Morgunblaðið - 26.08.2017, Side 12

Morgunblaðið - 26.08.2017, Side 12
heim gamalla vinnubragða og gestir fá tækifæri til að aðstoða heimilis- fólkið í gamla Árbænum við störf sín. Í tilkynningu kemur fram að í eldhús- inu ætli húsfreyjan að gera skyr og strokka smjör. Á baðstofuloftinu þeytir vinnukonan rokkinn og teygir lopann á meðan vinnumaðurinn spinnur úr hrosshári og fléttar í reipi og bregður í gjarðir. Lummubakstur verður í Hábæ og heitt á könnunni í Dillonshúsi. Þau voru mörg handtökin hér áður fyrr sem fóru í frumþarfirnar, að fæða og klæða heimilisfólkið, og oft var það seinleg vinna og vandasöm. Mörg sveitastörf hafa lagst af, en gaman er að fá að kynnast þeim og halda í heiðri þá gömlu menningu og handverk sem í þeim felst. Á morgun, sunnudag, kl. 13-16 verður boðið upp á viðburð undir heitinu Ull í fat og mjólk í mat, en þá mun starfsfólk Ár- bæjarsafns veita gestum innsýn inn í Gestir fá innsýn í gömul vinnubrögð á Árbæjarsafni Morgunblaðið/Jim Smart Kátar Arndís og Helga sáu um lummubakstur á safninu fyrir meira en áratug. Ull í fat og mjólk í mat 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Ifor Williams vélavagn 3500 kg. heildarburður, pallur 3,03 x 1,84 m Verð 685.484 kr. +/vsk Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég ólst upp hér í þorpinu íBúðardal en við fórummikið út á Skarð þegar égvar krakki, þar sem amma mín og afi bjuggu, þau Boga Kristín Kristinsdóttir Magnússen og Eggert Ólafsson,“ segir alnafna ömmu sinnar, Boga Kristín Krist- insdóttir Thorlacius, sem á og rekur Blómalindina kaffihornið í Búðardal. „Þriðja alnafnan er frá Tjalda- nesi og er alls óskyld mér, en reynd- ar er aðeins ein fjallshlíð sem skilur á milli þessara bæja. Ég veit ekki bet- ur en að við þrjár alnöfnurnar séum þær einu á Íslandi sem bera þetta sérstaka nafn sem fyrsta nafn á Ís- landi. Í hinni ættinni er svo ein sem heitir Hildur Boga,“ segir Boga og bætir við að upphaf nafnsins megi rekja til langalangafa hennar sem hét Bogi Magnússen og var bóndi á Skarði. „Þegar fyrrnefnd amma mín og nafna fæddist var hún skírð í höf- uðið á þessum Boga afa sínum.“ Er blómaskreytir og býður líka upp á skreytingaþjónustu Blómalindin kaffihornið stendur í jaðri þorpsins, strax á hægri hönd þegar fólk kemur akandi að sunnan. „Ég er nýbúin að opna aftur eft- ir hlé og stækkun, en þetta er kaffi- hús sem er einnig blóma- og gjafa- vörubúð. Ég ætla að blóma þetta upp, enda er ég blómaskreytir og ég býð upp á skreytingaþjónustu hérna, útbý fyrir fólk skreytingar við hvaða tækifæri sem er og get sent hvert sem er,“ segir Boga sem einnig býð- ur gestum sínum upp á gamlar bæk- ur. „Ég fékk veglega bókagjöf og var spurð hvort ég gæti ekki komið þessu í lóg. Síðan fór ég í nytjagám- inn og fékk helling af bókum þar í viðbót. Ég hef skiptifyrirkomulag á þessu, fólk getur komið með bók sem það vill losna við og tekið aðra í stað- inn. Ef fólk er ekki með bók til að skipta getur það borgað smotterí fyrir bók sem það langar í, hundrað kall eða tvo.