Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.05.2014, Page 19

Víkurfréttir - 28.05.2014, Page 19
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudagurinn 28. maí 2014 19 Á gott tengslanet Hafdís Eva er umvafin góðu tengslaneti. Hún er dóttir Páls Kristjássonar og hún á einnig stjúpmömmu, Tinnu Fenger, og stjúppabba, Óskar Inga Víglunds- son. Framtíðin er björt hjá þess- ari fjölhæfu stúlku. Ásamt því að vera góð leikkona er hún afburðar- nemandi sem fékk 10 í samræmdu prófunum og hefur hlotið verð- laun sem sundkona. „Ég æfi sund sex daga vikunnar. Annar pabbi minn, Óskar, er Íslandsmeistari í bekkpressu og hann er duglegur að taka mig með á hreystivöllinn. Svo hefur hinn pabbi minn, Páll, mikinn áhuga á kvikmyndagerð og leiklist og hvetur mig áfram í því.“ María bætir við að svo sé hlutverk sitt að láta allt ganga upp og minna hana á að vera líka tíu ára. Frá unga aldri hafi Hafdís Eva sýnt leikræna tilburði í daglegu lífi. „Þegar hún horfði á barnaefni horfði hún ekk- ert bara eða söng með. Hún sýndi öll leikrænu tilþrifin sem hún sá á skjánum og lék helst alla í leikritum sem hún horfði á. Svo þegar slökkt var á sjónvarpinu sá hún spegil- mynd sína þar og var mjög glöð. Hún ætlaði sér alltaf í sjónvarpið,“ segir María. Mikill skilningur hjá skólanum Þær mægður segja að hjá Háaleitis- skóla hafi henni verið sýndur mikill skilningur og sveigjan- leiki við gerð Vonarstrætis og hafi m.a. grínast með að það væri kominn rauður dregill fyrir framan skólann. María bætir við að það hafi auðveldað fjarveruna hversu góður námsmaður dóttir hennar er. „Mér finnst líka svo gaman að geta náð að hitta vini mína, staðið mig í skólanum og verið í þessu. Markmiðið er að fara til Hollywood. Ég er mjög sjálfstæð og svo gengur mér bara svo rosalega vel,“ segir Hafdís Eva, sem ætlar að láta alla sína drauma rætast. Það þarf ekki að segja mikið til að vera góður leikari, heldur nota svipi og slíkt. HAFIÐ SAMBAND sími 420 1030 • hljomaholl.is • info@hljomaholl.is MERKINES Í HLJÓMAHÖLL Erum byrjuð að taka á móti bókunum fyrir salinn Merkines í Hljómahöll fyrir fermingar 2015. Salurinn tekur 120 manns í borðhald. Innifalið í leigu á salnum eru stólar, borð, dúkar, hljóðkerfi, hljóðnemar, skjávarpi, sýningartjald, aðgangur að eldhúsi og kælum, borðbúnaður og þrif eftir veisluna. Í hlutverki Kollu í Vonarstræti.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.