Morgunblaðið - 26.08.2017, Page 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það var svona „látið orðið ber-ast“ andi yfir Bubba-tónleik-unum á Dillon nú á þriðju-
daginn. Bubbi setti inn
stöðuuppfærslu á Fésbókina upp úr
hádegi þar sem hann minnti á tón-
leikana og maður varð var við að
fólk fór að bregðast við í nær-
umhverfinu. Nokkrir vinir „læk-
uðu“ og ég ákvað þá og þegar að
smella mér, kíkja aðeins á kappann.
Og það var sem mig grunaði, það
komust bókstaflega færri að en
vildu, efsta hæðin á Dillon alger-
lega smekkfull. Samsetning áhlýð-
enda var einnig athyglisverð.
Þarna voru gamlir hundar frá
pönkárunum, hökustrjúkandi popp-
pennar eins og greinarhöfundur en
einnig kornungar stúlkur sem köll-
uðu eftir óskalögum. Merki um þá
breiðu skírskotun sem tónlist
Bubba hefur en líka um þá stöðu
sem Bubbi er kominn í. Þjóðardjásn
og lifandi goðsögn, eitthvað sem
festist æ betur í sessi með hverju
árinu. Ein, tvær setningar á Fésbók
upp úr hádegi og staðurinn troð-
fullur klukkutímum síðar!
Ég hef líka fundið fyrir spennu
og áhuga vegna nýútkominnar
plötu hans, Túngumál. Bubbi dælir
út efni, svo mikið er víst, og gæða-
staðallinn er óvenjuhár, sér-
staklega ef miðað er við útgáfutíðn-
ina. En það er eitthvað alveg
sérstakt í gangi á Túngumáli og
fólk hefur brugðist við því, einfald-
lega af því að það hefur fundið sig
knúið til þess. Hinn geðríki Guð-
mundur Andri, snilldarpenninn sá,
skrifaði afskaplega fallega færslu á
dögunum um plötuna og kjarnaði
þar margt af því sem fólk hugsar:
„Hún er sunnanþeyr. Þar er ekki
lognmolla heldur næringarrík haf-
gola. Þegar maður hlustar umlykur
mann hlýjan, í hljómnum, mjúkum
gíturum, röddinni, skáldskapnum, í
mildri einlægninni. Þetta er Bubbi
vinur okkar, skáldið okkar, sem hér
hljómar.“
Eins og segir, staðurinn var
troðinn og ég sá lítið til, gat greint
Bubba með því að gægjast yfir bar-
borðið og fyrir horn einhvern veg-
inn. En tónlistin fyllti fallega upp í
allar glufur. Og það var yndislegt
að heyra þessa frábæru plötu spil-
aða af höfundinum. Allt rann þetta
Bubbi … á meðal manna
Morgunblaðið/Einar Falur
Tungan töm Bubbi Morthens, lifandi goðsögn og fleira til …
blítt og vel, nefni „Tunga svip-
unnar“ sem var sérstaklega hríf-
andi og í „Ég hef enga skoðun“
fékk hann salinn til að syngja með í
viðlaginu. „Skýin hafa vængi“ er
líka frábært, háa falsettan algjör
snilldarpunktur yfir i-ið. „Cohen
blús“ var magnaður en best var
„Skilaðu skömminni“, ekki bara
vegna nístandi textans heldur er
lagasmíðin sem slík afar áhrifamik-
il, það er ekki hægt annað en að
staldra við og hlusta.
Tónleikunum lauk svo með
ábreiðu á „Love will tear us apart“
með Joy Division en einnig kom
Nina Simone við sögu og svo
skemmtilega nýstárleg útgáfa af
„Stál og hnífur“.
Menn eins og Cash og Cohen
sendu frá sér sláandi verk á síðari
hluta ferilsins og Cave er að sama
skapi að búa til hrífandi tónlist, þá
tónlist sem er bara hægt að gera
þegar menn eru komnir á aldur.
Það er styrkjandi værð og lifuð
reynsla bundin í Túngumál og
spennandi að sjá hvernig mál munu
þróast næstu árin hjá þessum mikla
meistara.
