Morgunblaðið - 26.08.2017, Page 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Treystu ekki hverjum sem er fyrir
þínum hjartans málum. Allt sem þú vilt er
samþykki og frelsi til að tjá þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt auðvelt með að hafa áhrif á ann-
að fólk og telja það á þitt band. Innlegg ann-
arra gæti veitt þér meiri innblástur en þig
hefur dreymt um.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú stendur á tímamótum og þarft
að gera upp hug þinn til nýrra verkefna. Ef þú
ert ekki í jafnvægi getur þú lítið sem ekkert
gert fyrir aðra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það getur haft slæmar afleiðingar að
rugla saman draumi og veruleika. Svo lengi
sem svartsýnin tekur ekki völdin í lífinu, má
hlusta á hana af og til.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er spenna í loftinu varðandi pen-
inga og sameiginlegar eignir. Vertu samt op-
in/n fyrir því að breyta til ef það tækifæri
býðst en skoðaðu málið frá öllum hliðum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ýmislegt að gerast hjá þér
núna og þú átt fullt í fangi með að komast yf-
ir það allra nauðsynlegasta. Njóttu þess að
vera með börnum þínum og öðrum ástvin-
um.
23. sept. - 22. okt.
Vog Viðhorfið skiptir öllu, þess vegna áttu að
gleðjast. Að vandlega íhuguðu máli hlýtur þú
að finna bestu lausnina.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er alltaf ánægjulegt þegar
góðir vinir reka inn nefið. Vilji til samvinnu og
að ná raunsæislegu samkomulagi hentar þér
vel.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarf að eiga við fólk með mik-
inn viljastyrk og aðrar hugmyndir en þú. Gef-
ið ykkur tíma til að greiða úr flækjunni og þá
leysast allir hlutir auðveldlega.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhver er með stuttan kveikiþráð
í dag. Samskiptahæfni þín er mikil og því er
lítil hætta á að þú troðir öðrum um tær. Búðu
þig samt undir harða samkeppni sem þú þó
átt að geta sigrast á.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það hefur ekkert upp á sig að
æpa á aðra og slík ósanngirni lagar ekki
stöðuna. Kannski hefur þú of margar langan-
ir sem yfirgnæfa hver aðra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert á varðbergi vegna einhvers
sem tengist sameiginlegum eigum og fast-
eignum. En láttu þér ekki detta í hug að þetta
haldist óbreytt um alla eilífð.
Laugardagsgátan er sem endra-nær eftir Guðmund Arn-
grímsson:
Hendir oft þann, sem ferðast á fjöllum.
Finna í ritgerðum nemenda má.
Skekkja í hugsun hjá konum og köllum.
Í körfuboltanum ýmsir fá.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Sumir villu fá á fjöllum.
Finnast villur stílum í.
Hugarvillur oss hjá öllum.
Einnig villur leikjum í.
Árni Blöndal svarar – og er orða-
leikur í síðustu hendingunni:
Villtur gengur vítt um fjöll
Villu finn í stílabók.
Villa í hugsun vond er öll.
VILLA finnst á Sauðárkrók.
Króknum varð að koma að
Króksaranum líkar það.
Kveður og syngur króksarinn, –
kátur Skagfirðingurinn.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Í villum er gjarnan vandi á fjöllum.
Villur í ritsmíð bæta má.
Villuhugsun er tíð hjá tröllum
og tæknivillur í körfu fá.
Helgi Seljan svarar:
Í þoku á fjöllum skal villurnar varast
og villur í ritgerðum margar ég sá.
Hugsanavillur við skynsemi skarast,
menn skollans villur í boltanum fá.
Hér er svar Helga R. Einarssonar:
Í körfu mér við hana’ er illa.
Nú lausnin sem hentar í línunum öllum,
á fjöllum, í ritgerð, hjá konum og köllum,
er líkast til nafnorðið villa.
Þannig skýrir Guðmundur gát-
una:
Þann hendir oft villa, sem ferðast á fjöll-
um.
Finna má ritvillur nemendum hjá.
Hugsanavilla hjá konum og köllum.
Í körfubolta oft villu menn fá.
Þá er limra:
Menn vaða í villu og svíma
og verja í rugl sínum tíma.
