Víkurfréttir - 18.01.2007, Side 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 3. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Markmið verkefnisins er að breyta lífsstíl Suður-
nesjamanna með kerfisbund-
inni hreyfingu og heilsueftir-
liti. Hjálmar sagði þetta vera
stærsta heilsuverndarátak sem
ráðist hafi verið í á afmörkuðu
svæði á Íslandi, en í því felst
að íbúar á svæðinu, 40 ára og
eldri, skrá sig til þátttöku og
mæta reglulega í eftirlit hjá fyr-
irtækinu InPro sem hefur að-
setur í húsi Lyfju á Hringbraut
í Reykjanesbæ. Þar er blóð-
þrýstingur og blóðfita mæld
til að koma auga á áhættuþætti
sem benda til hjartasjúkdóma.
Þá fá þátttakendur svokall-
aðan hreyfiseðil sem þeir nota
til að skrá hjá sér upplýsingar
úr prófunum og til að halda
æfingadagbók.
„Við ætlum að ná til allra Suð-
urnesjabúa 40 ára og eldri og
skima þá sem eru í hættu og
koma öðrum til heilbrigðara líf-
ernis en við erum almennt að
stunda í dag,“ sagði Hjálmar í
viðtali við Víkurfréttir eftir
kynninguna.
Samstarfsaðilar verkefnisins eru
fjölmargir, þar á meðal sveitar-
félögin á Suðurnesjum, stéttarfé-
lögin, HSS, FS, Golfklúbbur Suð-
urnesja, Glitnir og líkamsrækt-
arstöðvarnar Lífsstíll, Perlan og
Helgasport. Þar má líka nefna
Íþróttaakademíuna sem mun
bjóða upp á fjölbreytta dagskrá
í sambandi við átakið sem felur
í sér margs konar fróðleik og
hreyfingu.
„Þetta sýnir okkur að samfé-
lagið hér á Suðurnesjum ætlar
að taka höndum saman um að
breyta lífstíl og draga úr þeim
áhættuþáttum sem sannarlega
eru hér til staðar“, sagði Hjálmar
og bætti við að lokum:
„Ég hef þessa reynslu sjálfur og
ég veit hvaða gildi það hefur
að hreyfa sig og borða rétt. Við
höfum horft á sorgleg dæmi síð-
ustu daga þar sem fólk á besta
aldri er að falla snögglega frá
og við viljum koma í veg fyrir
slíkt með þessu átaki og til þess
þurfum við að breyta lífsstíl
og það gerum við með því að
sparka í rassinn hvert á öðru.“
Eftir kynningu á námskeiðinu
voru bæjarstjórar og fulltrúar
stéttarfélaganna teknir í prufu.
Ekki voru niðurstöður gerðar
opinberar en ekki hefur enn
heyrst af óvæntum heilsubótar-
fríum úr þeim ranni.
Garður er eina sveitarfé-lagið á Suðurnesjum með
breytta útsvarsprósentu fyrir
tekjuárið 2007. Þar var hún
hækkuð úr 12,70% í 13,03%.
Önnur sveitarfélög eru með
sömu út svarspró sentu og
undanfarin ár. Reykjanesbær
og Sand gerði með 12,70%
og Vogar og Grindavík með
13,03%.
Sveitarfélögin geta ákveðið út-
svar á bilinu 11,24% til 13,03%.
Meðalútsvar er 12,97% en 61
sveitarfélag af 71 innheimtir há-
marksútsvar. Aðeins þrjú sveit-
arfélög í landinu eru með lág-
marksútsvar.
Hjálmar blæs til
heilsuverndar
Útsvarsprósenta
óbreytt nema í Garði
TÍÐNI HJARTAÁFALLA og dauðsfalla þeim tengdum er mun meiri á Suðurnesjum en í
öðrum landshlutum. Þetta kom fram í máli Hjálmars Árnasonar, alþingismanns og formanns
Hjartaheilla á Suðurnesjum, en til að mæta því hefur verið hrundið af stað forvarnarverkefn-
inu Heilsuefling á Suðurnesjum.
Heilsuefling á Suðurnesjum:
Púlsinn tekinn á Árna Sigfússyni og Hjálmari Árnasyni á dögunum.