Morgunblaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Við erum mjög ánægð og stolt af því
sem við erum búin að setja saman.
Við erum að vinna mjög mikið með
grasrótinni héðan og einbeitum okk-
ur að því að virkja hér og nýta okkur
krafta þeirra sem eru komnir aftur
heim eftir að hafa sótt sér nám í
sviðslistum,“ segir Jón Páll Eyjólfs-
son, leikhússtjóri Menningarfélags
Akureyrar, MAk, um komandi leikár
Leikfélags Akureyrar sem hefst með
gestasýningu, einleiknum Hún pabbi
sem verður sýndur 9. og 10. sept-
ember.
Konur ekki til fyrr en á 19. öld
„Kvenfólk er verk sem við frum-
sýnum núna í lok september, ný sýn-
ing með Hundi í óskilum sem er nú
svona grasrót en þeir Hjörleifur
Hjartarson og Eiríkur G. Steph-
ensen eru kannski komnir líka með
gráa grasrót, eru í reyndari kant-
inum og Akureyringar þekkja þá vel.
Þetta eru lokin á þríleik þeirra um
sögu Íslands og þarna fara þeir á
hundavaði um kvennasöguna og
ganga út frá þeirri staðreynd að kon-
ur virðast, út frá heimildum, hafa
numið land á Íslandi á 19. öld. Þær
virðast ekki hafa verið til fyrir þann
tíma. Þeir fara með kankvísum hætti
yfir kvennasöguna en fara líka yfir
fjórar bylgjur femínismans og helstu
kvenhetjur okkar í kvennasögunni.
Þetta er revíuskotin hress sýning
með tögg undir niðri. Þetta er þeirra
hjartans mál,“ segir Jón Páll en leik-
stjóri sýningarinnar er Ágústa
Skúladóttir sem hefur áður leikstýrt
Hundi í óskilum, í Öldinni okkar.
Verkið verður sýnt í Samkomuhús-
inu og framleitt af Leikfélagi Ak-
ureyrar.
„Svo erum við með jólasýningu,
Stúfur snýr aftur. Stúfur var hjá okk-
ur í fyrra og býr náttúrlega í Dimmu-
borgum og er mikill leikhúsmaður.
Hann kemur aftur í Samkomuhúsið,
það var frábær aðsókn að honum í
fyrra á stuttu og snörpu sýninga-
tímabili. Hann er mjög virkur yfir
jólin en ekki aðra daga ársins, eins og
gefur að skilja, af því hann er jóla-
sveinn,“ segir Jón Páll. Stúfur muni
m.a. fjalla um jólasiðina og mikilvægi
þess að láta kvíða ekki ná tökum á
sér yfir hátíðirnar. Sú sýning er
studd af Norðurorku sem styrkir
barna- og unglingastarf hjá MAk.
Vandræðaskáld í Sjeikspír
Eftir áramót, í mars, verður gam-
anleikritið Sjeikspír eins og hann
leggur sig frumsýnt í leikstjórn Jóns
Páls en það var sýnt við miklar vin-
sældir í Iðnó og Loftkastalanum fyrir
17 árum. „Þar um borð eru tveir Ak-
ureyringar sem hafa nýlokið leik-
aranámi. Jóhann Axel Ingólfsson
sem er mér að góðu kunnur því hann
var með mér sem ungur piltur í Sam-
komuhúsinu í Ólíver, sýningu sem
reif þakið af húsinu,“ segir Jón Páll.
Hinn Akureyringurinn er Sesselía
Ólafsdóttir, leikkona og leikstjóri,
sem skipar jafnframt dúettinn Vand-
ræðaskáld með Vilhjálmi B. Braga-
syni, leikskáldi og rithöfundi, en
hann staðfærir og þýðir Sjeikspír
eins og hann leggur sig. Vandræða-
skáldin semja auk þess tónlistina við
verkið og sjá um tónlistarstjórn.
Þriðji leikarinn í verkinu er Bene-
dikt Karl Gröndal, „sérfræðingur að
sunnan“ eins og Jón Páll kallar hann.
„Hann var hjá okkur á síðasta leikári
og árið þar á undan og er Akureyr-
ingum að góðu kunnur úr m.a. Grín
án djóks, frábær gamanleikari. Þau
munu fara á kostum í þessu verki
sem er mikið fjör, í því er farið yfir öll
verk Shakespeares á 97 mínútum og
bara þrír leikarar þannig að það er
alveg bókað að eitthvað mun fara úr-
skeiðis!“ segir Jón Páll og hlær.
Hann segir að verkið hafi verið svo
fyndið fyrir 17 árum, þegar það var
sýnt í Loftkastalanum, að eiginkona
hans, Íris Eggertsdóttir, sem komin
var á steypirinn, hafi fengið hríðir í
kjölfar mikilla hláturkrampa á einni
sýningunni. Jón Páll segist fyrir vikið
bundinn verkinu tilfinningalegum
böndum. „Nýstofnað Sjeikfélag Ak-
ureyrar flytur verkið og það er ljóst
að þar er kannski meira kapp en
forsjá en víðtæk þekking á verkum
Shakespeares,“ bætir hann við.
