Morgunblaðið - 26.08.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017
VEISLUÞJÓNUSTA
MARENTZU
www.marentza.is - 553 8872 - info@marentza.is
Allar gerðir af veislum
sérsniðnar að þínum þörfum
• Fermingarveislur • Brúðkaup
• Erfidrykkjur • Veitingar fyrir fundi
• Móttökur • Útskriftir
Opnunartíminn á pósthúsinu á
Hvolsvelli hefur verið styttur nið-
ur í fjóra tíma. Pósthúsið verður
nú einungis opið frá 11 til 15 á
virkum dögum. Sveitarstjórn
Rangárþings eystra er ósátt við
ákvörðun Íslandspósts hf. og
ályktaði á fundi sínum í vikunni að
reyna fá ákvörðuninni hnekkt.
Lilja Einarsdóttir, aðalmaður í
sveitarstjórninni, segir póstþjón-
ustu á landsbyggðinni ekki við-
unandi.
„Málið er í vinnslu og við erum
að vinna í því að fá þessari ákvörð-
un hnekkt. Póstþjónusta í dreifðari
byggðum og á landsbyggðinni al-
mennt er ekki einu sinni viðunandi
eins og hún er í dag, hvað þá ef á
að skerða hana meira,“ segir Lilja.
Morgunblaðið óskaði eftir svör-
um frá Íslandspósti um hvers
vegna opnunartíminn var styttur á
Hvolsvelli og segir fyrirtækið að
minnkandi umsvif skipti þar mestu
máli. „Við horfum alltaf til umsvifa
og hvað hentar dreifikerfinu
hverju sinni. Við höfum litið svo á
að fjögurra tíma opnun sé heppileg
á minni stöðum miðað við umsvifin
sem eru þar.“
Lilja segir það hins vegar afleitt
að ekki sé hægt að sækja eða
senda póst fyrr en klukkan 11 á
hverjum degi. „Við búum úti á
landi þar sem iðnaðarmenn og
verkstæði eru til dæmis að fá
sendingar sem þau þurfa. Að nálg-
ast sendingar eða senda frá sér
klukkan 11 er afleitt.“ mhj@mbl.is
Sveitarstjórnin mótmælir
breyttum opnunartíma
Pósturinn Pósthúsið á Hvolsvelli er
nú ekki opnað fyrr en klukkan 11.
Pósthúsið á
Hvolsvelli verður
opið í 4 tíma á dag
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Arnar Már Ólafsson, markaðsstjóri
hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönn-
um, segir eftirspurn frá sumum
löndum vera minni en í fyrra. Vegna
styrkingar krónunnar og aukins inn-
lends kostnaðar sé Ísland að verða
of dýrt fyrir sum markaðssvæði.
Íslenskir fjallaleiðsögumenn eru
eitt stærsta fyrir-
tæki landsins á
sínu sviði. Það
býður dagsferðir
og lengri ferðir
fyrir einstaklinga
og hópa.
„Áhrifin af
styrkingu krón-
unnar á eftir-
spurnina eru mis-
jöfn eftir mark-
aðssvæðum.
Áhrifin eru mest á eftirspurn hópa
og þá helst frá Frakklandi og Þýska-
landi. Þar hefur orðið samdráttur.
Bandaríkjamarkaður hefur verið
stöðugri. Við höfum þurft að endur-
skoða okkar söluáætlanir. Þær hafa
ekki gengið eftir,“ segir Arnar Már.
Færa sig yfir í ódýrari ferðir
„Fólk er að færa sig í ódýrari ferð-
ir. Við höfum reynt að bregðast við
því með ódýrari vörum. Það kemur
fleira til en styrking krónunnar. Það
hafa verið miklar innlendar kostn-
aðarhækkanir á fáum árum. Laun
hafa hækkað og kostnaður við að-
föng. Lagður var 11% virðisauka-
skattur á ferðaþjónustu 2016. Það
má segja að fastakostnaður við
dæmigerða sex daga gönguferð hafi
hækkað um 25%-30% hjá okkur síð-
ustu tvö til þrjú ár.“
Arnar Már bendir svo á að ekki
aðeins hafi verð á ferðum hækkað
um 25-30% í krónum heldur hafi
krónan líka styrkst. Fyrir vikið hafi
verðið hækkað um 70-75% í evrum.
„Mér er minnisstætt þegar við
áttum neyðarfundi með okkar við-
skiptavinum á alþjóðlegri ferða-
ráðstefnu fyrr á þessu ári. Rætt var
um leiðir til að lækka verðið. Það var
enda engin eftirspurn eftir ferðum
til Íslands, miðað við það sem var.
Skömmu síðar var tilkynnt að
hækka ætti virðisaukaskatt á ferða-
þjónustu úr 11% í 24%. Það voru
hamfarir í okkar huga. Ef þessar
skattahækkanir verða að veruleika
erum við búin að verðleggja okkur
út af markaðnum fyrir stóran hóp
okkar viðskiptavina. Ísland er orðið
of dýrt. Erlend fyrirtæki munu síður
vilja versla við okkur,“ segir Arnar
Már og bendir á að vegna hækkandi
verðlags á Íslandi séu erlendar
ferðaskrifstofur í auknum mæli að
skipuleggja ferðir til Íslands sjálfar.
