Víkurfréttir - 03.03.2005, Blaðsíða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Vals
fimmtud
ags
EFTIR VAL KETILSSON
Veikara kynið
Stundum er sjónvarpið svo dapurt að flettingar á fjarstýringunni
duga ekki til. Jafnvel þó stöðvarnar séu tæplega þrjátíu! Í liðinni
viku endaði ég á Gulla gítarleikara á Omega stöðinni enda gott,
öðru hvoru, að hlusta á bænarorð og söngva í lok dagsins. Sérstak-
lega hjá Gulla, sem syngur af svo mikilli innlifun og kærleika. Að
þessu sinni var hann með viðmælanda hjá sér og að venju töluðu
þeir um Drottins orð og vegsemdir. Ég datt inn í umræðuna um
karlmanninn og hlutverk hans á heimilinu samkvæmt hinni helgu
bók, Biblíunni. Gulli var harður á því að hlutverk karlmannsins á
heimilinu væri mikilsvert og það væri hann sem bæri ábyrgð á veik-
ara kyninu og börnunum. Hann var svo harðákveðinn í framsögu
sinni að viðmælandinn varð að taka það fram að konan væri að
sjálfsögðu ekki kúguð við þessar aðstæður, sem Gulli lýsti. Ábyrgðar-
sviðið væri einfaldlega mikið.
Það er þó nokkuð langt síðan sögurnar í hinni helgu bók voru rit-
aðar og ýmislegt breyst á liðnum öldum. Á allra síðustu árum hefur
veikara kyninu nefnilega vaxið fiskur um hrygg og má segja að brátt
líði að þeim tímamótum að þær taki alfarið við. Eða svona næstum
því! Að minnsta kosti fannst mér mikið til þess koma þegar ung
kona var kosin í stól forstjóra Flugleiða um daginn, þvílíkan karla-
stól að það hálfa væri nóg! Undanfarin ár hafa nemendur í Háskóla
Íslands verið að tveimur þriðju hlutum kvenfólk og þetta hlutfall
er síður en svo að jafnast. Um jólin fengu heiðurskonur ættaðar af
Suðurnesjum, mikil og góð verðlaun í viðskiptalífinu, önnur hlaut
viðskiptaverðlaun ársins 2004 fyrir að hafa skarað framúr í viðskipta-
lífinu á Íslandi og hin var kosin frumkvöðull sama árs. Verðlaunin
sem þær Guðfinna S. Bjarnadóttir og Aðalheiður Héðinsdóttir
hlutu, voru handsmíð annarrar heiðurskonu ættaðrar að sunnan,
Elísabetar Ásberg og afhenti viðskipta- og iðnaðarráðherra, frú Val-
gerður Sverrisdóttir, þeim verðlaunin við hátíðlega athöfn. Allar eru
þessar manneskjur verðugir fulltrúar hins veikara kyns! Halelúja!
Í ljósi alls þessa er ég harðákveðinn að sýna hver ber ábyrgðina á
mínu heimili um helgina. Ég mun ráða ríkjum á heimilinu enda
frúin á helgarvakt og fjarri góðu gamni, nema svona rétt yfir blánótt-
ina. Kemur svo að segja bara heim til að sofa. Við tekur allsherjar
skipulagning, þar sem ég hef undirbúið t.d. hvað eigi að borða, hvað
eigi að gera, hversu lengi eigi að vaka fram eftir, hversu lengi eigi
að sofa fram eftir og svona mætti lengi telja. Í þetta skiptið eru þó
nokkur atriði á tossalistanum og því er ekki um annað að ræða en
að forgangsraða því sem á honum er. Ætti ég að byrja á því að ryk-
suga og skúra eða viðra motturnar og skipta um á rúminu? Ætti ég
að strauja fatahrúguna á laugardag eða sunnudag? Það hefur algeran
forgang að skutla táningnum á æfingu áður farið er að versla. Verð
að leggja mig fram um að elda eitthvað gott handa krökkunum áður
en frúin kemur heim. Má þó ekki gleyma að kæla hvítvínið handa
henni fyrir Idolið. Það er nefnilega ég sem ræð og ber alla ábyrgð!