Í tölvum og appi
þeir tjá sig af kappi
og sjást ekki nema í síma.
Að lokum er ný gáta eftir Guð-
mund:
Á fætur ég fer nú rogginn,
fæ mér eitthvað í gogginn,
glaðbeittur geng úr hlaði
og gátuna klára með hraði:
Tár, sem vætir vanga þinn.
Vera mjólkurdropi kann.
Býsna hart það bítur kinn.
Blý, sem getur drepið mann.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Í villu og svíma
„ÞETTA ER BETRA EN AÐ VINNA Í
SKRIFSTOFUBÁS.“
„GEMMÉR LYKILINN AÐ BÍLNUM SEM
FYRIRTÆKIÐ LÉT ÞIG FÁ!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að leika sér ekki með
tilfinningar annarra.
HÚN REYNDI AÐ KEYRA YFIR
MIG Á TRUKKNUM SÍNUM
SEM BETUR FER ERU ÁTJÁN
HJÓLA BÍLAR EKKI SVO
LIPRIR Í AKSTRI
ÞÚ KANNT AÐ
VELJA ÞÆR
SLÆMT STEFNU-
MÓT, GRETTIR
ÉG HELD AÐ
HANN MEINI ÞIG,
HRÓLFUR!
EF ÞÚ SENDIR MIG AFTUR Í BARDAGANN
MUN ÉG MEIÐA EINHVERN ILLA!
SLAMM
KA-PÁ!
Víkverji þurfti í vikunni að láta takaúr sér blóðsýni í Landspítalanum
í Fossvogi. Víkverji hefur farið þang-
að margoft, oftar en ekki að morgni
þegar opnað er, klukkan átta. Þá er
jafnan mikið að gera og biðin getur
verið drjúg. Í vikunni var hún hátt í
klukkutími. Það verður að segjast
eins og er að aðstaðan þarna á bið-
stofunni er ekki góð. Þetta er glugga-
laus gangur og þegar mikið er að
gera þarf helmingur fólksins sem bíð-
ur að standa. Þarna verður loftlaust
og ekki hægt að láta sér líða mjög vel.
Það er nauðsynlegt að taka með sér
bók eða að minnsta kosti snjallsíma
til að stytta biðina.
x x x
Það er minnst á Reykjavík í nýjastahefti tímaritsins Monocle þar
sem borgin er sögð góð til búsetu og
hafa ýmsa kosti, þar á meðal að í
borginni sé vart nein umferð að ráði.
Það er önnur upplifun en margir
Reykvíkingar hafa en glöggt er gests
augað. Sendiherra Breta á Íslandi,
Michael Nevin ræddi umferðina í við-
tali við Sunnudagsblað Morgunblaðs-
ins fyrr á þessu ári. Þar kemur fram
að hann og Sawako kona hans hafi
lúmskt gaman af því þegar borg-
arbúar býsnist yfir umferðarþunga í
Reykjavík og hversu langan tíma það
taki þá að komast til og frá úthverfum
borgarinnar. „Það sem þið kallið út-
hverfi og nágrannabæi þykir mér nú
bara vera nokkuð miðsvæðis. Við
bjuggum í Naíróbí þar sem mann-
fjöldinn er gríðarlegur og umferð-
arþunginn getur verið með ólík-
indum, svo trúið mér, þetta gæti verið
mun verra,“ sagði hann.
x x x
Víkverji upplifði umferðarteppueins og hann hefur aldrei upp-
lifað fyrr á franskri hraðbraut í sum-
ar. Leið sem á venjulega að taka um
þrjá tíma varð að fimm klukkustunda
akstri en á köflum silaðist bílalestin
áfram á gönguhraða. Stundum
greiddist úr umferðinni á einhvern
óskiljanlegan hátt en svo tepptist hún
aftur á jafn dularfullan hátt. Ekki var
að sjá að nokkuð hefði breyst. Í slík-
um aðstæðum þýðir ekkert annað en
að sýna þolinmæði. Víkverji mælir
með að vera vopnaður loftkælingu í
þessum aðstæðum. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég vil lofa nafn Guðs í ljóði og mikla
hann í lofsöng.
(Sálm. 69:31)
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is