Morgunblaðið - 26.08.2017, Page 25

Morgunblaðið - 26.08.2017, Page 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 Tilboðum í fasteignirnar, ásamt framtíðarsýn um notkun þeirra, skal skilað til viðkomandi fasteignasölu eigi síðar en fimmtudaginn 12. október nk. Áhugasamir hafi samband við eftirtaldar fasteignasölur sem munu sjá um söluna fyrir Kópavogsbæ: Kópavogsbær hefur flutt stjórnsýslu sína úr Fannborg og hefur bæjarstjórn samþykkt að hefja opið söluferli fasteignanna Fannborg 2, 4 og 6, þar sem tekið verði tillit til niðurstaðna húsnæðisskýrslu starfshóps bæjarráðs um stöðu húsnæðismála frá árinu 2015. Kópavogsbær mun samhliða sölu fasteigna skoða möguleika á að gera breytingar á skipulagi svæðisins sem gæfu möguleika á að byggja nýtt húsnæði á svæðinu. Kaupendur fasteigna hefðu forgang á auknum byggingarrétti á svæðinu. PI PA R\ TB W A ·S ÍA ·1 73 40 5 kopavogur.is Kópavogsbær auglýsir eftir áhuga þróunarfélaga, fjárfesta, byggingarfélaga og annarra á kaupum á fasteignum í Fannborg í Kópavogi. Hlíðasmári 6 Kópavogi 510 7900 588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík Þ o r l á k u r Óm a r E i n a r s s o n L ö g g i l t u r f a s t e i g n a s a l i Sala fasteigna Kópavogsbæjar í Fannborg í Kópavogi Fannborg 2 Fannborg 6 Fannborg 4 Í svari félagsmála- ráðuneytisins til Al- þingis á þingskjali 1121, dagsettu 18. ágúst 2017, er fjallað um kostnaðarauka rík- isins vegna niðurfell- ingar „krónu-á-móti- krónu“ skerðingar á lífeyri. Svarið er að kostn- aðurinn sé 10-15 millj- arðar. Spurningin og svarið er á óskiljanlegu stofnanamáli og sjónar- hóllinn þröngur. Ekki kemur fram heildarkostnaður af afnámi allra skerðinga eða afnámi þeirra í hlut- um, t.d. gagnvart hópum (með varanlega örorku, tímabundna ör- orku, aldraðir) eða gagnvart teg- undum tekna (laun, greiðslur frá líf- eyrissjóðum, vaxtatekjur). Af þessu tilefni vil ég benda á eftirfarandi al- menn sjónarmið í málinu. Ríkissjóður gefur og tekur Ríkið bæði gefur og tekur og sumum finnst það leggja nokkra áherslu á hið síðarnefnda. Ef ríkið leggur fram fé til afnáms skerðinga mun umtalsverður hluti þess koma til baka. Full ástæða er til þess að reiknað sé út á vegum Stjórnarráðs- ins hvað afnám tekjuskerðinga; allra tekjuskerðinga bæði hjá ör- yrkjum og öldruðum sem og tekju- þaka, kosta ríkissjóð raunverulega og hver samfélagslegur ávinningur verður. Sanngirni í skattheimtu Minnt skal á að skerðingarnar eru skattur (jaðarskattur) sem fer upp í og jafn- vel yfir 100%. Skatt- þrep eru því í raun fleiri en tvö hér á landi. Þær eru siðferði- lega óverjandi, til dæmis vegna þess að þær gera greiðslur til lífeyrissjóða óþarfar sem nemur skerðingunum. Lögum samkvæmt renna að lágmarki 12% af öllum launum til lífeyrissjóða en mikill meirihluti greiðenda nýtur ekki ávinningsins til fulls. Skerðing- arnar kunna því einnig að vera ólög- legar og brjóta í bága við megin- reglur stjórnsýslu og stjórnarskrár, svo sem eignarréttarákvæði. Líf- eyrisþegar eiga augljósa kröfu á að tekjur þeirra séu skattlagðar í sömu skattþrepum og almennt gilda. Tekjuskattur Skerðing lífeyris kemur til þegar aflað er viðbótartekna eftir að per- sónufrádráttur lífeyrisþega hefur þegar verið nýttur. Því fær ríkið 36,94% af kostnaðarauka félags- málaráðuneytisins til baka í formi staðgreidds tekjuskatts. Ef saman- lagðar tekjur öryrkja eða aldraðra fara yfir 