Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 Í minningu Sverris Hallgríms- sonar kemur þakk- læti fyrst upp í hugann, þakklæti fyrir að hafa verið þeirrar gæfu aðnjótandi að þekkja hann í ára- tugi, eiga hann að vini og njóta þess að gleðjast með honum á góðum degi, en einnig tengja böndin enn betur á erfiðum tím- um. Þau hjónin Sverrir og Þór- unn voru samhent hjón, vinsæl, félagslynd og einstaklega gest- risin. Við tengdumst þeim meðal annars í gegnum félagastarf- semi í Garðabæ. Má þar nefna Lionsklúbbana tvo í Garðabæ, Kvenfélag Garðabæjar, Sjálf- stæðisfélag Garðabæjar, frímúr- arastúkuna Njörð og ekki má gleyma saumaklúbbnum og Prinsessuklúbbnum. Var oft glatt á hjalla í sambandi við þessi félög og klúbba, bæði sam- komur og ferðalög og nutum við þar skemmtilegra samvista við þau hjónin. Sverrir var einstakur bæði í leik og starfi. Vandvirkni hans, smekkvísi og tilfinning fyrir góðri hönnun gerði hann að ein- um af þeim bestu húsgagna- smíðameisturum sem þetta land hefur alið. Verkstæðið hans var mjög vinsælt, og fagmenn og hönnuðir sóttust eftir því að fá hann til að vinna fyrir sig. Ann- ar undirritaðra getur vottað það að þau verk sem Sverrir vann á hans vegum fóru alltaf fram úr væntingum. Hann var leiðtogi og vinsæll forystumaður í ýms- um félögum. Hann var um ára- bil formaður byggingarnefndar Garðabæjar, lipur, yfirvegaður og ráðagóður, en gat verið fast- ur fyrir og var ófeiminn að láta Sverrir Hallgrímsson ✝ Sverrir Hall-grímsson fædd- ist 13. september 1934, hann lést 18. ágúst 2017. Útför Sverris fór fram 25. ágúst 2017. skoðanir sínar í ljósi, ef þörf var á. Hann gegndi ýms- um trúnaðarstörf- um í Frímúrara- stúkunni Nirði, virtur og vinsæll meðlimur sem naut trausts félaga sinna. Sverrir gekk ekki alltaf heill til skógar en hann lét veikindi sín ekki hafa áhrif á að eiga góðar stundir með vinum sínum og ættingjum. Það er ómetanlegt að hafa átt hann að vini og lífið verður öðruvísi að honum gengnum. Við vottum Þórunni og fjölskyldu hans allri okkar dýpstu samúð. Sigurveig og Pálmar. Þrír áratugir eru liðnir frá því að fundum okkar bar saman fyrst. Og samt virðist svo skammt síðan. En nú er hún öll ævi okkar góða félaga, Sverris Hallgrímssonar. Kynni okkar hófust á vett- vangi bæjarmála í Garðabæ. Við vorum samherjar og áttum gott og náið samstarf á þeim vett- vangi. Ævinlega var hann reiðubúinn að rétta hjálpar- hönd. Það þurfti ekki að biðja um aðstoð, hún kom óumbeðin og skilmálalaust. Og hjálp var veitt af öllu hjarta og fullum krafti. Lognmolla og hægagang- ur var ekki til í hans orðabók. Þegar ákvörðun var tekin var hafist handa og ekki linnt látum fyrr en verkefnin voru að baki. Þeir sem gefa sig til starfa að félagsmálum með þeim hætti sem Sverrir gerði eru oftar en ekki valdir til margvíslegra trúnaðarstarfa. Hann tók að sér hvert verkefnið á fætur öðru og leysti þau öll af mikilli útsjón- arsemi og lipurð. Allir, sem með honum unnu, treystu honum til góðra verka. Návist hans og þátttaka var í senn til gagns og ánægju og hann var drjúgur liðsmaður í fjölmörgum fram- faramálum. Þess fengu margir að njóta og þess er og verður mörgum ljúft að þakka og minn- ast. Frásögn og ummæli sam- ferðarmanna hans sýna það glögglega að á þessum sviðum sem mörgum öðrum eiga margir honum þakkarskuld að gjalda. Að starfa með slíkum manni var góður skóli, sem skilur mikið eftir. Sverrir var einstaklega til- lögugóður og lagði mikið á sig til að ná sáttum í þeim fjöl- mörgu úrlausnarefnum, sem urðu á vegi hans. Ávallt var hann í fararbroddi, farsæll og einarður í því starfi, sem hann gaf sig í. Allt starf Sverris að málefnum Garðabæjar bar vott um mikla yfirsýn, reynslu og réttsýni sem átti sér djúpar rætur í mannlegri hlýju, sem var svo rík í fari hans og setti raunar einnig sterkt svipmót á öll störf hans í þágu heimbyggð- ar. Á lífsleiðinni kom Sverrir víða við og í öllum sínum störf- um gat hann sér gott orð. Hann rak