Þar með hafa þau þrjú verk verið
nefnd sem Leikfélag Akureyrar
framleiðir á leikárinu en nokkrar
gestasýningar verða á fjölunum. Hún
pabbi hefur þegar verið nefnd en auk
hennar verður m.a. sýnd Þú kemst
þinn veg, heimildarleikhússýning,
sem byggist á sögu Garðars Sölva
Helgasonar sem glímir við geðklofa.
Fleiri gestasýningar munu fara á
fjalirnar og segir Jón Páll að enn sé
verið að móta þá dagskrá.
Léttur og fjörugur tónn
–Verkin þrjú sem þið framleiðið
eru öll gamanverk, var meðvituð
ákvörðun hjá ykkur að bjóða upp á
slík verk?
„Já, við höfum verið með eyrað
mjög mikið við jörðina og hlustað á
fólkið okkar hér, áhorfendur og gesti.
Við vorum með hæfilega blöndu af
gamni og alvöru á síðasta leikári, síð-
asta verkið sem við frumsýndum,
Núnó og Júnía, var t.d. frekar distóp-
ískt. Því var lýst sem 1984 fyrir ung-
linga þannig að verkin hafa verið
þematengd þannig en núna vildum
við finna léttan og fjörugan tón fyrir
þetta ár, með áherslu á gleði og fjöl-
breytni. Öll verkin eru samt nærandi,
við teljum að það sé líklegra til teng-
ingar við áhorfendur að hafa smáfjör
á boðstólum,“ svarar Jón Páll.
„Dagskránni er stillt upp svona,
með heimamönnum mikið til, því
leikfélagið er á tímamótum, orðið 100
ára gamalt og við vorum í maí á
þessu ári að gefa frá okkur stefnu-
mótun til framtíðar. Við teljum hlut-
verk Leikfélags Akureyrar, eina at-
vinnuleikhússins á landsbyggðinni,
öðruvísi en leikhúsanna á höfuðborg-
arsvæðinu sem geta reitt sig á 80 eða
100 þúsund áhorfendur. Við segjum
að leikhús sé samfélag og það eru
önnur stærri samfélagsleg verkefni
og hlutverk sem við gegnum. Við
rekum leiklistarskóla fyrir börn í 4.-
10. bekk af miklum metnaði. Þar höf-
um við lagt áherslu á að vera með
menntaða kennara og við erum líka
núna, annað árið í röð, með tilrauna-
verkefni sem heitir Borgarasviðið
sem snýst um valdeflingu fyrir borg-
arana innan leikhússins, að þeir hafi
tækifæri til að rannsaka sitt sam-
félag og þær spurningar sem þeir
hafa með meðölum leikhússins.
Borgarasviðið er verkefni sem er
unnið á allt öðrum grunni en þetta
hefðbundna leikhús sem setur upp
hefðbundna dagskrá,“ segir Jón Páll.
Reksturinn í öruggum höndum
– Talandi um stóru leikhúsin í höf-
uðborginni þá eruð þið í þrengri
stöðu fjárhagslega en þau, ekki satt?
„Sú staða er eiginlega búin. Þegar
ég tek við hérna fyrir þremur árum
var dregin mjög skýr lína. Við sögð-
um: Í tíu ár hafa framlögin ekki
hækkað, þetta er framlagið og við
framleiðum innan þess ramma eins
mikið og við getum. Þannig að í þrjú
ár hefur leiklistarsviðið staðist allar
áætlanir.
Hins vegar skýtur það skökku við
– ef við erum að tala um pólitík sem
er kannski ekkert skemmtilegt í
þessu viðtali – að við höfum hvorki
bolmagn til að framleiða meira en
þrjár sýningar á ári né til þess að
ráða hingað fastan leikhóp. Ástæðan
fyrir því að við höfum þurft að
minnka umfang og fjölda sviðsetn-
inga er skortur á fjármagni til fram-
leiðslu. Þannig að fjárhagsstaðan hjá
LA og reksturinn hjá MAk er í mjög
öruggum höndum en okkur skortir
fjármagn ef það er vilji stjórnvalda
að hafa hér áfram atvinnuleikhús og
auka framleiðslu,“ svarar Jón Páll og
bendir í framhaldi á samfélagslegt
mikilvægi menningarstarsemi MAk
fyrir norðan. Fólk vilji eiga kost á því
að fara í leikhús, á tónleika eða aðra
menningarviðburði. Að komast í
Bónus sé ekki nóg, eitt og sér.