Hvalsneskirkja
Sunnudagurinn 6. mars:
4. sunnud. í föstu.
Æskulýðsdagurinn
Safnaðarheimilið í Sandgerði
Gospel guðsþjónusta kl. 20:30.
Garðvangur
Helgistund kl. 15:30.
NTT -Níu til tólf ára
starf er í safnaðarheim-
ilinu í Sandgerði
á þriðjudögum kl.17.
Safnaðarheimilið Sæborg
Alfa-námskeið kl 19.
á miðvikudögum
Sóknarprestur
Útskálakirkja
Sunnudagurinn 6. mars
4. sunnud. í föstu
Æskulýðsdagurinn
Gospel guðsþjónusta kl. 16:30
Garðvangur
Helgistund kl. 15:30
NTT -Níu til tólf ára
starf er í safnaðarheimilinu
á fimmtudögum kl.17.
Safnaðarheimilið Sæborg
Alfa-námskeið kl. 19
á miðvikudögum.
Sóknarprestur
Fimmtudaginn 10. mars n.k. kl. 20:00 mun Sigmundur Ernir Rúnarsson, fjölmiðla-maður og ljóðskáld, lesa upp úr bók sinni
Barn að eilífu sem út kom fyrir síðustu jól.
Bókin, sem er í senn spennandi og hreinskilin
frásögn af óvenjulegu lífshlaupi föður og dóttur,
hefur vakið mikla athygli og umtal. Þetta er
einstök og áleitin uppeldissaga þar sem flestar
kenndir mannsins kallast á í áhrifamiklu uppgjöri
við lífið sjálft. Bókin hefur fengið þá dóma að
vera einstaklega vel skrifuð, einlæg og áhrifamikil
frásögn sem hreyfir við lesandanum og á erindi
til allra.
Upplesturinn verður í sal Verslunarmannafélags
Suðurnesja að Vatnsnesvegi 14 í Reykjanesbæ.
Umræður verða á eftir og kaffi á könnunni.
Barn að eilífu hjá Þroskahjálp
Þann 3. mars verður Eysteinn
Jónsson, Garðbraut 51,
Garði 70 ára. Af þvÌ
tilefni munu þau hjónin
taka á móti gestum heima
hjá sér frá kl. 20.00.
Fjölskyldan
Elsku systur, Guðlaug
og Dagbjört.
Til hamingju með 6 og 7 ára
afmælin 22. feb. og 7. mars.
Pabbi og mamma.
Elsku Sigríður Eva.
Til hamingju með 6 ára afmælið
þitt 1. mars. Kveðja mamma,
pabbi og Sandra Dögg.
Elsku Sonja Dögg.
Innilega til hamingju með
25 ára afmælið þitt.
Kær kveðja, mamma, Guffi og co.
Til hamingju með
afmælisdaginn elsku Þröstur.
Mamma, pabbi, Kolbrún
Inga, Viktoría, amma og afi.
Til hamingju með daginn
elsku Þröstur. Frá allri fjölsk.
Elsku Elín Rós okkar.
Innilegar hamingjuóskir með
4 ára afmælið 4. mars.
Mamma, pabbi, Margrét
Ína og Karen Ýr.
Berglind Líf verður 11 ára á sunnu-
daginn. Til hamingju með daginn
elsku Berglind okkar. Mamma,
pabbi, Grétar Ágúst og Erna Rós.
Elsku Elín Rós okkar.
Til hamingju með 4 ára
afmælið 4. mars.
Amma og afi Höfnum
Kirkjustarfið
Infrarex.com netverslun
Infrarex rafeindahitatæki eyðir
bólgu og er verkjastillandi fyrir
t.d. liðagigt, slitgigt, brjósklos,
vefjagigt, bakverk, axlameiðsl,
slitna hásin og tognun. Verð
aðeins kr. 6.999. Póstsent um
allt land. Upplýsinga og pant-
anasími í 865 4015.