Víkurfréttir - 03.03.2005, Síða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Skemmd ar verk voru unn in á ljós kerj um utan við hárgreiðslu-
og snyrtistofuna Spes í Sand-
gerði á föstudagskvöld. Til-
kynnt var um verknaðinn
á milli tíu og hálf ellefu um
kvöldið.
Að sögn Svandísar Georgs-
dóttur, eiganda stofunnar,
var nýbúið að setja upp ljósin
þegar skemmdarvargarnir
létu til skarar skríða. „Það
er greinilegt að viðkomandi
hefur þurft að hafa mikið
fyrir þessu því að hann eða
þeir brutu ekki bara glerið
heldur járnið líka.”
Ekki er vit að hver var að
verki, en þeim sem geta veitt
upplýsingar er bent á að láta
lögregluna vita í síma 420-
2450.
Tilgangslaus skemmd-
arverk í Sandgerði
Slökkvi lið Bruna varna Suðurnesja hefur tekið í notkun nýjan reyk- og
froðublásara. Blásarinn er tví-
virkur þannig að notagildið er
bæði reyklosun með yfirþrýst-
ingi og uppbygging á léttfroðu.
Blásarinn er keyptur hjá Ólafi
Gíslasyni & Co hf/Ltd, sænskur,
af gerðinni SweFan, með 6,5
hestafla Hondu fjórgengis bens-
ínvél. Afköst eru 31 þúsund
rúmmetrar af lofti á mínútu.
Hann er auk þess hannaður til
að byggja upp léttfroðu sem nýt-
ist vel í slökkviliðstarfi m.a. til
að froðufylla og þannig verja
óbrunn in rými og slökkva
minni elda. Blásarinn er sá fyrsti
sinnar tegundar í slökkviliðum
hér á landi.
Blásarinn var prófaður á plani
slökkviliðsstöðvarinnar og vakti
það óskipta athygli vegfarenda
sem stoppuðu til að fá svör við
spurningum sínum. Einn úr
yngstu kynslóðinni stóðst ekki
mátið og fór að vaða í froðunni,
fannst efnið greinilega einkenni-
legt. Þá komu hárgreiðslumeist-
arar sem sögðu froðuna vera
sjampólegt fyrirbæri.
BS kaupir froðu- og reykblásara