Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 Vistvænna prentumhverfi og hagkvæmni í rekstri Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri og fyrsta flokks þjónusta. www.kjaran.is | sími 510 5520 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Peter Madsen, danski uppfinninga- maðurinn sem er grunaður um að hafa myrt blaðakonuna Kim Wall og sundurlimað lík hennar, neitar öllum ásökunum á hendur sér. Þetta kom fram í tilkynningu sem lögreglan í Kaupmannahöfn sendi frá sér í gær. Madsen hefur nú verið í haldi lög- reglunnar í tvær vikur, en hann var handtekinn 12. ágúst síðastliðinn vegna gruns um að hafa valdið and- láti Wall af gáleysi. Ákæruvaldið í Danmörku mun hins vegar hafa í hyggju að ákæra Madsen fyrir morð, en gæsluvarðhald yfir honum rennur út hinn 5. september næstkomandi. Neitar að hafa vanhelgað líkið Wall sást síðast á lífi um borð í kafbátnum Nautilus sem Madsen smíðaði með aðstoð sjálfboðaliða ár- ið 2008. Wall, sem meðal annars hafði skrifað greinar í Guardian og New York Times, var að vinna að umfjöllun um Madsen þegar hún hvarf sporlaust hinn 10. ágúst síðast- liðinn. Madsen sagði í fyrstu að hann hefði sett Wall í land heila á húfi, en breytti síðar sögu sinni á þann veg að hún hefði látist af slysförum um borð í Nautilus, og hann varpað lík- inu í sjóinn. Madsen neitar því hins vegar að hann hafi „vanhelgað líkið“, líkt og sagði í tilkynningu lögregl- unnar. Þeir sem rannsaka málið halda því hins vegar fram að líkið hafi verið sérstaklega skorið í sund- ur og vanvirt að öðru leyti til þess að gulltryggt yrði að það myndi ekki koma aftur upp á yfirborðið. Meðal annars hafi búkurinn verið bundinn við málmstykki. Sendur í sálfræðirannsókn Madsen mun verða sendur í sál- fræðirannsókn vegna málsins, en honum hefur verið lýst af fyrrver- andi samstarfsmönnum sínum sem skapstyggum og bráðlátum, en Mad- sen lenti í útistöðum árið 2014 við þá sem aðstoðuðu hann við að smíða kafbátinn Nautilus. Mun hann þá meðal annars hafa sagt „bölvun“ hvíla á bátnum, sem væri hann sjálf- ur. Leit að öðrum líkamsleifum Kim Wall hélt áfram í gær, en lögreglan sækist einnig eftir öðrum vísbend- ingum eins og fötunum sem hún var í þegar hún fór um borð í Nautilus. Þar á meðal eru appelsínugul flís- pleysa, pils og hvítir strigaskór. Kanna 31 árs gamalt morðmál Þá hefur mál Kim Wall leitt til þess að danska lögreglan hefur hafið á ný athugun á morðmáli sem kom upp árið 1986, þegar líkamsleifar Kazuko Toyonaga, 22 ára gamals japansks ferðamanns, fundust í nokkrum hlutum við Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn. Jens Møller Jensen, yfirmaður morðdeildar lögreglunnar, sagði að það væri venja að kanna tengsl við eldri óupplýst mál. Í dönskum fjöl- miðlum hefur hins vegar verið bent á, að Madsen hafi verið 15 ára gamall þegar það mál kom upp, og því ólík- legt að hann hafi komið þar nærri. Madsen neitar allri sök  Líklegt að Madsen verði ákærður fyrir morð í stað manndráps  Verður send- ur í geðrannsókn  Lögreglan rannsakar möguleg tengsl við fyrri morðmál AFP Víðtæk leit Fjöldi fólks hefur tekið þátt í leit að vísbendingum um afdrif sænsku blaðakonunnar Kim Wall í nágrenni Kaupmannahafnar. Að minnsta kosti 32 létust í óeirðum í borginni Panch- kula í norðurhluta Indlands eftir