Morgunblaðið - 26.08.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Gott fyrirtæki með áratuga sögu sem sérhæfir sig í vélaviðgerðum og
sölu varahluta sem það flytur sjálft inn. Velta nokkuð stöðug
undanfarin ár og jákvæð afkoma.
• Hótelfasteignin Skúlagarður í Kelduhverfi. Um er að ræða 17
herbergja hótel á stórri lóð búið nýlegum herbergjum. Nálægt nýja
Dettifossveginum.
• Mjög vinsæll og þekktur pizzastaður sem auðvelt væri að efla
verulega með fjölgun útsölustaða þar sem núverandi staður gæti
orðið fyrsti hlekkurinn í keðjunni.
• Fyrirtæki sem er sérhæft á sviði jarðefna sem notuð eru í garða og
kringum hús. Öflugur eigin vélakostur. Velta 45 mkr. og stöðugildi
þrjú.
• Mjög vel staðsett verslun með vinsælar snyrti- og förðunarvörur. Velta
45 mkr.
• Glæsilegt nýtt 30 herbergja hótel í virðulegu húsi í miðbæ
Reykjavíkur. Hótelið er í útleigu með langan og góðan leigusamning
við traustan og öflugan hótelaðila.
• Ungt og vaxandi þjónustu- og verslunarfyrirtæki í tæknigeiranum.
Fjögur stöðugildi. Velta er um 85 mkr. á ári og góður hagnaður.
• Tíu ára gamalt fyrirtæki sem þróað hefur og selur í áskrift tölvukerfi
sem þjóna skólakerfinu. Ríflega eitt stöðugildi og 30 mkr. velta.
Hentar vel sem viðbót við fyrirtæki sem starfa á svipuðu sviði.
• Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða
dóma á bókunarsíðum. Yfir 90% nýting.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Aðstæður fólks eru mjög ólíkar eft-
ir svæðum og það má finna mörg for-
dæmi fyrir því að þetta sé gert með
þessum hætti. Noregur gerir þetta
t.a.m.,“ segir Þórhildur Ósk Hagalín,
upplýsingafulltrúi Útlendingastofn-
unar, í samtali við Morgunblaðið og
vísar í máli sínu til þess að stofnunin
hefur nú ákveðið að bæta Úkraínu,
að undanskildum héruðunum Don-
etsk, Luhansk og Krím, á lista yfir
örugg ríki. Á lista Útlendingastofn-
unar eru fyrir aðildarríki Evrópu-
sambandsins og 14 önnur ríki sem
metin hafa verið örugg.
Á heimasíðu Útlendingastofnunar
má finna rökstuðning ákvörðunar
stofnunarinnar þess efnis að skil-
greina hluta Úkraínu öruggt svæði.
Segir þar m.a. að landið sé lýðræð-
isríki og að þar séu ekki stundaðar
kerfisbundnar ofsóknir gegn fólki.
„Það er mat stofnunarinnar að al-
mennt megi telja aðstæður í Úkra-
ínu góðar og að fullnægjandi aðstoð
og úrræði séu til staðar fyrir borgara
landsins, þegar litið er til annarra
svæða en átakasvæðanna í austur-
hluta þess. Engum umsækjanda frá
öðrum héruðum en þeim þremur
sem undanskilin eru hefur verið veitt
alþjóðleg vernd á Íslandi,“ segir þar.
Spurð hvort hætta sé á að fólk
reyni frekar að villa á sér heimildir
þegar aðeins hluti ríkis er skil-
greindur sem öruggur svarar Þór-
hildur Ósk: „Það er ekki hægt að
fullyrða neitt um að það sé ekki
reynt, en málsmeðferðin felur hins
vegar í sér að leggja mat á trúverð-
ugleika þess sem haldið er fram.“
Hælisumsóknir á fyrstu sjö mán-
uðum ársins voru 626, tæplega tvisv-
ar sinnum fleiri en á sama tímabili í
fyrra. Umsækjendur í júlí sl. voru af
18 þjóðernum, en langflestir þeirra
komu frá Georgíu, 64, og Albaníu, 30,
en þau eru bæði skilgreind sem
örugg ríki af Útlendingastofnun.
Varað við hættulegum manni
Starfsfólk Útlendingastofnunar
var fyrr í þessum mánuði varað við
manni sem kynni að vera hættuleg-
ur. Þegar sá mætti í afgreiðslu stofn-
unarinnar var kallað á lögreglu sem
m.a. sendi sérsveit ríkislögreglu-
stjóra á vettvang og var maðurinn
handtekinn. Þórhildur Ósk segir ör-
yggisverði nú starfa í móttökunni.
„Þetta er ákveðin varúðarráðstöf-
un hjá okkur og það er komin örygg-
isgæsla frammi í afgreiðslu,“ segir
Þórhildur Ósk.
Úkraína nú að hluta örugg
Morgunblaðið/RAX
Mótmæli Búist er við metfjölda hælisumsókna á þessu ári, eða um 2.000.
Útlendingastofnun hefur bætt Úkraínu að undanskildum nokkrum héruðum á
lista yfir örugg ríki Stofnunin er nú komin með öryggisgæslu í afgreiðslunni
Aðalfundur Pír-
ata fer fram í
dag og á morg-
un í Valsheim-
ilinu við Hlíð-
arenda.