myndarleg fyrirtæki í hús- gagna- og innréttingasmíði og unnu hann og samstarfsmenn sér gott traust fyrir faglega og vandaða vinnu. Ekki hreppti hann alltaf byr í starfi sínu, en ótrauður hélt hann sinni stefnu og vann bug á því sem í vegi stóð af heið- arleika og áræðni. Hann lagði mikla rækt við allt sem hann tók sér fyrir hendur, var ekki einungis yf- irmaður, heldur vinur og sam- herji samstarfsmanna sinna. Með þeim hætti náði hann góð- um árangri, hvatti þá til dáða, aðstoðaði í ólíklegustu málum og lét sér annt um velferð sam- verkamanna. Ekki væri það að skapi vinar míns að hafa hér á langt mál, en þakka vil ég skemmtilegar sam- verustundir, hispurslaust viðmót og hvatningu. Sverrir var heil- steyptur maður, trúr og tryggur og raunar svo vinfastur að af bar. Hann var ætíð hreinn og beinn: var sá maður sem ekki mátti vamm sitt vita í verkum sínum neinum. Allir, sem kynnt- ust honum, hljóta að hafa virt hann og dáð fyrir drengskap, festu og velvild. Nú þegar leiðir skilur þakka ég Sverri Hallgrímssyni einlæga vináttu, ánægjulegar samveru- stundir og leiðbeiningar, sem hann var óspar á. Samúðar- kveðjur færum við Hallveig eig- inkonu hans, Þórunni Árnadótt- ur, börnum þeirra og allri fjölskyldunni. Minningin um gott og farsælt æviskeið mun lengi lifa. Ingimundur Sigurpálsson. Fáein kveðjuorð set ég á blað og minnist Sverris, sem var vin- ur frá því að hann fluttist í Garðabæ árið 1967. Samveru- stundir áttum við margar, eink- um þó á árum áður, en þeim fækkaði síðustu árin, eins og oft vill verða þegar aldur færist yfir og breytingar verða á viðfangs- efnum. Ég minnist Sverris einkum fyrir það hversu öflugur hann var í hinum ýmsu félagsstörfum sem hann tók að sér. Það mun- aði svo sannarlega um hann. Víðast var honum falin for- mennskan og henni sinnti hann af alúð og dugnaði. Þá minnist ég Sverris fyrir hans yfirveguðu framkomu við þá mörgu sem áttu við hann er- indi. Hann vildi hvers manns vanda leysa, taldi það hlutverk sitt í hinum ýmsu félögum sem hann var í forystu fyrir. Nánast var samband okkar Sverris við störf að framgangi Sjálfstæðisflokksins, bæði í bæj- arfélagi okkar og í Reykjanes- kjördæmi. Fyrir öll hans um- fangsmiklu störf og samstarf okkar þakka ég Sverri. Við sem áttum við hann náið samstarf í áraraðir söknum hans mjög. Andlát hans kom á óvart, þótt okkur væri kunnugt um sjúkleika hans. Sverrir átti stóra og elsku- lega fjölskyldu sem nú horfir á bak fjölskylduföður. Þeirra er missirinn mestur. Ég sendi Þórunni, börnunum, tengdabörnum og niðjum öllum innilegar samúðarkveðjur. Ólafur G. Einarsson. ✝ Guðjón HólmGuðbjartsson fæddist í Reykjavík 6. maí 1948. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 9. júní 2017. Foreldrar hans voru Guðbjartur Hólm Guðbjartsson, f. 7. desember 1917, d. 6. nóvember 1989, og Ólafía Jónsdóttir, f. 18. október 1907, d. 31. ágúst 1953. Seinni kona föður hans var Gunnleif Kristín Sveins- dóttir, f. 14. október 1921, d. 27. janúar 1973. Systkini hans eru Ágústa Ingibjörg Hólm, f. 10. september 1943, d. 15. maí 2015, Ólafur Sigurgeir Hólm Guð- bjartsson, f. 24. desember 1952, d. 15. september 2014, Anna Margrét Hólm Guðbjartsdóttir, f. 18. apríl 1955, Hólmfríður Hólm Guðbjartsdóttir, f. 15. september 1957, Guðbjartur Hólm Guð- bjartsson, f. 4. ágúst 1961, og Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir, f. 22. ágúst 1964. Guðjón kvæntist hinn 16. júlí 1994 Ingibjörgu Kristjánsdóttur, f. 17. júlí 1952, d. 18. apríl 2014. Börn þeirra eru Hólmar Hólm Guðjónsson, f. 20. nóvember 1990, sambýlis- maður Daníel E. Arnarson, f. 28. febrúar 1990, og Ólafía Þyrí Hólm Guðjónsdóttir, f. 20. febrúar 1992. Börn Ingi- bjargar af fyrra hjónabandi eru Hans Guðmundur Magnússon, f. 4. nóvember 1969, Hulda Mar- grét I. Magnúsdóttir, f. 13. apríl 1973, og Kristján Edilon Magn- ússon, f. 23. júní 1974. Guðjón ólst upp og bjó alla tíð á Kjalarnesi. Fyrst Króki en síð- ar byggði hann húsið Háagerði