Víkurfréttir - 18.01.2007, Page 33
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 18. JANÚAR 2007 33STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
í senn; ryður, skefur, sópar og
blæs.
Nýja Oskosh-tækið er fyrsta
tækið sem Flugmálastjórn Kefla-
víkurflugvallar kaupir fyrir ný-
stofnaða flugvallarþjónustudeild
sem annast m.a. snjóruðning og
hálkuvarnir á flugvellinum og
kostar það tæpar 25 milljónir
króna með aðflutningsgjöldum.
Flugvallarþjónustudeildin starf-
rækir 35 sérhæfð tæki og er með-
alaldur þeirra um 22 ár. Elsta
tækið, sem einnig er af Oskhos-
gerð, verður 50 ára á þessu ári
og önnur þrjú eru 48 ára. Þrátt
fyrir háan aldur mynda þessi
fjögur öflugu snjóruðningstæki
framvarðasveit við hreinsun
flugbrautanna ásamt þremur
nýrri tækjum. Lykillinn að svo
góðri endingu eru gæðasmíð og
öflugt viðhald, sem starfsmenn
flugþjónustudeildarinnar annast
að öllu leiti sjálfir, sem og færni
í beitingu og meðferð tækjanna.
Með sex sameykjum má hreinsa
3,3 km langa flugbraut í 40 m
breidd á 15 mínútum. Önnur
tæki deildarinnar eru snjóblás-
arar, hjólaskóflur og dreifarar
fyrir sand og afísingarvökva. Öll
tækin er í eigu Bandaríkjaflota
og leigð af honum en ljóst er
að endurnýja þarf a.m.k. 80 %
tækjabúnaðarins á allra næstu
árum. Heildarverðmæti hvers
sameykis nemur um 55 millj-
ónum króna.
VANTAR ÞIG SVÖR VIÐ EINHVERJU? Sendu okkur línu á Víkurfréttir á póstfangið:
postur@vf.is og blaðamenn skoða málið. Ef málefnið á erindi í fjölmiðla leitum við svara hjá réttum aðilum
og birtum umfjöllun um málið í blaðinu og á vf.is. 100% trúnaði heitið sé þess óskað.