að dómstóll dæmdi trúarleiðtogann Ram Rahim Singh í fangelsi fyrir að hafa nauðgað tveimur fylgjendum sínum. Mörg þúsund af stuðningsmönnum hans höfðu safnast saman í borg- inni og tóku þeir tíðindunum illa þegar þau spurðust út. Auk þeirra sem létust særðust um 180 manns í óeirð- unum, þar sem kveikt var í fjölda bíla. Þurfti að kalla út sérstakt herlið til þess að hafa hemil á fólkinu, og hefur útgöngubann nú tekið gildi í borginni. AFP Minnst 32 látnir í óeirðum eftir dóm Yingluck Shina- watra, fyrrver- andi forsætisráð- herra Taílands, flúði land í gær, en gert var ráð fyrir að hún myndi hlýða á dómsuppkvaðn- ingu í spilling- armáli sem höfð- að var gegn henni. Hæstiréttur Taílands gaf út handtökuskipun á hendur Shina- watra í gær eftir að hún mætti ekki fyrir dóm. Samkvæmt heimildum innan flokks hennar flúði Shinawatra lík- lega til Singapúr, en ríkisstjórn hennar var steypt af stóli árið 2014 af hernum. Yingluck og bróðir hennar Thaksin, sem einnig var forsætisráðherra landsins, eru nú bæði í sjálfskipaðri útlegð. Yingluck Shina- watra flýr land Yingluck Shinawatra TAÍLAND Lee Jae-yong, að- stoðarfram- kvæmdastjóri Samsung- tæknirisans og sonur stofnand- ans, var í gær dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir mútur, meinsæri og önnur brot í tengslum við greiðslur sem Samsung innti af hendi til Choi Soon-sil, aðstoðarmanns Park Geun-hye, þáverandi forseta Suður- Kóreu. Park var sett af fyrr á árinu vegna málsins og dæmd í fangelsi. Auk Lees voru fjórir aðrir stjórn- armenn í Samsung dæmdir fyrir að- komu sína að málinu. Lee neitar enn allri sök og sagði lögfræðingur hans að málinu yrði áfrýjað. Erfingi Samsung dæmdur fyrir mútur Lee Jae-yong SUÐUR-KÓREA Stjórnvöld í Þýskalandi bönnuðu í gær eina helstu heimasíðu her- skárra aðgerðasinna af vinstri vængnum, en gripið var til þessara ráða í kjölfar óeirðanna sem fylgdu fundi G-20 ríkjanna í Hamborg fyrr í sumar. Á heimasíðunni hefur verið hægt í skjóli nafnleysis að tilkynna um mótmæli og aðrar „aðgerðir“, en þar hafa einnig verið settar inn færslur þar sem ofbeldi gegn lög- reglumönnum var hampað, auk þess sem þar mátti finna leiðbein- ingar fyrir framleiðslu bensín- sprengna, sem einnig ganga undir nafninu Molotoff-kokteilar. Lokað á heimasíðu aðgerðasinna ÞÝSKALAND Ríki íslams lýsti í gær yfir ábyrgð sinni á sjálfsvígsárás sem gerð var fyrr um daginn á mosku sjía í Kabúl, höfuðborg Afganistan. Tuttugu manns létust og um fjörutíu særðust í árásinni, en fjöldi fólks var í mosk- unni þegar árásin hófst. Árásin stóð yfir í um fjórar klukkustundir eftir að tveir víga- menn hófu skothríð á gesti mosk- unnar. Um hundrað þungvopnaðir lögreglumenn umkringdu hana í kjölfarið og náðu að bjarga um hundrað manns úr bráðri lífshættu. Þegar lögreglan þrengdi að víga- mönnunum sprengdi annar þeirra sig í loft upp inni í moskunni. Samkvæmt frásögnum vitna og fórnarlamba voru mennirnir tveir einnig vopnaðir hnífum og sprengju- vörpum. Árásin þykir undirstrika það hversu ótryggt öryggisástandið er í Afganistan, en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur nýlega ákveðið að Bandaríkjaher muni fjölga í herliði sínu í landinu. Ráðist á mosku sjía í Kabúl  Tuttugu látnir og um 40 særðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.