Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.09.2014, Blaðsíða 53

Víkurfréttir - 04.09.2014, Blaðsíða 53
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 4. september 2014 53 Bókin Í sumar hef ég verið að lesa Maðurinn sem var ekki morðingi og Gröfin í fjallinu eftir Hjorth Rosenfeldt, höfund sjónvarpsþáttanna Brúin. Þetta eru sögur um réttarsálfræðinginn Sebastian Bergman sem leiðbeinir sænsku morðdeildinni í sakamálum. Það eru alls konar fléttur sem koma fram í bókunum og maður þarf að gefa sér góðan tíma í að lesa þær. Ég hef oftast lítinn tíma á veturna að lesa skáldsögur og er þá frekar að lesa eitthvað vinnutengt en gef mér tíma á sumrin til að detta niður í góðar skáldsögur. Ég er veikust fyrir spennusögum/krimmum og rithöfundar frá Norðurlönd- unum eru góðir í að skrifa þannig bækur. Sjónvarpsþættir Ég hef mjög gaman af raunveruleika- þáttum eins og American Idol og X-fac- tor. Fjölskyldan hefur líka þetta áhuga- mál þannig að föstudagskvöld eru sjón- varps-„partý“ kvöld hjá okkur. Svo er ég líka mikið fyrir ameríska spennuþætti, en í sumar þá hef ég verið að fylgjast með Crisis sem er um mannræningja sem rændu börnum mjög háttsettra foreldra í USA og fá foreldrana til að gera ýmislegt ólöglegt til að frelsa börnin sín. Og svo má ekki gleyma Orange is the new black, en þeir eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er gaman að fylgjast með Piper og "dömunum" í fangelsinu í sjálfsbjargarviðleitninni. Tónlistin Ég er mikil alæta á tónlist og hef gaman að því að fara á tón- leika og njóta góðrar tónlistar. Ég er sérstaklega hrifin af söng- konunni Pink og finnst hún standa upp úr í dag. Ég fór t.d. á tónleikana með henni þegar hún kom hingað til landsins 2004 og voru það einir bestu tónleikar sem ég hef farið á. Lagið hennar Just give me a reason er í miklu uppáhaldi og ég er með það sem hringitón í símanum mínu öðrum til mikillar gleði en ég er oft beðin um að svara ekki. Í mars fór ég líka á alveg frábæra tónleika hérna í Grindavík í tilefni að 40 ára kaupstaðarafmæli bæjarins, en þeir voru með Jónasi Sig. og ritvélum framtíðarinnar, Fjallabræðrum, Sverri Bergmann og lúðrasveitum Vestmannaeyja og Þorlákshafnar. Þetta voru alveg frábærir tónleikar og tónlistarmenn á heimsklassa. -afþreying póstur u eythor@vf.is Hringitónninn vekur lukku Jóna Rut Jónsdóttir, grunnskólakennari, 3ja barna móðir og nýkjörinn bæjarfulltrúi í Grindavík- urbæ er þessa dagana að hefja nýtt skólaár ásamt nemendum og sam- starfsfólki. Hún segir að lítið hafi verið um ferðalög hjá sér í sumar en hún fór á tvenn fót- boltamót í útilegu sem „soccermom“ á Rey Cup og Símamótið og í viku með manninum sínum til Tyrklands. „Það bjargaði algjörlega sólarlausa sumrinu á Íslandi og hlóð batteríin fyrir veturinn. Svo byrjar pólitíkin á fullu með haustinu og verður gaman að takast á við hana.“ RAUÐAKROSSBÚÐIN Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ 50 % afmælis- og ljósanæturtilboð. Opnunartímar Fimmtudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Föstudagar frá kl. 13:00 – 17:00 Fatnaður, skór og gjafavara Rauði krossinn á Suðurnesjum -ljósanótt í 15 ár -ljósanæturspjall Í fyrsta skipti í sögu Ljósanætur var hátíðardagskrá á stóra sviðinu á laugardagskvöld frestað. Þrátt fyrir það tókst hátíðin afar vel eins og allt- af og allir skemmtu sér hið besta þótt einhverjir söngtónar hafi ekki heyrst um Hafnargötuna á laugardagskvöld. Í fyrra var Parísartorgið afhjúpað og Vatnstankurinn fékk alvöru andlitslyftingu. Þá voru tvö bæjarhlið einnig afhjúpuð. Veðurguðir í óstuði ÁRIÐ 2013 Friðrik Daði Bjarnason Hvað ætlar þú að sjá? Ekkert planað nema auðvitað ful- geldasýningin, maður missir ekki af henni. Hver er eftirminnilegasta Ljósanóttin? Þegar ég lét mig hafa það að fara í fallturninn! Er svakalega loft- hræddur. Er eitthvað sem þú gerir alltaf á Ljósanótt? Já, labba um bæinn með vinunum. Kanntu textann við Ljósanæt- urlagið? Já, allavega hluta af honum. Hvað finnst þér skemmti- legast við Ljósanótt? Ætli það sé ekki djammið bara! Indíana Dís Ástþórsdóttir Hvað ætlar þú að sjá? Ætla alveg pottþétt að sjá Amba- dama allavega, og svo er maður náttúrlega alltaf jafn spenntur fyrir flugeldasýningunni. Hver er eftirminnilegasta Ljósanóttin? Eftirminnilegasta ljósanóttin er klárlega sem var í fyrra þar sem ég braut símann minn og eyðilagði hann þremur dögum eftir að ég fékk hann. Og mér fannst þetta geggjaður sími. Er eitthvað sem þú gerir alltaf á Ljósanótt? Nei ekkert svona sem ég man eftir. Kanntu textann við Ljósanæturlagið? Kann svona orð og orð hahah. Hvað finnst þér skemmti- legast við Ljósanótt? Bara fara niður í bæ og hitta allt fólkið og svo hefur dagskráin verið mjög fín alltaf. Elinora Guðlaug Einarsdóttir Hvað ætlar þú að sjá? Myndlistarsýningar. Hver er eftirminnilegasta Ljósanóttin? Þegar ég eyddi tugum þúsunda króna í leiktækin þegar ég var yngri og þegar pabbi þurfti að draga mig niður í bæ til að horfa á flugelda- sýninguna og þurfti liggur við að halda á mér allan tímann. Er eitthvað sem þú gerir alltaf á Ljósa- nótt? Labba niður í bæ og. Fer á sýningar Semecru í bænum. Kanntu textann við Ljósanæturlagið? Nei ekki allt, bara viðlagið. Hvað finnst þér skemmti- legast við Ljósanótt? Hvað það færist mikið líf í bæinn og alltaf nóg að gera. Elmar Þór Þórisson Hvað ætlar þú að sjá? Ég ætla að sjá flugeldasýninguna og tónleikana, það er alltaf i uppá- haldi. Hver er eftirminnilegasta Ljósanóttin? Eftirminnilegasta Ljósanóttin var þegar ég var í kringum 8 ára með vinum mínum og við sungum og fórum i öll tækin saman. Er eitthvað sem þú gerir alltaf á Ljósanótt? Ég horfi alltaf á flug- elda sýninguna og horfi á ljósin á berginu skína skært. Kanntu textann við Ljósanæt- urlagið? Ég man ekki allan textann ennþá en get sungið vel með laginu. Hvað finnst þér skemmti- legast við Ljósanótt? Það skemmtilegasta við Ljósanótt er að vera með vinum og allt lífið niður í bæ er geðveikt, flugeldar- sýninginn er alltaf í uppáhaldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.