Fréttatíminn - 24.02.2017, Qupperneq 8
8 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2017
AUDI Q7 4,2 L QUATTRO PREMIUM
Árg. 2007 , ekinn 71 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur, leður, glertoppur.
Einn eigandi!
TILBOÐSVERÐ 3.100.000 kr.
Raðnr. 255982
AUDI A5 SPORTBACK 2
0TDI 02/2011,
ekinn 154 Þ.km, dísel, sjálfskiptur.
TILBOÐSVERÐ 3.590.000 kr.
Raðnr. 255845
TOYOTA AVENSIS
S/D SOL 03/2012,
ekinn 77 Þ.km, bensín, sjálfskiptur.
TILBOÐSVERÐ 1.890.000 kr.
Raðnr. 256106
AUDI A3 SPORTBACK E-TRON 2016
ekinn 6 Þ.km, bensín/rafmagn,
sjálfskiptur. Mjög vel búinn af
aukahlutum!
Verð 4.970.000 kr.
Raðnr. 255653
CHEVROLET CAPTIVA 2
2TDI nýskr. 06/2013,
ekinn 108 Þ.km,
diesel, sjálfskiptur, 7manna.
Verð 3.490.000 kr.
Raðnr. 256109
Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son er þjálfari eins ríkasta
kvennaknattspyrnuliðs í heimi,
Jiangsu Suning í Kína, og er
gert af eigendum þess að sigra í
kínversku ofurdeildinni í ár. Til
þess hefði hann viljað fá íslenskar
landsliðskonur til sín. Hann
furðar sig á Frey Alexanderssyni
landsliðsþjálfara sem vildi ekki
að landsliðskonurnar spiluðu í
Kína. Hér segir hann frá ævin-
týralegri uppbyggingu kínverskr-
ar knattspyrnu, heimsklassa
aðstæðum og hvort peningar geti
sigrað allt í fótbolta.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
„Ég fór til Kína í starfsviðtal þegar
þeir voru að leita að þjálfara kín-
verska A-landsliðs kvenna árið
2015. Við vorum þrír sem kom-
um til greina í starfið en á endan-
um var fyrrum landsliðsþjálfari
Frakka ráðinn, góðkunningi okk-
ar, Bruno Bini.“
Sigurður Ragnar hefur áður
tekist á við Bruno Bini. Frakkar
voru höfuðandstæðingar íslenska
kvennalandsliðsins í undankeppni
Evrópumeistaramótsins árið 2009.
Þá stýrði Sigurður Ragnar íslenska
liðinu og Bini því franska. Liðin
unnu sinn heimaleikinn hvort
en Frakkarnir voru með nokkuð
sterkara lið.
„Svo gerðist ekkert meira fyrr en
ég kíkti niður í KSÍ í jólafríinu. Þá
biðu mín skilaboð frá Kínverja sem
hafði reynt að nálgast mig í gegn-
um knattspyrnusambandið. Sá
sagðist vera að leita að þjálfara fyrir
kvennalið Jiangsu Suning og spurði
mig hvort ég hefði áhuga á starfinu.
Það vildi þannig til að ég var nýbú-
inn að ganga frá starfslokasamningi
sem aðstoðarþjálfari Lillestrøm í
norsku úrvalsdeildinni, og var at-
vinnulaus. Ég var reyndar nálægt
því að samþykkja tilboð frá banda-
ríska knattspyrnusambandinu,
en varð svolítið spenntur fyrir að
skoða þetta. Úr varð að ég fór í við-
tal til Kína ásamt Daða Rafnssyni
sem var lengi yfirþjálfari Breiða-
bliks og hefur kennt á þjálfaranám-
skeiðum KSÍ. Í kjölfarið voru okkur
boðnar stöður þjálfara og aðstoðar-
þjálfara liðsins. Við fluttum til Kína
22. janúar og höfum því verið hér
í mánuð.“
Á að vinna deildina
Sigurður Ragnar segir ástríðu hans
fyrir þjálfarastarfinu hafi ráðið úr-
slitum og orðið til þess að hann
valdi Kína fram yfir Bandaríkin.
„Í Kína bauðst mér aðalþjálfara-
starf. Í langflestum þjálfarastörfum
hefur þú úr litlu fjármagni að moða
til að geta eflt liðið. Hjá Jiangsu
Suning er því eiginlega öfugt far-
ið. Þetta er eitt ríkasta félag í heimi
í kvennaknattspyrnu. Við getum
keppt við hvaða lið sem er í laun-
um leikmanna. Það sem mér þótti
líka spennandi við verkefnið var að
liðið féll næstum því úr kínversku
ofurdeildinni í fyrra. Á miðju
keppnisári kom fyrirtækið Suning
inn sem styrktaraðili og þeir höfðu
gríðarlegan metnað til að skapa lið
í fremstu röð. Eitt af markmiðun-
um sem þeir hafa sett sér í ár, er að
vinna kínversku ofurdeildina.“
Og þú berð ábyrgð á að ná þessum
markmiðum?
„Já. Reyndar var talað um það
þegar ég tók við liðinu að við mynd-
um reyna að ná einu af þremur
efstu sætum deildarinnar. Nú hef-
ur klúbburinn gefið út að þeir vilji
að kvennaliðið verði meistarar. Þær
voru 16 stigum frá því í fyrra og það
eru aðeins 8 lið í deildinni, sem þýð-
ir að þær voru ansi langt frá því að
vinna. Það eru því háleit markmið
að vilja sigra í deildinni.“
Öllu tjaldað til
Sigurður Ragnar óttast ekki áskor-
unina og heldur nú til í Suðaust-
ur-Kína þar sem æfingaaðstaða fé-
lagsins er. „Æfingasvæði okkar er
um það bil 30 mínútum fyrir utan
borgina. Félagið hefur gert atvinnu-
mannasamninga við 53 leikmenn
sem búa frítt á svæðinu og eru á
fullum launum. Æfingaaðstaðan
er til fyrirmyndar með tíu æfinga-
völlum, gervigrasvelli, flóðlýstum
leikvangi sem tekur mörg þúsund
manns í sæti, stóru íþróttahúsi
með lyftingatækjum, sundlaug og
mötuneyti þar sem allir borða
Vildi íslenskar
landsliðskonur til Kína
Hjá liðinu sem Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfar eru 53 leikmenn á atvinnu-
mannasamningum og fullum launum allan ársins hring. Félagið hefur sett sér
það markmið að sigra í kínversku ofurdeildinni í ár.
Sigurður Ragnar,
fyrrverandi lands-
liðsþjálfari, er ósáttur
við orð núverandi
þjálfara A-lands-
liðs kvenna, Freys
Alexanderssonar, um
að ef landsliðskonur
velji að spila í Kína,
hafi það áhrif á val
hans í landsliðið.
Sigurður Ragnar
telur þá skoðun Freys
byggjast á fordómum
gagnvart kínverskri
knattspyrnu og spyr
hversvegna það sé í
lagi að landsliðsmenn
spili í Kína, en ekki
konur?