Víkurfréttir - 18.01.2007, Qupperneq 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 3. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Álver í Helguvík er einn þeirra möguleika sem
nú er rætt um
til atvinnuupp-
byg g i ng ar á
Suðvesturhorn-
inu. Þa ð er
líka talað um
álver í Ölfusi
og stækkun í
Straumsvík.
Sá sem hér ritar hefur lengi
verið talsmaður þess að koma
upp orkufrekum iðnaði á Ís-
landi. Til þess á landið mikið
af hagkvæmum og umhverfis-
vænum orkugjöfum. Um langt
skeið gekk þetta frekar treglega.
Hver man ekki Keilisnes í því
sambandi.
Síðustu ár hefur það dæmi mjög
snúist við og eftirsókn eftir
stóriðjuuppbyggingu á Íslandi
er nú mikil og vafamál að skyn-
samlegt sé að hlaupa eftir henni
allri. Álver á dýru landi á suð-
vesturhorni landsins orkar mjög
tvímælis. Á öllu þessu svæði er
ofhitnun í hagkerfinu og ekk-
ert sem bendir sérstaklega til að
það breytist á næstu misserum
eða árum. Hið fyrirhugaða álver
í Helguvík mun bitna á náttúru
svæðsins og lífsgæðum þeirra
sem næst svæðinu búa. Slík fórn
er því aðeins réttlætanleg að al-
varlegur skortur sé á atvinnu en
svo er ekki.
Rannsóknir benda til að á
næstu árum geti djúpborun á
jarðhita opnað okkur leið til að
virkja meira með minni tilkostn-
aði fyrir umhverfi. Þar með
mætti hlífa náttúruperlum eins
og Brennisteinsfjöllum, Urriða-
fossi og Ölkelduhálsi svo dæmi
séu tekin. Þegar saman fer að
tæknin virðist þannig rétt á
næsta og aðstæður í efnahagslíf-
inu kalla frekar eftir því að við
hægjum sýnist mér allt styðja
það að stóriðjuáformum á fyrr-
greindum stöðum á suðvestur-
horninu verði slegið á frest.
Suðurnesjamenn hafa reynslu af
því að treysta í of miklum mæli
á einn stóran atvinnurekanda. Í
farsælli atvinnuuppbyggingu er
fjölbreytni lykilatriði. Á Suður-
nesjum eru möguleikarnir fleiri
og magnaðri nú eftir að herseta
bandaríkjamanna er úr sögunni.
Einn þeirra kosta sem undir-
ritaður hefur fyrr talað fyrir er
að koma þar upp alþjóðlegri
skiptistöð fyrir flug milli Asíu
og Ameríku. Samhliða mætti
gera gömlu herstöðina að frí-
verslunarborg. Umfang slíkrar
starfssemi getur orðið gríðarlegt
án þess að byggja á einum eða
fáum viðskiptaaðilum.
Til þess að möguleiki sé á upp-
byggingu sem þessari er mikil-
vægt að við stjórnvöld á Íslandi
verði þeir menn sem sjá víðar
um veröldina en í eitt herbergi
í Evrópu. Og hafi jafnframt það
víðsýni til að bera í atvinnu-
málum að geta horft á fleiri
kosti en stóriðjur og orkusölu,
svo ágætir sem þeir kostir þó
geta verið þar sem þeir eiga við.
Bjarni Harðarson
Höfundur er bóksali á Sel-
fossi og sækist eftir öðru sæti
á lista Framsóknarflokks-
ins í Suðurkjördæmi
Á l au g ard a g i n n k emu r ganga framsóknarmenn
í Suðurkjördæmi til kosninga
í prófkjöri sínu. Ræðst þá
hverjir skipa lista flokksins í
kjördæminu í Alþingiskosn-
ingum í vor. Ég hef gefið kost á
mér í annað sæti listans.
Á undanförnum vikum hef ég
háð kosninga-
baráttu mína.
Ég hef byggt
framboð mitt
á g ö m l u m
gildum Fram-
sóknarflokksins
í bland við hug-
sjónir nýrrar
kynslóðar og aðferðafræði nýrra
tíma. Á fundum mínum um
kjördæmið á síðustu vikum hef
ég kynnt málefni mín og tekið
púlsinn á hinum almenna Sunn-
lendingi. Hefur þessi tími verið
sérstaklega ánægjulegur þar
sem ég hef styrkst í þeirri trú að
ég hafi margt fram að færa fyrir
íbúa kjördæmisins og landsins
alls.
Vegna fjölbreyttra starfa minna
í kjördæminu, innan skógrækt-
argeirans, í landbúnaði og í fyr-
irtækjarekstri, tel ég mig hafa
yfirgripsmikla þekkingu á öllu
því sem skiptir kjósendur kjör-
dæmisins mestu máli. Vegna
reynslu minnar í félags-, íþrótta-
og mannúðarmálum tel ég mig
hafa burði til þess að að taka að
mér leiðtoga- og ábyrgðarstöður
innan flokksins og á þingi.
Það er ósk mín að kjósendur
í Suðurkjördæmi treysti mér
til áframhaldandi góðra verka.
Með ykkar stuðningi mun ég fá
tækifæri til þess að láta rækilega
til mín taka. Án ykkar stuðnings
verður erfitt að fá Björn-inn á
þing!
Björn B. Jónsson
Sækist eftir 2.sæti í próf-
kjöri Framsóknarflokks-
ins í Suðurkjördæmi
Á laugardaginn rennur út síðasta tækifæri okkar Suð-
urnesjamanna
að sinni til að
tryggja okkur
þ i n g m a n n .
Prófkjörin tvö,
sem búin eru,
voru okkur til
skammar enda
á r a n g u r i n n
eftir því.
Ætlum við að láta það gerast í
þriðja sinn að sæti Suðurnesja
lendi í óöryggi? Bara af því
við tökum ekki þátt. Það er
undir okkur komið að tryggja
fulltrúa Suðurnesja á öruggt
sæti. Til þess verðum við að fjöl-
menna í prófkjör Framsóknar
á laugardaginn. Þetta er síðasta
tækifærið á öruggu sæti. Við
getum engum kennt um nema
okkur sjálfum ef illa fer. Mikil
smölun er í gangi á Suðurlandi.
Sú smölun getur húrrað Hjálm-
ari niður eftir öllum listanum.
Viljum við það? Eina svar okkar
er að fjölmenna í prófkjörið.
Það er ekki nóg að segjast styðja
Hjálmar. Við verðum að sýna
það í verki með því að mæta
á laugardaginn. Stöndum nú
einu sinni saman um hagsmuni
Suðurnesja.
Ingvi Þór Hákonarson.
Bjarni Harðarson skrifar:
Ál í hvert mál á Rosmhvalanesi
Björn B. Jónsson skrifar:
Björn-inn á þing!
Björn B. Jónsson
www.bbj.is2. SÆTI Kjósum öflugan mann til forystu í prófkjöri framsóknarmanna í Suðurkjördæmi þann 20. janúar
Ingvi Þór Hákonarson skrifar:
Síðasta tækifærið?
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222