834.707 krónur er skatt- þrepið 46,24%. Áætla má með að ríkið taki strax til baka um 38% framlags sína og því komi aðeins 62% af því til greiðslu. Aðrir skattar og gjöld Almennur virðisaukaskattur er 24% og áætla má að ríkið fái ekki minna en 20% af upphæðinni sem kemur til greiðslu til baka með honum. Þá eru ótaldir aðrir skattar og gjöld og sértekjur stofnana sem aukast með aukinni einkaneyslu og virkni lífeyrisþega. Því má álykta að skattar taki til baka ekki minna en 51% af útlögðum kostnaði ríkisins vegna niðurfellinga skerðinga á líf- eyri. Aukin atvinnuþátttaka Atvinnuþátttaka ætti að aukast með lækkuðum sköttum. Þá er hvatinn til þess að vinna til staðar, en hann er þó mjög mismikilvægur. Gagnvart öryrkjum með tíma- bundna örorku er hann mikilvæg- astur, en samfélagsleg áhrif af virkni í starfi og leik eru þó ótvírætt öllum til hagsbóta, ekki síst geð- sjúkum, en félagsleg einangrun er oft hlutskipti þeirra. Forsjárhyggjumenn gætu svo sagt að aldraðir ættu ekki að vinna, en margir þeirra vilja það. Vinnu- framlag þessara hópa yrði vænt- anlega mismikið eftir árferði, þeir gætu orðið nokkurs konar vara- vinnuafl í þensluástandi. Með afnámi skerðinga aukast einnig líkur á að tekjur sem falla undir hið „svarta“ hagkerfi komi upp á yfirborðið, sem vissulega eyk- ur tekjur ríkisins. Hér er áætlað að framtaldar vinnutekjur öryrkja og aldraðra aukist að jafnaði um 5 þús. kr. mán- aðarlega við afnám skerðinga eða um 60 þús. kr. á ári, sem hlýtur að vera hóflegt. Skattar af þeim tekjum myndu nema um tveimur milljörðum. Samfélagsleg áhrif Samfélagslegur ávinningur er einkum auknar ráðstöfunartekjur einstaklinganna. Þær aukast annars vegar með afnámi skerðinga sem má áætla að nemi 4,9 milljörðum pr. hverja 10 milljarða sem ríkið leggur fram sé miðað við óbreytt vinnu- framlag og hins vegar vegna auk- inna atvinnutekna sem hér er miðað við að séu 1,8 milljarður. Áætlað er að um 10 þúsund er- lendir starfsmenn komi til starfa hér á landi á árinu. Það kallar á kostnaðarsama innviði svo sem hús- næði, samgöngur, fjarskipti og ann- að. Enda þótt alþjóðleg gögn sýni að innflutningur vinnuafls borgi sig má reikna með að vinnuafl öryrkja og aldraða borgi sig enn betur, meðal annars í ljósi þess að allir innviðir fyrir þá eru þegar fyrir hendi. Niðurlag Hér hefur verið gefin mynd af því hvaða áhrif afnám skerðinga hefur á ríkissjóð og samfélagið og á grund- velli hennar má áætla að af hverjum 10 milljörðum sem ríkið leggur fram séu aðeins 3-4,5 raunveruleg útgjöld og að samfélagslegu áhrifin séu mjög jákvæð bæði siðferðilega og efnahagslega og svo umtalsverð og þau verður að taka með í reikning- inn. Skoða þarf málið betur. Í ljósi þess að félags- og jafnréttismálaráðherra stefnir að því að afnema skerðingar á lífeyri og einfalda lífeyriskerfin verður að vænta þess að ráðuneytið gefi fram- vegis heildstæðar og réttar upplýs- ingar um málið. Engin ástæða er til að bíða með framkvæmd þess. Núverandi þensluástand skapar kjöraðstæður fyrir afnám skerðinga á lífeyri. Ábending til félags- og jafnréttismálaráðherra Eftir Hauk Arnþórsson » Afnám skerðinga á lífeyri gæti raun- verulega kostað rík- issjóð 3-4,5 kr. af hverj- um 10 sem það leggur fram. Samfélagslegu áhrifin yrðu mjög ákjós- anleg. Haukur Arnþórsson Höfundur er stjórnsýslufræðingur. haukura@haukura.is Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.