Víkurfréttir - 18.01.2007, Blaðsíða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 3. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Góðkunningi af Keflavík-urflugvelli stendur þessa
dagana á bílaplaninu við Bið-
skýlið í Njarðvík. Þar hefur
Atlantsolía komið fyrir forláta
bíl í slagtogi við bensínstöð
sína í Reykjanesbæ. Bíllinn er
notaður til að vekja athygli á 2
krónu afslætti af eldsneyti hjá
Atlantsolíu í Reykjanesbæ en
tilboðið stendur í 3-4 vikur.
Segja má að bíllinn sé kom-
inn aft ur á heima slóð ir en
í rúman áratug þjónaði hann
sem póstbíll hjá Varnarliðinu.
Á dögunum keypti Atlantsolía
bílinn og „pimpaði“ hann upp
eins og kallað er. Bílinn heitir
Grumman S-10 og er smíðaður
sem póstbíll. Hann er að árgerð
1994 og reyndar sá eini sinnar
tegundar á landinu. Hér er um
að ræða Chevrolet S-10 grind
og vél að upplagi en margir
muna eftir slíkum bíl sem Blazer
en nokkrir slíkir eru enn til á
götum landsins.
Það sem gerir þennan bíl öðru-
vísi er sérstök hönnum sem og
saga fyrirtækisins sem hannaði
hann. Grumman fyrirtækið,
sem hannaði bílinn, var stofnað
árið 1929 af Leroy Grumman.
Fyrstu áratugina lagði fyrirtæki
áherslu á að þróa lausnir fyrir
bandaríska flugherinn en flestar
flug vél ar þess báru einmitt
nafnið Grumman. Fyrirtækið
óx og dafnaði næstu áratugina
og hafði orðspor fyrir að búa til
hágæða vélar.
Á bestu árum fyrirtækisins
framleiddi það meðal annars
orrustuþotur og ýmsa hluti
fyrir geimferðaáætlun Bandaríkj-
anna, m.a. í Appollo geimfarið.
Handbragð flugvélaframleiðand-
ans má einmitt sjá á smíðinni
á bílnum því öll yfirbygging er
hnoðuð með flugvélahnoðum
og sama ál er notað í orrustu-
þotur.
Saga Grumman póstbílsins nær
til 8 unda áratugarins þegar UPS
eða póstþjónusta Bandaríkjanna
leitaði tilboða í hinn fullkomna
póstbíl.
Bílnum var ætlað að vera ábyggi-
legur, með eiginleika jeppa, vera
með stýri hægra megin, svo póst-
urinn geti afhent póst án þess
að fara út úr farartækinu, og að
auki hafa sem styðstan beygju-
radíus og vera með gírkassa sem
þyldi mikinn togkraft. Síðast
og ekki síst skyldi bíllinn vera
léttur og varinn með stuðurum
sem ekki ættu neina sína líka.
Skemmst er frá því að segja að
Grumman fyrirtækið var talið
hafa hannað bíl sem stæðist
alla þá eiginleika sem óskað var
eftir. Eins og fram hefur komið
byggir hönnunin á Chervrolet
Blazer S-10 með minnstu vél
sem boðið var upp á. Er hún 2.2
lítra með beinni innspýtingu og
skilar 120 hestöflum.
Þeir sem vilja skoða bíl inn
nánar geta barið hann augum á
bílaplaninu við Biðskýlið í Njarð-
vík en þar er einnig að finna
bensínstöð Atlantsolíu í Reykja-
nesbæ.
Góðkunningi af Vellinum
við Biðskýlið í Njarðvík