Kristján því
að þingmennska og brimbrettaí-
þróttin gætu vel farið saman.
Alberts þáttur Alberts-
sonar
Vinna er haf in að fullu við
Reykjanesvirkjun og á ráðstefn-
unni kynnti Albert Albertsson
marg ar skemmti leg ar hug-
myndir til sögunnar tengdar
virkjuninni. Í náinni fram-
tíð mun ferðafólki á ferð um
Reykjanesið gefast kostur á því
að kynna sér starfsemi Reykja-
nesvirkjunar í aðstöðu sem Al-
bert nefnir fræðslu-ferðamanna-
að stöðu. Í þess ari að stöðu
byðist gestum að kynnast virkj-
uninni í miklu návígi með því
að fara sjálfir um stöðvarhúsið
undir leiðsögn. Albert nefndi
fleira fáheyrt á ráðstefnunni og
meðal annars greindi hann frá
því að til þess að kæla orkuver
Reykjanesvirkjunar þarf 4000
sek úndulítra af sjó en það
jafnar næstum því meðalrennsli
Elliðaánna. Sjórinn rynni síðan
32 gráðu heitur til sjávar. Vakti
Albert máls á því að þennan
32 gráðu heita sjó mætti til að
mynda starfrækja til þess að
koma á laggirnar ylsjávarleikja-
garði eða jafn vel rækta þar
hlýsjávarfiska. Hann tekur þó
fram að Hitaveitan hyggi ekki
á þau ráð að fara út í ferðaþjón-
ustu.
Um níutíu manns mættu á ráð-
stefnuna í Svartsengi og fengu
þar fróðlegar upplýsingar um
stöðu Reykjanessins í ferða-
málum. Mikla athygli vakti
erindi Rögnvaldar Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra hjá
Rannsóknum og ráðgjöf ferða-
þjónustunnar, en í erindi sínu
kynnti hann niðurstöður við-
horfskönnunar sem gerð var á
meðal fagfólks í ferðaþjónustu.
Í ljós kom að ímynd Grindavík-
urbæjar virðist vera hvað skýr-
ust af öllum þéttbýlisstöðunum
á Suðurnesjum. Aðspurðir
nefndu Saltfisksetrið, öflugt
íþróttalíf og höfnina þegar þeir
voru spurðir um Grindavík en
áttu erfiðara um vik að nefna
eitthvað markvert þegar þau
voru spurð um önnur bæjarfé-
lög á Suðurnesjum.
Í skýrslu þeirri er Rögnvaldur
greindi frá í erindi sínu kemur
m.a. fram að auglýsa þurfi betur
gönguleiðir í friðlandinu og
möguleika á silungaveiði. Gera
meira úr mannlífi og sögu svæð-
isins því það gæti verið aðlað-
andi og áhrifaríkt fyrir ferðafólk
en kæmist vart með tærnar þar
sem Bláa lónið hefur hælana.
Ímynd Grindavík-
urbæjar sterkust