Víkurfréttir - 03.03.2005, Page 34
34 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
������������
��������������������������������
����������������
Niðurstaða vísindamanna sýnir að svita-lyktareyðar eru ekki með öllu hættu-lausir þar sem flestir þeirra innihalda ál
sem sýnt hefur að sest að í líkamanum, einkum
í heilavef og virðist ál leysast auðveldlega upp í
líkamanum . Þetta hefur einna helst verið nefnt
í tengslum við hrörnunarsjúkdóm í heila sem
nefnist Alzheimer’s sjúkdómur en fundist hefur
mun meira magn af áli í heilavef hjá sjúklingum
sem þjást af þessum sjúkdómi. Vísindamenn
geta þó ekki fullyrt að þetta sé aðal sökudólgur-
inn þar sem ál á greiða leið inn í líkamanum úr
ýmsu öðru eins og álpappír og eldunaráhöldum
s.s. pottum og pönnum. Þetta vekur mann óhjá-
kvæmilega til umhugsunar hvort ekki væri ör-
uggara að sleppa með öllu notkun á svitalykt-
areyðum en það er ekki endilega lausnin. Öll
þurfum við að svitna og einmitt leið líkamans
til að losa sig við úrgangsefni og af hverju ættum
við að vilja stífla svitaholurnar og hamla starf-
semi þeirra?? Vissulega er það ekki fýsilegt að
lykta illa en oftar en ekki stafar sterk og illa
lyktandi svitalykt af völdum ofvexti baktería og
sveppa í meltingarvegi vegna lélegrar meltingu,
mikla sykurneyslu og aðra óhollustu. Þar sem
enn er óvíst um hversu mikil áhrif svitalykt-
areyðar hafa á líkamann er þó vissara að skipta
þeim út sem innihalda ál (sjá innihaldslýsingu:
aluminum) í stað náttúrulegra svitalyktareyða
sem leyfa líkamanum að skila hlutveri sínu með
hjálp virkra bakteríudrepandi jurtailmefna!
SVITALYKTAREYÐIR - HÆTTULAUS?
©FRÉTTASÍMINNSÓLARHRINGSVAKT898 2222
Ný sýning opnaði í Suðsuðvestri sýninga-rými samtímalista á Suðurnesjum um sl. helgi. Að þessu sinni sýna átta nem-
endur úr myndlistadeild Listaháskóla Íslands
undir leiðsögn Ingólfs Arnarssonar prófessors.
Sýningin ber nafnið Suðsuðsuð again og eru
verkin unnin í ólíka miðla m.a. videó-verk, ljós-
myndir, útsaumur, teikningar og fl.
Sýnendur eru:
Alexandra Litaker, Arnar Halldórsson, Berglind
Jóna Hlynsdóttir, Klara Þórhallsdóttir, Kristjana
Rós Oddsdóttir, Lars Skjelbreia, Ólöf Dómhildur
Jóhannsdóttir og Soffía Jóhannsdóttir
Sýningin í Suðsuðvestur er staðsett á Hafnargötu
22 í Reykjanesbæ og er netfangið sudsudvestur.is.
Rýmið er opið fimmtudaga og föstudaga frá 16.00
til 18.00 og um helgar frá 14.00 til 17.00. Sýningin
stendur til 13. mars. Suðsuðvestur er undir vernd-
arvæng Listasafns Reykjanesbæjar.
SUÐSUÐSUÐ AGAIN
Nudd stof an Betri líð an og
Brúnkustofan Magic Tan hafa
flutt sig um set og eru núna á
Hafnargötu 48, á móti Vínbúð-
inni. Mikið úrval af Aloe Vera
vörum fra Banana Boat, Forever
Living Products og Natural life.
Heilsuvörur og gjafavörur s.s
ilmkjarnaolíur, reykelsi, kerti,
slökunardiskar, tarotspil, plaköt,
nuddvörur, ilmvötn, snyrtivörur,
skartgripir, erótískar vörur.
Nudd, höfuðbeina- og spjald-
hryggsmeðferð, reiki, Trimform
og hinn frábæri brúnkuklefi
Magic Tan sem gerir ykkur fal-
lega gullinbrún á innan við mín-
útu, engir útfjólubláir geislar,
engin hætta á húðkrabbameini,
tilvalið fyrir ferminguna, brúð-
kaupið, nú eða bara djammið.
Fermingar tilboð í klef ann,
móðir og dóttir, faðir og sonur,
komi saman en borgi fyrir einn.
Opnunartilboð 2 fyir 1 í Magic
Tan fimmtudag-laugardag. 10
tímar í Trimforn kr. 6900.
Suðurnesjabúar verið velkomin
að kíkja við.
Kveðja, Ingibjörg Þorsteins-
dóttir og Unnur Grétarsdóttir.
Fluttar