Áhersla á gleði og fjölbreytni
Léttleikinn verður í fyrirrúmi í þeim leikverkum sem MAk framleiðir á komandi leikári Hundur
í óskilum fer yfir kvennasöguna, Stúfur snýr aftur og öll verk Shakespeares verða tekin fyrir
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nærandi Jón Páll Eyjólfsson leikhússtjóri segir verkin þrjú, sem Leikfélag Akureyrar framleiðir á næsta ári,
nærandi og að áhersla sé lögð á gleði og fjölbreytni. Leikfélagið fagnar 100 ára afmæli á þessu ári.
Nýtt starfsár er hafið hjá MAk og verður boðið
upp á fjörugt og nærandi veisluborð fyrir gesti í
vetur, eins og það er orðað í tilkynningu.
23. september mun Sinfóníuhljómsveit
Norðurland (SN) hylla afmælisbarnið Leikfélag
Akureyrar sem er hundrað ára með rev-
íuskotnum tónleikum þar sem fjöldi söngvara
kemur fram. 22. október nær finnsk þemavika í
Hofi hámarki þegar hljómsveitarstjórinn Petri
Sakari stýrir sinfóníuhljómsveitinni í flutningi á
verkum Síbelíusar og Áskels Mássonar og 23.
nóvember munu Kristinn Sigmundsson bassi
og Daníel Þorsteinsson píanóleikari flytja efnis-
skrá með söngljóðum og aríum eftir íslensk og
erlend tónskáld, m.a. Der Wanderer eftir Schu-
bert. Ballettflokkur St. Pétursborgar snýr aftur
til Akureyrar 26. og 27. nóvember og sýnir ballettinn Þyrnirós við tónlist
Tchaikovskíjs sem SN flytur.
Hörður Áskelsson stýrir flutningi SN, Kammerkórs Norðurlands, Hymno-
diu, Stúlknakór Akureyrarkirkju og einsöngvara á Matteusarpassíu J.S.
Bach 29. mars og 29. apríl mun SN frumflytja hljómsveitarverkið Ólafur
Liljurós eftir Jórunni Viðar, undir stjórn Hallfríðar Ólafsdóttur.
Fjörugt og nærandi veisluborð
NÝTT STARFSÁR HAFIÐ HJÁ MENNINGARFÉLAGI AKUREYRAR
Kristinn Sigmundsson
Vefur Menningarfélags Akureyrar:
www.mak.is
Myndlistarsýningin Translations
verður opnuð í dag kl. 14 í Deigl-
unni, Kaupvangsstræti 23 á Ak-
ureyri og verður einnig opin á
morgun kl. 14-17. Dönsku mynd-
listarmennirnir Else Ploug Isaksen
og Iben West sýna þar verkefni í
vinnslu samnefnt sýningunni sem
samanstendur af ljósmyndum og
texta. Danirnir eru gestalistamenn
Gilfélagsins í ágúst og hafa skipst á
ljósmyndum og texta við fjóra ís-
lenska rithöfunda: Hallgrím Helga-
son, Einar Má Guðmundsson, Krist-
ínu Ómarsdóttur og Sigurbjörgu
Þrastardóttur. Samtalið hefur
myndast með því að Iben og Elsa
senda ljósmyndir frá dvöl þeirra á
Íslandi og rithöfundarnir svara
með texta og öfugt, segir í tilkynn-
ingu. Skiptin séu eins og hugar-
flæði, ljóðrænt flæði sem hafi sinn
eigin veruleika.
Translations opnuð í Deiglunni
Skipti Listamennirnir hafa skipst á ljós-
myndum og texta við íslenska rithöfunda,
m.a. Kristínu Ómarsdóttur.
Hljómsveitin Ensemble Sirius, skipuð fimm ungum tón-
listarkonum frá Árósum í Danmörku, býður upp á tvo
ókeypis viðburði í Norræna húsinu um helgina. Í dag
verða þær með vinnustofu kl. 13 og er markmiðið að
opna huga fólks fyrir samtímatónlist sem oft getur ver-
ið tormelt og krefjandi, eins og því er lýst í tilkynningu.
Á morgun halda þær tónleika kl. 15 og flytja verk eftir
Þuríði Jónsdóttur.
Tónlistarkonurnar fimm leika á saxófón, bassa, pí-
anó, trompet og slagverk sem þykir sjaldgæf blanda í
klassísku samhengi. Samstarf kvennanna er sam-
norrænt tónlistarverkefni sem þær kalla „Ferðalag um
norræna náttúru“ og gengur út á að kynna samtíma-
tónlist frá sex norrænum löndum og stuðla að sterkri
norræni tónlistarhefð. Í nánu samstarfi við tónskáldin
er áhorfendum boðið í ímyndað ferðalag til Grænlands,
Færeyja, Íslands, Álandseyja, Svíþjóðar og Danmerk-
ur. Tónskáldið sem tekur þátt í verkefninu fyrir hönd
Íslands er Þuríður fyrrnefnd.
Ferðalag um norræna náttúru
Ferðalag Tónlistarkonurnar fimm frá Árósum bjóða í ferðalag.