„Þær koma með eigin leiðsögu-
menn, eigin bíla og uppfylla þar af
leiðandi ekki kröfur um ökuleiðsögn
eða meirapróf. Þær komast líka hjá
því að greiða virðisaukaskatt.“
Arnar Már segir að skattahækk-
anir muni því draga úr tekjum rík-
isins. Umsvifin í greininni muni ekki
aukast í takt við væntingar. Það sé
alvörumál ef embættismenn hafi
stuðst við ranga talningu á ferða-
mönnum þegar fyrirhuguð skatta-
hækkun á gistingu var undirbúin.
Samdráttur
hjá fjallaleið-
sögumönnum
Fyrirtækið Íslenskir fjallaleiðsögu-
menn endurskoðar söluáætlanir ársins
Morgunblaðið/RAX
Fjallaferðir Ísland er orðið dýrara
heim að sækja. Það hefur áhrif.
Dregur úr örygginu
» Arnar Már kveðst hafa
spurnir af því að erlendar
ferðaskrifstofur séu farnar að
fara sjálfar með ferðamenn á
jökla í ísgöngur. Þjónusta ís-
lenskra fyrirtækja þyki of dýr.
» Óvíst sé hvaða reynslu þeir
leiðsögumenn hafi, t.d. við
björgun úr íssprungum. Það
geti haft alvarleg áhrif á gæði
og öryggi í ferðaþjónustunni.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Íslenski miðasöluvefurinn Tix.is hef-
ur opnað útibú í þremur löndum
undanfarna mánuði; Danmörku,
Svíþjóð og nú síðast Noregi. Stofn-
andi vefsins, Sindri Már Finnboga-
son, hefur unnið hörðum höndum að
útrásinni og náð í bitastæð verkefni.
Tix.is var opnaður 1. október 2014
og fljótlega náðust samningar við
stóra viðskiptavini. Að sögn Sindra
samdi Tix við tónlistarhúsið Hörpu í
febrúar árið 2015 og Borgarleikhús-
ið bættist í hópinn þá um haustið.
Sumarið 2016 var samið við Þjóð-
leikhúsið. Auk þess selja flestir
sjálfstæðir tónleikahaldarar hjá Tix.
Fram að stofnun Tix var Miði.is
allsráðandi á markaðnum.
„Ætli við séum ekki með í kring-
um 95 prósenta markaðshlutdeild
núna,“ segir Sindri.
Útrásin til Skandinavíu á sér
nokkra forsögu. Sindri starfaði í
Danmörku um árabil undir merkj-
um Billetlugen og síðar Venuepoint.
„Í apríl í fyrra keypti þýska fyrir-
tækið EventIM helming í fyrirtæk-
inu og ákvað að hætta þróun gamla
miðasölukerfisins sem ég gerði og
nota í staðinn sitt kerfi. Þá fóru
margir gamlir viðskiptavinir að hafa
samband við mig og lýsa yfir áhuga
á því að fá Tix til Skandinavíu. Það
er nú ástæðan fyrir þessu öllu – ég
sá gat á markaðnum. Þetta stóð
ekkert til.“
Opnuðu í Noregi í vikunni
Sindri og hans fólk hófust því
handa við að kynna sig og þjónustu
sína fyrir tónlistar- og menningar-
húsum á Norðurlöndunum. 1. júní
opnaði Tix skrifstofu í Kaupmanna-
höfn og þar er búið að ráða tvo
starfsmenn. Síðar bættist við skrif-
stofa í Gautaborg með tvo starfs-
menn og nú síðast í Stafangri með
einn starfsmann.
„Við opnuðum tix.no bara nú í
vikunni,“ segir Sindri.
Í Noregi selur Tix miða fyrir
Arendal Kulturhus, en þar á bæ eru
seldir um 35 þúsund miðar á ári. Í
Svíþjóð selur fyrirtækið fyrir
Lorensbergsteatern. Þar eru seldir
um 100 þúsund miðar á ári, sem er
svipað og Þjóðleikhúsið.
„Við erum svo í viðræðum við
fleiri viðskiptavini. Ég geri ráð fyrir
því að í lok árs verðum við með um
sex viðskiptavini í Skandinavíu. Við
einbeitum okkur alfarið að leikhús-
um og tónlistarhúsum,“ segir Sindri.
Útrás Sindri Már Finnbogason hefur opnað útibú frá Tix.is í þremur löndum; Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Sá gat á miðasölu-
markaði og fór í útrás
Sindri Finnbogason selur miða á viðburði í fjórum löndum
Tix hefur vaxið hratt frá stofn-
un fyrir tæpum þremur árum.
Nú eru ellefu starfsmenn
hjá fyrirtækinu. Tveir eru í
Danmörku, tveir í Svíþjóð og
einn í Noregi. Þá eru sex á Ís-
landi en fyrir hálfu ári voru
þeir þrír. Framkvæmdastjóri
Tix miðasölu er Hrefna Sif
Jónsdóttir, sem áður var miða-
sölustjóri Hörpu. Höfuðstöðv-
arnar eru í gömlu skrifstofum
Baugs við Túngötu í miðborg
Reykjavíkur.
Er þetta arðbær bransi?
„Já, hann getur verið það.
En hann er samt aðallega
skemmtilegur. Það er gaman
að vinna fyrir leikhúsin og
tónlistarhúsin. Þar er
skemmtilegt fólk og þetta er
skemmtilegur bransi,“ segir
Sindri Már Finnbogason.
Getur gefið
vel af sér
HRAÐUR VÖXTUR TIX
Arnar Már
Ólafsson