»En það er eitthvaðalveg sérstakt í
gangi á Túngumáli og
fólk hefur brugðist við
því, einfaldlega af því að
það hefur fundið sig
knúið til þess.
Bubbi Morthens kynn-
ir nú plötu sína Túngu-
mál af krafti með tón-
leikum úti um allar
þorpagrundir. Pistil-
ritari greip hann glóð-
volgan á Dillon nú á
þriðjudaginn.
Tónlistarkonan Sunna sendi frá sér
sitt fyrsta lag í gær undir eigin
nafni, „Hero Slave“, og kom það út
á Spotify og öðrum helstu tónlist-
arveitum. Tónlistarvefurinn The
Line of Best Fit fékk hins vegar að
flytja það viku fyrr og fer fögrum
orðum um tónlist Sunnu, segir lagið
framkalla alsælu og krefjast þess
að vera leikið aftur og aftur.
Sunna hefur, þrátt fyrir ungan
aldur, fengist við tónlist meira og
minna alla ævi, alin upp á tónlistar-
heimili en faðir hennar er Þórir
Baldursson. Hún fékk að kynnast
erfiðu en skemmtilegu lífi atvinnu-
tónlistarmannsins þegar hún hélt
út í heim sem söngkona danssveit-
arinnar austfirsku Bloodgroup, þá
innan við tvítugt. Hún býr í dag í
Lausanne í Sviss þar sem hún er í
myndlistarnámi. Sunna hyggst
senda frá sér fleiri lög áður en hún
ræðst í að taka upp heila plötu.
Line of Best Fit hrifið af Sunnu
Ljósmynd/Senta Simond
Lof Sunna hlýtur lof fyrir fyrsta lag
sitt á vefnum The Line of Best Fit.
Kvikmyndaleikstjórinn Patty
Jenkins hefur svarað ummælum
kollega síns James Cameron, sem
fór niðrandi orðum um kvikmynd
hennar um Undrakonuna, Wonder
Woman, í viðtali í dagblaðinu The
Guardian í vikunni. Cameron
sagði myndina skref aftur á bak
fyrir kvenkyns aðalpersónur og
að Undrakonan, sem Gal Gadot
leikur, væri hlutgerð helgimynd.
Jenkins skrifaði í kjölfarið á
Twitter að ekki kæmi á óvart að
Cameron væri ófær um að gera
sér grein fyrir því fyrir hvað
Undrakonan stæði í huga kvenna,
því þó svo hann væri framúrskar-
andi kvikmyndagerðarmaður
væri hann ekki kona. „Krafmiklar
konur eru frábærar,“ skrifaði
Jenkins og þakkaði Cameron þó
fyrir að hæla kvikmynd hennar
Monster sem fjallar um sterka
ógæfukonu.
Cameron sagði í viðtalinu að
Sarah Connor, aðalkvenpersóna
kvikmyndar
hans Term-
inator, væri hin
fullkomna kven-
hetja þar sem
hún hefði sína
djöfla að draga
en væri hörð af
sér og hefði
þannig áunnið
sér virðingu
áhorfenda, þ.e.
með hörkunni. Jenkins benti á að
konur þyrftu ekki að uppfylla ein-
hver sérstök skilyrði til að teljast
hetjur. „Ef konur þurfa alltaf að
vera harðar af sér og þjakaðar til
að teljast sterkar og ef við höfum
ekki frelsi til þess að vera marg-
brotnar og fagna kvenkyns helgi-
mynd af því hún er aðlaðandi og
elskuleg, þá höfum við nú ekki
náð langt,“ skrifar Jenkins og
ítrekar að ekki sé til ein tiltekin
útgáfa eða uppskrift að kraftmik-
illi konu.
Jenkins svarar Cameron fullum hálsi
Undrakonan
Gal Gadot.
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16
Yfir 20 gerðir til á lager
Verð frá 6.915,-
Vandaðir póstkassar frá
SÝND KL. 8, 10.30
SÝND KL. 8, 10.30 SÝND KL. 2, 4, 6
SÝND KL. 8, 10.25
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 2SÝND KL. 2, 4, 6SÝND KL. 5