í sömu sveit. Að loknu námi vann hann ýmis störf en réðst fljót- lega til Steypustöðvarinnar þar sem hann starfaði í 46 ár eða til æviloka. Útför Guðjóns fór fram í kyrrþey frá Brautarholtskirkju 19. júní. Elskulegur bróðir er fallinn frá langt um aldur fram. Hann var sannarlega kletturinn á Kjalarnesinu, alltaf til staðar ef eitthvað bjátaði á. Veikindi hans og andlát voru þungt högg sem við vorum algerlega óundirbúin fyrir. Við bjuggumst við að Gaui yrði allra karla elstur en svona fór og við verðum að sætta okk- ur við það þótt þungt sé. Lífs- glaður, þrátt fyrir áföll, vin- margur og vinnusamur. Margar eru minningarnar og allar góðar. Við ólumst upp saman í Króki en þá voru tímarnir aðrir en í dag. Bændasamfélagið í fullu gildi og lítið um tæki og tól til að létta lífið. Hann mátti þola móð- urmissi aðeins fimm ára gamall og svo lést stjúpmóðir hans þeg- ar hann var rúmlega tvítugur. Systkinahópurinn í Króki var náinn og vináttan og umhyggjan mikil. Þrátt fyrir missi og oft erfiða tíma áttum við þann fjár- sjóð að eiga hvert annað að og það er meira en margur. Gaui fór sínar eigin leiðir án átaka. Hann var ákveðinn en hafði lagni á að koma skoðunum sín- um á framfæri án þess að styggja samferðamennina. Hann var kíminn og skapgóður og naut stundanna með sínum nán- ustu. Gaui vann oftast langan vinnudag í Steypustöðinni en um helgar og í fríum hjálpaði hann pabba okkar við bústörfin. Eftir að hann eignaðist fjölskyldu varði hann öllum sínum frítíma með konu og börnum þótt þau þyrftu oft að þola það að hann hlypi undir bagga með systk- inunum þyrftu þau á aðstoð að halda. Hann var ósérhlífinn og þekktur fyrir dugnað og vinnu- semi, skuldaði ekki nokkrum og hjá honum gilti sú regla að afla áður en eytt væri. Gaui byggði sér hús í landi Króks þar sem hann bjó. Húsið byggði hann um helgar og í fríum frá Steypu- stöðinni. Húsið er vandað og vel byggt og er minnisvarði um dugnað hans og handlagni. Við söknum góðs bróður sem fór allt of fljótt. Það var gaman að koma til hans í sveitina en þar var hann á heimavelli. Gaui missti konu sína, Ingibjörgu, eft- ir skammvinn veikindi árið 2014 og var það honum mikill missir enda hjónaband þeirra einstakt. Hann stóð sterkur og hélt heim- ili með dóttur sinni Lóu og átti djúpt og kærleiksríkt samband við börnin sín til dauðadags. Börnin hans og stjúpbörnin eru enda einstök og voru stolt for- eldra sinna. Við biðjum þeim guðs blessunar og vonum að minningin um einstakan mann sé þeim styrkur í sorginni. Vertu sæll, bróðir, og sáumst síðar. Anna Margrét, Hólmfríður og Steinunn. Guðjón Hólm Guðbjartsson Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginmaður minn, bróðir og mágur, SVERRIR VILHELMSSON blaðaljósmyndari, Suðurgötu 6, Keflavík, lést mánudaginn 14. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Wanlop Noimor Kristinn Vilhelmsson Ólöf Vilhelmsdóttir Finn Jansen Björn Vilhelmsson Gunnar Vilhelmsson Hafliði Vilhelmsson Greta Guðmundsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir, mágur og afi, ÓSKAR JÓN HREINSSON bifvélavirkjameistari, lést á Sjúkrahúsinu Selfossi miðvikudaginn 23. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Karen Öder Magnúsdóttir Helgi Hreinn Óskarsson Dóra Lilja Óskarsdóttir Hreinn Óskarsson Guðrún Ásta Björnsdóttir Gróa Hreinsdóttir Sigurður Hreinsson Sigrún Júlíusdóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, MARGRÉT E. BJÖRNSDÓTTIR, Hvanneyrarbraut 40, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar þriðjudaginn 22. ágúst. Íris Gunnarsdóttir Sveinn Hjartarson Elskulegur faðir minn, afi, sonur, bróðir, mágur og frændi, JÓHANN HALLDÓRS, lést í Houston, Texas, þriðjudaginn 15. ágúst. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Berglaug Dís Jóhannsdóttir Victoria Anna Berglaugardóttir Halldór Halldórs Sigríður Jóhannsdóttir Sigfús Halldórs Helgi Halldórs Hallmar Halldórs og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.