Víkurfréttir - 18.01.2007, Qupperneq 23
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 18. JANÚAR 2007 23STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Víkurfréttum bárust yfir 300 ábendingar um fólk
og fyrirtæki sem gerðu góða
hluti á síðasta ári og komu
nokkrir sterklega til greina.
Meðal þeirra má nefna:
Hjólagarparnir í Hjólað til góðs
Þ e i r S i g -
m u n d u r ,
J ó h a n n e s ,
Gestur og
Júlíus unnu
g r í ð a r l e g t
afrek er þeir hjóluðu hringinn
í kringum landið á 10 dögum
síðasta sumar og söfnuðu rúm-
lega þremur milljónum króna
sem runnu til Umhyggju, sem
eru regnhlífarsamtök til styrktar
langveikum börnum.
Fjóla, Guðmundur, og Huginn
Fjóla og Guð-
mu n du r h a f a ,
líkt og Bergþóra
og Hj ör le i f ur,
vakið athygli fyrir
baráttu barns þeirra við erfið
veikindi. Huginn Heiðar er nú
orðinn ríflega tveggja ára og er
á hægum en vonandi öruggum
batavegi. Hann kemur oft heim
í heimsókn en vonandi verður
heimferðin varanleg innan tíðar.
Björn Ingi Knútsson,
flugvallarstjóri
Það voru ófá verk-
efnin sem féllu
undir Íslendinga
þegar Kaninn fór
og mæddi mikið
á Birni Inga og hans fólki í Flug-
málastjórn á Keflavíkurflugvelli.
Þau voru vel í stakk búin og
gekk sú yfirfærsla hnökralaust.
Tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli
Aldrei hefur jafn mikið af fíkni-
efnum verið gert upptækt á einu
ári eins og í fyrra.
Hjálmar Árnason
Steig upp úr alvar-
legum veikindum
og sneri tvíefldur
aftur til vinnu.
Hann stefnir hátt
á nýju ári og vill leiða lista Fram-
sóknar í Suðurkjördæmi.
Á meðal þess sem
Hjörleifur og Bergþóra
fengu við afhendinguna
er dekurdagur fyrir þau
tvö í Bláa Lóninu.
Mikil starfsemi er hjá Sálarrannsókn-arfélagi Suðurnesja þessa dagana og
fólk mjög áhugasamt um það hvernig árið
framundan gæti hugsanlega orðið.
Miðlarnir Guðrún Hjörleifsdóttir og Lára Halla
Snæfells verða hjá okkur 25. janúar og Skúli
Lórenzson þann 31. janúar. Opið hús verður
þann 31. janúar en það var nánar auglýst í
næsta blaði Víkurfrétta.
Þá vekjum við athygli á því að salur félagsins er
laus til útleigu 1. apríl 2007. Þá eru Þórhallur
Guðmundsson og Þórunn Maggý væntanleg
bráðlega.
Upplýsingar og tímapantanir í síma: 4213348
og 866 0345.
Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja
Frá Sálarrannsóknarfélaginu