Víkurfréttir - 22.05.2014, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 22. maí 2014 • VÍKURFRÉTTIR14
-fréttir pósturu vf@vf.is
Kjörskrá Sveitarfélagsins Garðs vegna sveitarstjórnarkosninga
sem fram fara 31. maí liggur frammi almenningi
til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Garðs
frá 21. maí fram að kjördegi
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar.
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Garðs
SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR
LAUGARDAGINN 31. MAÍ 2014
KJÖRFUNDUR
vegna sveitarstjórnarkosninga í
Sveitarfélaginu Vogum 31. maí 2014
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00
Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli
Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna sveitarstjórnarkosninga
liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu
Sveitarfélagsins Voga fram að kjördegi.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis
persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga
Grunnskólakennarinn og verkefnastjórinn Jóhanna
Helgadóttir bauð leikskóla-
börnum í fylgd með leikskóla-
kennurum sínum upp á leik-
sýningu í Holtaskóla á dögunum.
Leiksýningin sem fékk nafnið
„Nemo segir frá“ var hluti af
sýningunni „Fiskar og furðu-
skepnur“ sem Jóhanna setti upp
í Holtaskóla vikuna 12. – 16. maí.
Þar voru til sýnis fiskabúr sem
nemendur í Holtaskóla bjuggu til
fyrr í vetur og var liður í lestrará-
taki við skólann. Jóhönnu þótti
mikið til fiskabúranna koma og
þótti við hæfi að sýna þau. Hún
Ósvífinn
ökumaður
uÖkumaður um
tvítugt var staðinn
að ótal brotum á
umferðarlögum
í m i ð b æ Ke f l a -
víkur í vikunni sem leið.
Háttarlag hans vakti athygli
lögreglunnar á Suðurnesjun
þegar hann reykspólaði við
Keflavíkurhöfn, þannig að
það söng og hvein í bílnum
og mikinn reyk lagði frá
honum. Síðan gaf ökumaður í
af staðnum og mældist bifreið
hans þá á 102 km hraða þar
sem hámarkshraði er 50 km á
klukkustund.
Lögreglumenn stöðvuðu för
hans og bifreiðin sem hann
ók reyndist vera ótryggð, án
skráningarnúmera og sjálfur
hafði hann ekki ökuskírteini
meðferðis . Lögreglumenn
lásu honum pistilinn og gerðu
honum grein fyrir því að at-
hæfið kostaði hann 90 þúsund
krónur, 3ja mánaða ökuleyfis-
sviptingu og þrjá refsipunkta í
ökuferilsskrá.
skráði því sýninguna sem viðburð
á Barnahátíð Reykjanesbæjar og
ákvað að ganga skrefinu lengra og
setja upp leiksýningu í fiskabúr-
inu sem nemendur hennar í 9. JH
bjuggu til.
Fiskabúr þeirra var stærra en
önnur og var strax hugsað sem
leikbúr. Nemendur hennar bjuggu
til fígúrur í fiskabúrið úr þekktum
teiknimyndum á borð við Svamp
Sveinsson, Dóru og Nemo. Allar
fígúrurnar voru gerðar úr pappa
og sumar þeirra voru festar á prik
til þess að nota sem leikbrúður í
búrinu.
„Ég gat ekki sleppt því að nýta af-
rakstur vinnu nemenda minna á
einhvern hátt,“ segir Jóhanna.
Leikskólar Reykjanesbæjar fengu
boð frá Jóhönnu um leiksýninguna
og var fljótt að fyllast. Í fyrstu var
boðið upp á 5 sýningar, en vegna
mikillar eftirspurnar þurfti að
bæta 3 sýningum við. Í hvert skipti
mættu á milli 24 - 30 börn. Þó voru
tveir stærstu hóparnir 36 og 40
börn. Það mættu því í kringum 160
börn á leiksýninguna „Nemo segir
frá“ þessa þrjá daga sem sýnt var.
Leiksýningin var endursögn á
Disney sögunni Leitin að Nemo,
þannig að Jóhönnu fannst við hæfi
að gefa leikskólunum bókina að
gjöf í lok sýningar. Bókargjöfin er
styrkt af Landsbankanum og Edda
útgáfu. Með bókinni fylgir upp-
lestur á sögunni á geisladisk.
Það var samstarfsfólk Jóhönnu í
Holtaskóla sem hjálpaði henni að
setja upp sýninguna og tvær sam-
starfskonur hennar sem máluðu
hana í hlutverk hafmeyjarinnar Jó-
hönnu sem tók á móti börnunum
í anddyri Holtaskóla, með bleiku
bókina sína og grænu töskuna.
Börnin voru leidd upp í kennslu-
stofuna hennar Jóhönnu þar sem
ævintýraheimur Nemo beið þeirra.
Tónlist úr hafinu ómaði um stof-
una sem undirspil, börnin sátu á
gólfinu á teppum og fylgdust með
af miklum áhuga þegar Nemo sagði
frá ævintýri sínu.
Leikskóla-
börn fylltu
átta sýningar
n Leiksýningin Nemo segir frá:
Hlutavelta til styrktar Rauða krossinum
Þeir Aron Darri Hilmarsson, Arnþór Ingi Arnarsson og Jón Arnar
Birgisson héldu tombólu og gáfu Rauða krossinum á Suðurnesjum
andvirðið. Einnig komu þeir með fullan poka af leikföngum sem var
komið áleiðis til Fjölsmiðjunnar. Rauði krossinn á Suðurnesjum sendir
þessum duglegu drengjum þakkarkveðjur.