Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 1
                ! " "     #     $ %& #"     "   %  (   )%  *       ('  *% &' +,-                                               !                                    !"#$ % & %   L A U G A R D A G U R 2 6. Á G Ú S T 2 0 1 7 Stofnað 1913  205. tölublað  105. árgangur  ÁHERSLA Á GLEÐI OG FJÖLBREYTNI HJÁ MAK KROSSVÍGT BÁRUJÁRN OG BLÓM Í BÚÐARDAL BOGA KRISTÍN KRISTINSDÓTTIR THORLACIUS 12JÓN PÁLL EYJÓLFSSON 45 AFP Facebook Þar kennir ýmissa grasa.  Um 105 þúsund manns eru í Brask og brall á Facebook, þeim Facebook-hópi íslenskum sem sennilega er fjölmennastur. „Þetta vatt aðeins upp á sig,“ segir Frank Höybye, stofnandi hópsins. Að mörgu leyti eru Facebook- hópar orðnir hluti af félagslífi fólks, sem getur haldið sig heima, en eigi að síður tekið þátt í umræðu dagsins og sótt sér hjálp og ráð. Þúsundir íslenskra Facebook- hópa um ýmis mál eru til, svo sem á vegum hverfahópa og íbúa- samtaka. Einnig má nefna hópa þar sem fjallað er um súrdeig, prjóna- skap, gömul skip, snyrtivörur svo eitthvað sé nefnt, en nánar er fjallað um íslenska hópa á Face- book í Sunnudagsblaði Morgun- blaðsins. Þúsundir skráðar í suma íslenska hópa á Facebook Hefur áhrif á hagvöxt » Verði fjárfesting í hótelgeir- anum minni en áætlað var gæti þurft að endurmeta hagspár. » Hagvöxtur verður þá minni en ella og það munu skapast færri störf en útlit var fyrir. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vísbendingar eru um að fjárfesting í hótelum verði tugum milljarða króna minni en fjárfestar höfðu áformað. Styrking krónunnar og hækkandi verðlag á Íslandi vegur þar þungt. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins, segir hótelmarkaðinn yfirverðlagðan. Framundan sé aðlögunartími, draga muni úr spennu á markaðnum. Ör- vænting hafi gripið um sig á markaði í vor þegar væntingar um hraðan vöxt ferðaþjónustu brugðust. Garðar Hannes Friðjónsson, for- stjóri fasteignafélagsins Eikar, segir mikla styrkingu krónunnar á fyrri hluta árs hafa kælt hótelmarkaðinn. Fjárfestar séu orðnir varkárari við útlán til ferðageirans. Það rímar við greiningu heimildarmanna Morgun- blaðsins í fjármálakerfinu. Þeir segja að sum hótelverkefni þyki nú of áhættusöm. Lánsfé fáist ekki. Arnar Már Ólafsson, markaðs- stjóri Íslenskra fjallaleiðsögumanna, segir þá hafa átt neyðarfundi með viðskiptavinum í vor vegna minni eftirspurnar eftir Íslandsferðum. Hótelgeirinn á krossgötum  Útlit fyrir að fjárfesting í hótelum verði minni næstu ár en fjárfestar áformuðu  Íslenskir fjallaleiðsögumenn áttu neyðarfundi vegna minnkandi eftirspurnar MFerðaþjónusta »4 og 14 Miðasöluvefurinn Tix.is hefur opnað útibú í þremur löndum á síðustu mán- uðum. Í vikunni var opnuð skrifstofa í Noregi. Alls er fyrirtækið nú með fimm starfsmenn í Noregi, Svíþjóð og Danmörku og stefnir á frekari umsvif þar á næstunni. Sindri Már Finnbogason, stofnandi Tix.is, segir að útrásin hafi ekki átt sér langan aðdraganda. Hann starfaði áður í Danmörku og gamlir viðskipta- vinir settu sig í samband við hann og óskuðu eftir samstarfi. „Ég sá gat á markaðnum. Þetta stóð ekkert til,“ segir Sindri. Í Noregi selur hann miða fyrir Arendal Kulturhus og í Svíþjóð fyrir Lorensbergsteatern. Þá er Sindri í viðræðum við fleiri menning- arhús og býst við að verða kominn með sex stóra viðskiptavini í árslok. „Við einbeitum okkur alfarið að leikhúsum og tónlistarhúsum,“ segir Sindri. Miðasöluvefurinn Tix.is var opn- aður fyrir tæpum þremur árum. Í dag hefur hann náð um 95% mark- aðshlutdeild hér á landi, að sögn Sindra. »4 Tix.is selur miða í fjórum löndum Sú fyrsta af þremur verslunum sænsku keðj- unnar H&M, sem til stendur að opna hér á landi, verður opnuð í Smáralind klukkan 12 í dag. Á tíunda tímanum í gærkvöldi höfðu þær Fa- biana Martons og Freydís Björg Óttarsdóttir komið sér fyrir við dyr verslunarinnar. Þær hugðust verja nóttinni þar og verða þar með væntanlega fyrstu viðskiptavinirnir, en fyrstu þúsund gestir verslunarinnar fá gjafabréf. »20 Voru mættar fyrir utan búðina löngu fyrir opnun Morgunblaðið/Ófeigur  Úkraínu hefur nú verið bætt á lista yfir örugg ríki af Útlend- ingastofnun, að undanskildum þremur hér- uðum. Landið sé að öðru leyti lýð- ræðislegt og án kerfisbundinna ofsókna gagnvart borgurunum. Útlendingastofnun hefur fengið öryggisvörslu í afgreiðsluna eftir að hættulegur maður sem viðvörun hafði áður borist út af birtist þar. Búist er við um 2.000 hæl- isumsóknum í ár. »10 Úkraína í öruggan flokk að hluta Til eru meðferðir til endurvaxtar á hári sem virka vel. Þetta segir dr. Panos Vasiloudes læknir í húðlækn- ingum sem flytur erindi um endur- vöxt á hári sem haldið verður í heilsumiðstöðinni í Ármúla 9 í Reykjavík í dag. Vasiloudes vitnar til Lars Skjoth, stofnanda Harklinikken, sem hefur þróað meðferð í tuttugu ár. Reynsl- an er góð, en til þessa er notaður efnavökvi unninn úr jurtum og mjólk. Hann er svo borinn á þau svæði sem hár er að losna af. Vasiloudes segir að meirihluti þeirra sem leita til Harklinikken í meðferð við hárlosi séu konur, sér- staklega þær sem hafa farið í með- ferð vegna veikinda, við tíðahvörf eða vegna ýmiskonar hormónabreyt- inga. „Það tekur oft mikið á fólk að missa hárið vegna til dæmis lækn- isfræðilegra eða erfðafræðilegra ástæðna,“ greinir Vasiloudes frá. Ár- angurinn er, að hans sögn, oft kom- inn í ljós eftir þrjá mánuði frá upp- hafi meðferðar. »6 Hárið vex aftur við meðferð Morgunblaðið/Hanna Læknir Það tekur á fólk að missa hárið, segir dr. Vasiloudes  Fyrirlestur um meðferð sem vinnur gegn hárlosi  Vökvi úr jurtum og mjólk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.