Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 Malbikunarstöðin Höfði h.f. óskar eftir: Verkamönnum til malbikunarvinnu Upplýsingar veitir verkstjóri í síma 693 5870 milli kl. 7.30 og 17.00 virka daga. POLITICAL SPECIALIST Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu Political Specialist lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 1. septem- ber 2017. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins: http://iceland.us- embassy.gov/vacancies.html JAFNRÉTTISSTAÐA: U.S. Mission veitir jafnrétti í atvinnu til allra án tillits til kynþáttar, litar, trúar- bragða, kyns, þjóðernis, aldurs, fötlunar, pólitískra tengsla, hjúskaparstöðu eða kynhneigðar. The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the position of Political Specialist.The closing date for this position is September 1, 2017. Application forms and further information can be found on the Embassy’s home page: http://iceland.usem- bassy.gov-/vacancies.html Please send your application and resumé to: reykjavikvacancy@state.gov EQUAL EMPLOYMENT OPPORTUNITY:The U.S. Mission provides equal opportunity and fair and equitable treatment in employment to all people without regard to race, color, religion, sex, natio- nal origin, age, disability, political affiliation, mari- tal status, or sexual orientation Tilkynningar Jöfnunarstyrkur til náms Umsóknarfrestur á haustönn 2017 er til 15. október nk. Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem stunda nám fjarri heimili sínu.  Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms).  Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili fjarri skóla). Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is). Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd Starfsmenn óskast Starfskraftur óskast í afgreiðslu- og lagerstörf Við leitum að starfskrafti sem er stundvís, heiðarlegur, fær í mannlegum samskiptum, með góða íslenskukunnáttu. Konur, við hvetjum ykkur til að sækja um líka. Starfslýsing: Afgreiðsla á léttum álvinnupöllum, byggingavörum, reikningagerð og ýmislegt fleira tilfallandi. Hæfniskröfur: Almenn ökuréttindi, tölvukunnátta (excel, word). Lyftararéttindi (en ekki gerð krafa um þau). Málmiðnaðarmaður eða handlaginn starfsmaður Óskum eftir málmiðnaðarmanni eða handlögnum starfsmanni helst með réttindi til ál- og stálsuðu, (nám eða námskeið í málmsuðu í boði fyrir réttan starfsmann). Starfslýsing: Um er að ræða fjölbreytt starf sem felst m.a. í framleiðslu á áltröppum, stigum, lagfæringum á leiguvörum, aðstoð við afgreiðslu og fleira. Hæfniskröfur: Almenn ökuréttindi, tölvukunnátta (excel, word), lyftararéttindi, íslenskukunnátta. Upplýsingar um störfin veita: Steingrímur Örn Ingólfsson og Edna Birgisdóttir í síma 564 6070 Skriflegar umsóknir sendist á kvarnir@kvarnir.is Álfhella 9 221 Hafnarfjörður Sími 564 6070 kvarnir@kvarnir.is www.kvarnir.is 1996 2016 20 ÁRA Fyrirtækið Kvarnir ehf. er umboðs- og heildsala á sviði byggingariðnaðarins. Fyrirtækið hefur verið starfandi frá febrúar 1996. Systurfélög Kvarna ehf. eru Pallar ehf. og Brimrás ehf. Pallar ehf. Sjá um leigu og sölu á vinnupöllum og tengdum búnaði. Brimrás er íslensk framleiðsla á ál- tröppum, álstigum, búkkum, ástöndum og ýmiss konar sérsmíði úr áli og stáli. Brimrásarvörurnar hafa verið fram-leiddar á Íslandi frá árinu 1984. Íspan óskar eftir starfsmönnum í eftirfarandi störf: Söluráðgjafi Helstu verkefni: Ráðgjöf til viðskiptavina, tilboðsgerð og sala. Móttaka viðskiptavina Helstu verkefni: Móttaka viðskiptavina, símsvörun og ýmis skrifstofustörf. Menntunar- og hæfniskröfur: - Menntun og reynsla sem nýtist í starfi - Þjónustulund og lipurð í samskiptum - Góð almenn tölvukunnátta - Vilji til að læra og leggja sitt af mörkum Umsóknarfrestur er til og með 10. september nk. Vinsamlegast sendið umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið starf@ispan.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Störfin hæfa jafnt körlum sem konum. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 54 54 300. Íspan er rótgróið íslenskt iðnfyrirtæki sem starfað hefur frá árinu 1969. Íspan býður viðskiptavinum sínum fjölbreytt úrval af gleri, speglum og ísetningarefni. Í verksmiðju Íspan í Kópavogi eru framleitt, eftir óskum viðskiptavina; einangrunargler, hillur, speglar, borðplötur, bílspeglar og margt fleira. Mikil áhersla er lögð á gæði og góða þjónustu. Hjá Íspan starfa, að jafnaði, yfir 30 manns. Íspan ehf. • Smiðjuvegi 7 • 200 Kópavogi • Sími 54 54 300 • ispan.is Félag sjálfstæðismanna í Miðbæ og Norðurmýri Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Miðbæ og Norðurmýri verður haldinn fimmtudaginn 31. ágúst 2017 kl. 17.30 í Valhöll. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn Félags sjálfstæðismanna í Miðbæ og Norðurmýri. Fundir/Mannfagnaðir Stálhús -uppsetning Óskum eftir verktaka til að reisa 300 m2 forsmíðað stálgrindarhús í Keflavík í september. Upplýsingar: santon@mi.is S. 6645900 Óveruleg breyting á aðal- skipulagi Fljótsdalshéraðs Breyting landnotkun lands Hleina í landi Uppsala Bæjarráð Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum 26. júní 2017, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs vegna breyttrar landnotkunar á Hleinum í landi Uppsala. Breyting er gerð sam- kvæmt 2.mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að breyta hluta svæðis fyrir íbúðabyggð, auðkennt B15, í landbúnaðarsvæði. Sá hluti íbúðabyggðar B15 sem færist yfir í flokkinn landbúnaðarland er 3,4 ha að stærð og liggur næst Borgarfjarðarvegi. Eftir standa 16,7 ha í reit B15. Gert er ráð fyrir lögbýli innan svæðisins sem breytingin nær til undir heitinu Hleinar og búskaparáform þar tengjast hrossarækt. Með breytingunni er horfið frá fyrri uppbyggingar- áformum og mun því stefna um landnotkun eftir breytingu líkjast meira núverandi ástandi og þeirri landnotkun sem er ríkjandi í grenndinni. Á uppdrættinum verður sú breyting að reitur B15 smækkar og í staðinn kemur landbúnaðarsvæði samkvæmt uppdrætti dags. 20. júní 2017 mkv. 1:100.000. Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulags- og byggingarfulltrúa Fljóts- dalshéraðs. f.h. Bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, Skipulags- og byggingarfulltrúi. Raðauglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.