Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.09.2014, Blaðsíða 48

Víkurfréttir - 04.09.2014, Blaðsíða 48
fimmtudagurinn 4. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR48 „Ég var fenginn til að sjá um hátíðina 2006 í þrjá mánuði og það varð að þremur árum. Var með ákveðna hug- myndir um hvern- ig við myndum breyta hátíðinni, sem miðaðist áður eingöngu við laugardaginn. Mínar tillögur voru að efla fimmtudag, föstudag og sunnudag,“ segir Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, en árið 2006 var hann ráðinn í þrjá mánuði til þess að stýra Ljós- anæturhátíðinni en endaði með því að starfa í þrjú ár. Öflugt og gott fólk lagði lið Ásmundur segist hafa verið með skemmtilegt og gott fólk með sér í öllum undirbúningi og nefnir í því sambandi Valgerði Guð- mundsdóttur, Steinþór Jónsson, Dagnýju Gísladóttur og Guðlaug Sigurjónsson. „Einnig var mikil- vægt í þessu ferli hversu öflugir starfsmenn þjónustuvers Reykja- nesbæjar voru og lögðu sig mikið fram. Einnig voru fulltrúar Mið- bæjarsamtakanna, Kristín í Kóda og Lilja í Cabo, mikilvægar í að virkja verslanir og þjónustuaðila til þátttöku. Geirmundur Kristinsson og Sparisjóðurinn áttu sinn stóra þátt í að hjálpa okkur við að láta hlutina verða að veruleika,“ segir Ásmundur og bætir við að í raun hafi Ljósanóttin tekið nokkur skref upp á við í einu stökki. Mikilvægt að flagga um bæinn Ein af áherslum Ásmundar var hvatning til íbúa Reykjanesbæjar um að flagga á föstudagsmorgni til þess að tengja umgjörðina við íbú- ana sjálfa. „Það var svona til þess að fólk áttaði á sig þegar það fór um bæinn að hátíðin væri hafin. Síðan kom Maggi Jóns með hugmyndina að árgangagöngunni árið 2007 og sú hugmynd steinlá og er orðin eitt af aðalnúmerum hátíðarinnar. Einnig byrjuðum við á þessu með súpuna niðri í bæ og fengum Axel Jóns með okkur. Það var gert til að minnast Ástu Olsen, sem bjó í Fis- hershúsi. Sem ung kona hafði hún stutt við bakið á ungum börnum í kringum jólin og gefið þeim að borða. Þetta er enn í gangi og góður siður,“ segir Ásmundur. Hátíðin aldrei meiri en fólkið Þá var einnig farið út í að hafa stórt útisvið, ljósabúnað og hljóðkerfi. Við fórum líka út í það 2006 að fá svið, ljósbúnað og hljóðkerfi. „Við breyttum umgjörðinni og það tókst okkur með stuðningi frá fjöl- mörgum fyrirtækjum. Svona há- tíðir verða þó aldrei meiri en fólkið sjálft og við vildum auka almenna þátttöku. Í framtíðinni verður lyk- illinn almenn þátttaka bæjarbúa. Ég var í þjóðhátíðarnefnd í Vest- mannaeyjum í mörg ár og sú hátíð hefur verið haldin í 140 ár. Þar sjá fjölskyldur um ýmsa þætti maður fram af manni. Ef fram heldur sem horfir þá verður Ljósanótt vonandi svipuð. Það er það sem mun gera hana svo mikilvæga fyrir fjölskyld- urnar,“ segir Ásmundur. Veðrið alltaf gott í hjartanu Ásmundur á frænku sem búið hefur í Keflavík í 75 ár. „Þegar Ljósanótt byrjaði fór hún að sjá ættingja sem hún hafði ekki séð í áratugi. Það sem er mikilvægast er að hún tengir saman fjölskyldurnar og kynslóðirnar. Mér finnst að að- koma mín, þeirra sem voru á undan mér og þeim sem hafa komið á eftir, hafi sameinast í því sem hefur skilað því að Ljósanótt hefur þróast eins og núna og er styrk og sterk hátíð,“ segir Ásmundur, sem sjálfur verður með árlegt heimboð fyrir sitt fólk sem býr víða um land en mun sameinast heima hjá honum. Hann kvíður ekki veðurspánni og segir að lokum: „Sama hvernig viðrar, ef Ljósanótt er í hjartanu þá er veðrið gott.“ Græjaðu skólann! Allt sem námsmaðurinn þarf Lenovo Y50 15,6” Verð: 199.900 kr. Öflugt skjákort og i7 örgjörvi fyrir leikina. 6 klst. 300 Lenovo Flex 2 15,6” Verð: 114.900 kr. Lipur og kraftmikil. Með HD snertiskjá. Lenovo Yoga 10” HD+ Verð: 51.900 kr. Skærasta stjarnan á svæðinu. Með innbyggðum standi. 10 klst. 18 klst. Lenovo U430 14” Verð: 149.900 kr. Létt og liðug með snertiskjá. 444 9900 www.omnis.isAkranesi Dalbraut 1 Borgarnesi Borgarbraut 61 Reykjanesbæ Tjarnargötu 7 -viðtal pósturu olgabjort@vf.is ■■ Þingmaður hefur fjórum sinnum komið að undirbúningi Ljósanætur: Lykillinn er almenn þátttaka bæjarbúa Sama hvernig viðrar, ef Ljósanótt er í hjartanu þá er veðrið gott
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.