Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 EÐALSALT Eðalsaltið inniheldur að lágmarki 50%minna natríun klóríð en venjulegt matarsalt. Það samanstendur af blöndu af natríumklóríð (40-50%) og magnesíum söltum (1-16%) auk snefilefna úr sjó (1%). Þessi samsetning gerir Eðalsaltið einstakt og stuðlar að lækkun blóðþrýstings samkvæmt rannsóknum vísindamanna. Náttúruleg, hágæða, alíslensk afurð unnin úr hafsjó og jarðsjó úr háhitasvæði Reykjaness. Eðalsalt er góður kostur fyrir fólk sem er annt um heilsuna Eðalsaltið frá okkur eru ómissandi í matreiðsluna hjá ykkur Andrés Magnússon hittir oftnaglann á höfuðið í fjölmiðla- rýni sinni í Viðskiptablaðinu. Í blaðinu á fimmtudag fjallaði hann um fréttaflutning af því að Helgi Magnússon, einn af stofnendum Við- reisnar, og félög honum tengd hefðu í fyrra samtals lagt til flokksins 2,4 milljónir króna, sem er langt umfram lögbundið hámarks- framlag ein- staklings og tengdra aðila til stjórnmálaflokks:    Sagt var frá því ífréttum að fjár- framlög til stjórn- málaflokksins Við- reisnar hefðu tæplega verið í góðu samræmi við anda ef ekki bókstaf laga um fjármál stjórnmálaflokka.    Samt sem áður var eins og flestirmiðlar væru hálffeimnir við málið og sérstaklega kom rósemi Ríkisútvarpsins á óvart. Þar var t.d. birt viðtal við Svein Arason ríkisendurskoðanda, sem hafði það helst að segja að lögin væru voða flókin og kannski þyrfti að skýra þau betur fyrir flokkunum. Um það var ekkert spurt nánar, þó fyrir því sé nú frekar einhlítt dómafordæmi að ókunnugleiki um lög eða mögu- legur óskýrleiki þeirra dregur ekki úr skyldu manna til þess að fara að lögum eða ábyrgð fyrir dómstólum.    Látum það þó liggja milli hluta,fjölmiðlar eiga vafalaust eftir að ganga nánar eftir slíku næstu daga. En menn geta samt spurt sig þeirrar spurningar hvort Ríkis- útvarpið hefði verið svona pollró- legt ef komið hefði á daginn að ein- hver kaupfélagsstjórinn hefði dælt peningum í Framsóknarflokkinn kortéri fyrir kosningar undir ýms- um aðskiljanlegum kennitölum í hans fórum.“ Andrés Magnússon Skylda manna til að fara að lögum STAKSTEINAR Helgi Magnússon Veður víða um heim 25.8., kl. 18.00 Reykjavík 13 alskýjað Bolungarvík 11 alskýjað Akureyri 13 skýjað Nuuk 11 léttskýjað Þórshöfn 13 léttskýjað Ósló 18 léttskýjað Kaupmannahöfn 19 léttskýjað Stokkhólmur 14 skúrir Helsinki 12 skýjað Lúxemborg 21 heiðskírt Brussel 24 heiðskírt Dublin 17 skýjað Glasgow 16 skúrir London 22 léttskýjað París 20 skúrir Amsterdam 21 léttskýjað Hamborg 20 léttskýjað Berlín 22 heiðskírt Vín 30 heiðskírt Moskva 14 skýjað Algarve 27 heiðskírt Madríd 33 heiðskírt Barcelona 29 léttskýjað Mallorca 29 léttskýjað Róm 30 heiðskírt Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 20 léttskýjað Montreal 18 þoka New York 23 heiðskírt Chicago 19 léttskýjað Orlando 29 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 26. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:54 21:06 ÍSAFJÖRÐUR 5:50 21:20 SIGLUFJÖRÐUR 5:32 21:04 DJÚPIVOGUR 5:21 20:38 Um síðustu helgi hóf nýtt fyrirtæki á sviði íþróttafjölmiðlunar, Sport- miðlar ehf., starfsemi sína með sjón- varpsútsendingum SportTV, sjón- varpsarms fyrirtækisins. Útsendingarnar eru á rásum 13 í sjónvarpi Símans og 29 í sjónvarpi Vodafone. SportTV hefur til þessa verið með útsendingar á vefnum. Á vef Fjölmiðlanefndar er til- kynnt um stofnun hinna nýju íþróttafjölmiðla. Þar kemur fram að Giggs ehf. á allt hlutafé í Sport- miðlum ehf. Eigandi Giggs ehf. er skráður Einar Páll Tamimi. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að það muni fyrst um sinn vera með beinar útsendingar frá leikjum í ítölsku úrvalsdeildinni. Um síðustu helgi voru sýndir fjórir leikir. Umsjónarmenn helgardag- skrárinnar voru Valtýr Björn Val- týsson og Snorri Sturluson. Um þessa helgi verða sömuleiðis sýndir fjórir leikir beint frá ítölsku deild- inni. „Á næstu vikum mun dagskrá SportTV aukast og bætast við hana bæði innlent og erlent efni, beinar útsendingar og dagskrárgerð,“ segir í tilkynningu frá Sportmiðlum ehf. Á síðustu leiktíð var SportTV með út- sendingar frá úrvaldsdeildinni í handbolta og meistaradeild Evrópu í handbolta. Útsendingar SportTV eru opnar og gjaldfrjálsar. Síðar í þessum mánuði er áformað að útvarpsstöð Sportmiðla ehf., SportFM, og netmiðill þess, Sport.is, fari í loftið. sisi@mbl.is Giggs ehf. eig- andi SportTV  Sýnir beint frá ítölsku deildinni AFP Ítalski boltinn Sýnt var frá leik Int- er Milan og Fiorentina um helgina. „Fólk hér hefur einna helst verið að velta fyrir sér þjónustu póstsins og nettengingu. Þessi þjónusta er að okkar mati ekki eins góð í dreifbýli Kjalarness og á öðrum íbúasvæðum í Reykjavík.“ Þetta segir Sigríður Pétursdóttir, formaður hverfisráðs Kjalarness, en íbúar þar hafa óskað eftir útskýr- ingum á því hvort munur sé á þjón- ustu og réttarstöðu íbúa Reykjavíkur í þéttbýli og dreifbýli, en fyrirspurn- inni var beint til umhverfis- og skipu- lagssviðs Reykjavíkur (USK). „Við höfum verið að leita leiða í borgarkerfinu, en það er sko ekki ein- falt,“ segir Sigríður og bendir á að Kjalnesingar hafi einnig sett sig í samband við borgarfulltrúa í von um að fá svör við sínum spurningum. Spurð hvort Reykjavíkurborg hafi brugðist við erindi íbúanna svarar Sigríður: „Við fengum stutt svar [frá USK] með skilgreiningu á því hvar þessi svæði eru. En aðallega var fjallað um Hólmsheiðarsvæðið og ör- lítið minnst á skotsvæðið á Álfsnesi sem tilheyrir Kjalarnesi. Það var hins vegar ekkert talað um þá þjónustu sem við viljum fá umræðu um.“ Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segist kannast við málið. „Þetta eru íbúar Reykjavíkur og það á að gæta jafnræðis í þjónustu. Við verðum því að hugsa um þennan aðstöðumun,“ segir hún. Kjalnesingar tala fyrir daufum eyrum  Vilja vita hvort munur er á þjónustu við íbúa Reykjavíkur í þéttbýli og dreifbýli Morgunblaðið/Þórður Byggð Íbúar vilja bætta þjónustu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.