Einkunnarorð
fundarins eru
Vaxa, tengja,
styrkja, og er
þar vísað til
þess að Píratar
ætla að halda áfram að vaxa,
tengjast betur grunngildum sín-
um og upphafi, og styrkja alla
innviði flokksins til framtíðar, að
því er fram kemur í tilkynningu
um aðalfundinn. Á dagskrá kenn-
ir ýmissa grasa. Einar Brynjólfs-
son, þingflokksformaður Pírata
fer yfir fyrsta þingveturinn sem
tíu manna þingflokkur og þriðji
stærsti flokkur landsins, fjalla á
um reynsluna af prófkjörum og
m.a. verður kosið nýtt fram-
kvæmdaráð Pírata. Þá verður
fjallað um hvert Píratar stefna
sem hreyfing, sem þingflokkur og
hvað gera á í sveitar-
stjórnarmálum þar sem sveitar-
stjórnarkosningar standa fyrir
dyrum í vor. omfr@mbl.is
Mörg mál undir á
aðalfundi Pírata
Einar Brynjólfsson
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði
fagnar tíu ára afmæli sínu í dag en ál-
verið hóf rekstur árið 2007. Það er
stærsta álver hér á landi og þar
starfa 550 manns, þar af eru 25%
konur sem hæsta hlutfall kvenna sem
þekkist innan álvera Alcoa. Fyrir-
tækið bætti við sig 50 starfsmönnum í
fyrra vegna nýs vaktafyrirkomulags.
Að auki starfa um 350 verktakar hjá
fyrirtækinu og því starfa um 900
manns í álverinu að afleiddum störf-
um ótöldum sem skapast hafa við
þjónustu við álverið á Austfjörðum.
Sérfræðingar í áli fyrir austan
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, fjöl-
miðlafulltrúi Alcoa Fjarðaáls, segir
að mikil þekking við rekstur álvera
hafi orðið til fyrir austan og hefur
verið þjálfaður upp mikill fjöldi ís-
lenskra sérfræðinga í rekstri álvera.
Starfsmenn frá Fjarðaáli hafa meðal
annars verið fengnir til að taka þátt í
gangsetningu álversins í Maaden í
Sádi-Arabíu ásamt því að hafa verið
sendir út til að aðstoða við endurræs-
ingu á álveri Alcoa í Portland í Ástr-
alíu.
Álið sem álverið flytur út árlega
samsvarar ríflega 10% af vergri
landsframleiðslu. Álverið er með
starfsleyfi fyrir 360 þúsund tonnum á
ári og hefur það framleitt um 350
þúsund tonn af áli árlega frá upphafi.
Dagmar segir að eftirspurn eftir áli á
erlendum mörkuðum hafi aukist um
5 til 6% á ári á á undanförnum árum
og megi rekja það til aukinnar ál-
notkunar í bílaframleiðslu en þar er
ál notað til að létta farartæki og
draga þannig úr eldsneytiseyðslu
þeirra.
Sterk króna hefur áhrif
Viðskipti með ál fer fram í doll-
urum og fer eftir markaðsverði
London Metal Exchange (LME) en
þrátt fyrir það hefur gengi krón-
unnar áhrif á fyrirtækið með ýmsum
hætti. „Sterk króna veikir
samkeppnishæfni íslenskra álvera
þar sem innlendur kostnaður hefur
hækkað,“ segir Dagmar. „Við fram-
leiðum vöru úr hrááli, svokallaða
hleifa en einnig virðisaukandi vöru
þar sem búið er að vinna álið meira,
svo sem í vír og málmblendisstangir.
Vírarnir eru notaðir í háspennukapla
en stangirnar eru mikið notaðar í
bílaframleiðslu í Evrópu.“
Á síðasta ári var útflutnings-
verðmæti fyrirtækisins 71 milljarður
króna og samkvæmt upplýsingum
frá Alcoa urðu um 39% af þeim
tekjum eftir í landinu, eða um 28
milljarðar króna, í formi opinberra
gjalda, launa og innkaupa frá inn-
lendum birgjum á vöru og þjónustu.
Árið 2015 var útflutningsverðmætið
um 92 milljarðar og segir Dagmar að
þar hafi markaðsverð á áli mest að
segja.
Afstýrðu stórslysi árið 2010
Að sögn Dagmarar hefur rekst-
urinn gengið vel en stöðugt sé verið
að bregðast við aðstæðum í rekstri og
að leysa vandamál. Hún minnist þess
þegar eldur kom upp í álverinu 2010.
„Í desember árið 2010 kom upp erfið
staða þegar einn af afriðlunum okkar
brann og þá sýndi það sig hvað það
skiptir miklu máli að vera með öflug
varnarlög. Eldurinn breiddist ekki út
vegna varnarlaganna og góðrar
vinnu slökkviliðs en við misstum
straum af kerlínunni í þrjá klukku-
tíma. Þá stóð tæpt að við myndum
missa skálann, það er að segja að álið
myndi frjósa í kerjunum og við hefð-
um þurft að endurræsa allt á nýjan
leik. Betur fór en á horfðist og við
náðum að bjarga kerlínunni þrátt
fyrir þetta langa rafmagnsleysi. Það
var unnið mikið afrek af okkar starfs-
mönnum að halda rekstrinum gang-
andi við erfiðar aðstæður.“
Hátíðardagskrá verður í álveri
Alcoa Fjarðaáls í dag þar sem meðal
annars verður boðið upp á tónleika
og skoðunarferðir um álverið.
Morgunblaðið/ÞÖK
Reyðarfjörður Framleiðslugeta álversins er 350 þús. tonn á ári. Útflutningsverðmæti nam 71 milljarði í fyrra
Álframleiðsla á Aust-
fjörðum síðan 2007
Alcoa Fjarðaál fagnar 10 ára starfsafmæli sínu í dag