Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.09.2014, Blaðsíða 34

Víkurfréttir - 04.09.2014, Blaðsíða 34
fimmtudagurinn 4. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR34 Umræðan um fóstureyðingu kom upp hjá þeim Steinunni og Garðari en það kom þó aldrei til greina. „Við hefðum getað komið í veg fyrir þetta og því fannst okkur að það væri hálf eigingjarnt af okkur að standa ekki og falla með þessu,“ segir Steinunn. Þau Steinunn og Garðar voru tiltölulega nýbyrjuð að hittast þegar í ljós kom að hún var ólétt. Það kom flatt upp á þau, sem og tíðindin að um tvíbura væri að ræða. „Það var mjög skrýtið og mjög mikið sjokk að uppgötva að ég gengi með tvíbura. Ég hafði ekk- ert umgengist nein börn og þurfti því að læra allt frá grunni,“ segir Steinunn. Hún viðurkennir að hafa verið skjálfandi hrædd við að segja pabba sínum frá því að hún væri ólétt. Foreldrar þeirra beggja brugðust hins vegar mjög vel við og voru rosalega jákvæð og hamingju- söm með þetta. „Foreldrar okkar eru búnir að vera yndislegir og við fáum mikla hjálp frá þeim,“ segir Steinunn. Verður skrýtið að eignast eitt barn Það virðist ekki v e r a e i n s a l - gengt að fólk e i g n i s t b ö r n jafn snemma á l í fsleiðinni og t íðkaðist áður fyrr. Það kemur sjálfsagt til með aukinni kröfu á háskólamenntun og meiri fræðslu um kynlíf. Aukin þátttaka kvenna á vinnumarkaði hefur þar einnig áhrif. Þannig að vera tvítug tveggja barna móðir er ekki svo algengt nú til dags. „Ég þekki ekkert annað núna en að eignast og sjá um tvö börn. Ég held að það verði skrýtnara að eignast bara eitt barn,“ segir Steinunn létt í bragði. „Það er mjög erfitt að sjá um tvíbura upp á eigin spýtur þegar annar aðilinn er að vinna. Þegar þeir voru mjög litlir þurfti ég mikla aðstoð. Við bjuggum á þriðju hæð í blokk þar sem erfitt var fyrir mig að fara með strákana út, ég fór því lítið út úr húsi. Þegar ég fór svo með þá út í burðarrúmi þá var það eins og hin svæsnasta líkamsrækt,“ segir Steinunn. Ekkert gaman að vera algjör hlussa með tíu sinnum stærri kúlu en hinar Þetta gekk brösulega í byrjun hjá þeim skötuhjúum. Bæði var með- gangan Ste in- unni erfið og eins voru drengirnir töluvert veikir og óværir fyrstu mánuðina eftir að þeir komu í heiminn. „Þeir sváfu ekkert og það var mikið grát ið.“ Þegar fjölskyldan bjó á Ásbrú kom upp myglusveppur í íbúðinni. „Þeir voru eyrnabörn fyrir en fengu a s t m a í k j ö l - farið af myglu- sveppnum,“ rifjar Steinunn upp. Hún þurfti að hætta vinnu snemma á meðgöngunni og var mikið heima við. „Margir tala um að það sé svo æðislegt á meðan meðgöngu stendur en ef ég á að segja eins og er þá var þetta hund- leiðinlegt,“ segir Steinunn og hlær. „Það er ekkert gaman að vera al- gjör hlussa með tíu sinnum stærri kúlu en hinar. Það er óþægilegt að hreyfa sig og sofa. Það var mikill léttir eftir að þeir fæddust að fá loks að sofa almennilega.“ Strákarnir sem heita Gunnar Gauti og Steinar Aron eru tveggja og hálfs árs og segir Steinunn að lífið sé talsvert auðveldara nú til dags. „Þeir eru hættir að vera kvefaðir núna eftir að hafa verið á astmalyfjum. Það er nýtt fyrir okkur, það er rosa- lega gaman núna hjá okkur. Mikið fjör og mikið talað,“ segir hún og brosir. Ég ætla að mennta mig, þar sem mig langar til þess að ganga vel í fram- tíðinni Steinunn segir þetta hafa verið erfitt tímabil en hún var einnig í námi samhliða barnauppeldinu. Kláraði stúdent með myglusvepp og tvö grátandi börn í íbúðinni - Steinunn Ósk Valsdóttir varð ung barnshafandi af tvíburum -viðtal pósturu eythor@vf.is Steinunn Ósk Valsdóttir er ung tvíburamóðir. Hún eignaðist tvíburastráka þegar hún var rétt að skríða í tvítugt. Hún segist fyrir fæðingu strákanna alls ekki hafa verið ábyrgðarfull manneskja. Sér hafi gengið illa í skóla, hafði ekki mikinn metnað eða sérstaka framtíðarsýn. Hún og barnsfaðir hennar Garðar Birgisson voru ekki búin að vera lengi saman þegar Stein- unn varð ólétt. Eyþór Sæmundsson blaðamaður ræddi við Steinunni um áskorunina að vera ungir foreldrar og ýmis samfélagsleg mál sem snúa að barnauppeldi. Alltaf líf og fjör á heimili þessarar ungu fjölskyldu. Gunnar Gauti og Steinar Aron eru töff tvíburar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.