“ Einangraði allt sjálf Boga segist hafa verið við veg- inn í Búðardal á ólíkum stöðum und- anfarin sautján ár. „Ég er einn af þessum vitleysingum sem eru alltaf að prófa eitthvað nýtt og láta ekkert stoppa sig. Ég byrjaði vorið 2000 í húsnæðinu þar sem Rauði krossinn er núna, síðan náði ég mér í 30 fer- metra kofa og opnaði blómabúð og þjónustu hérna, bætti svo við mig kaffigræjum og setti upp lítið eld- húshorn þar sem ég afgreiddi kaffi- bolla beint út. Lokaði svo þeirri sjoppu árið 2013 og fékk húsnæði úti Krossvígt bárujárn hjá Bogu í Blómalind Hún Boga er ekkert blávatn, hún veður í verkið og framkvæmir hugmyndir sínar. Nú hefur hún opnað kaffihús í Búðardal þar sem endurnýting er í hávegum höfð, gamlar stoðir úr heyhlöðum og strigapokar utan af kaffibaunum hafa fengið nýtt hlutverk, svo ekki sé talað um hið háheilaga járn úr Hvammskirkju. Ljósmynd/Kristín Heiða Vertinn Boga er ekkert blávatn, hún framkvæmir hugmyndir sínar. Hlutir með sögu Stoð úr gamalli hlöðu og háheilagt bárujárn úr kirkju í loftinu. Gömlu bækurnar gegna hlutverki skiptibókamarkaðar. Ljósmynd/Kristín Heiða Akureyringurinn Káinn, Kristján Níels Júlíus Jónsson, var sá eini af gömlu skáldunum sem fæddur var og uppal- inn á Akureyri. Af því tilefni verður hans minnst með málþingi í dag, laug- ardag, í hátíðarsal Háskólans á Akur- eyri. Einnig verður afhjúpaður minn- isvarði um skáldið. Sett hefur verið saman vegleg dagskrá þar sem ljósi verður varpað á Káin og kvæði hans, m.a. ætla mæðginin Eleanor Geir Bil- iske og Ed Biliske að mæta og flytja erindi, en Eleanor er hugsanlega eini núlifandi einstaklingurinn sem þekkti Káin. Viðar Hreinsson bókmennta- fræðingur fjallar um Pegasus í fjósinu og kýrrassatrú, og spyr hvort Káinn hafi verið skáld eða hagyrðingur. Böðvar Guðmundsson rithöfundur fjallar um sinn Káin, Egill Helgason fjallar um Káin í sjónvarpi, og Bragi Valdimar Skúlason ætlar að fjalla um Stínu og Stjána. Fleiri flytja erindi, lesa má nánar um það á www.unak.is Um tónlistarflutning sjá Baggalútar og Vandræðaskáldin, Sesselía Ólafs- dóttir og Vilhjálmur Bergmann. Mál- þingið er kl. 10-16 og er ókeypis. Málþing um Káin á Akureyri í dag Morgunblaðið/RAX Egill Helgason Hann er einn þeirra sem flytja munu erindi í dag um Káin. Kæra foldin kennd við snjó Árlegur útimarkaður Íbúasamtaka Laugardals verður haldinn í fimm- tánda skiptið í dag, laugardag, klukk- an 11-16 á bílastæðum Mennta- skólans við Sund. Í tilkynningu kemur fram að markaðurinn sé eins konar „sprett-upp“ viðburður og hafi verið haldinn á mörgum opnum svæðum í 104 og 105 Reykjavík. Við- burðurinn stækkar með hverju árinu og nú eru skráðir seljendur á annað hundrað. Kaffi Laugalækur ætlar að opna útibú á markaðnum í ár og lifandi tónlist skapar umgjörð utan um gesti og gangandi. Útimarkaðurinn hefur ávallt verið haldinn að frumkvæði íbúa sem leggja mikið á sig til að búa til og viðhalda markaðsstemningunni. Á markaðnum, sem einkennist af gleði, má selja allt milli himins og jarðar og öllum er heimil þátttaka. Hinar ýmsu uppákomur eru stór hluti af aðdráttarafli hans því að margt hæfi- leikafólk býr í Laugardal og ná- grenni. Markmiðin með útimarkaði ÍL eru að skapa skemmtilegan hverfisbrag, að efla samskipti á jákvæðum nót- um, opna augu íbúa fyrir áhugaverð- um svæðum í nærumhverfinu og stuðla að vistvernd með því að leggja áherslu á hvers kyns endurnýtingu. Því eru gestir hvattir til að koma gangandi, hjólandi eða með strætó. Útimarkaður á bílastæðum Menntaskólans við Sund í dag Stemning Það er ævinlega gott andrúmsloft á útimarkaði Laugardalsbúa. Skemmtilegur hverfisbragur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.