Fréttatíminn - 24.02.2017, Side 12
12 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2017
Sköpun falskra frétta sem miða
að því einu að fá fólk til að smella
á fréttirnar á netinu er orðin
iðnaður. Sænska blaðið Dagens
Nyheter rakti eina slíkra falska
frétt um Svíþjóð og innflytjendur
til kjallara í bæ í Makedóníu og
sagði söguna um áhrif fréttarinn-
ar. Donald Trump Bandaríkja-
forseti byggir heimsmynd sína
að hluta til á fölskum fréttum úr
áróðursmiðlum sem hann svo
endurtekur opinberlega. Falskar
fréttir hafa sín áhrif á Íslandi
eins og annars staðar.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
„Ég hef gert það að starfi mínu að
reyna að átta mig á því hvað fólk
í Bandaríkjunum vill lesa,“ segir
Makedóníumaðurinn Ivan Stan-
kovic í viðtali við sænska dagblað-
ið Dagens Nyheter. Stankovic vinn-
ur við það að búa til falskar fréttir,
uppspuna sem oft snýst um að ala
á kynþáttahatri og -fordómum.
Fyrir vikið fær Stankovic fólk inn
á heimasíðuna sem hann rekur og
selur auglýsingar inn á: Hann fær
um sex krónur fyrir hvert klikk á
hverja auglýsingu. Stankovic segist
reyna að finna efni sem „allir vilja
deila með vinum sínum“ og klikka
á: Donald Trump, íslam, múslímar
og Melania Trump, svo dæmi séu
tekin.
Viðtal við Stankovic var birt í
sænska blaðinu í grein um síðustu
helgi þar sem uppruni falskar frétt-
ar um að hópur múslima sem væru
flóttamenn hefði stundað sjálfsfró-
un, pissað og kúkað inni í kirkju í
borginni Kristianstad á Skáni var
rakin til heimasíðu hans, Focus
News. Fréttinni var deilt 110 sínum
á Facbook og náði til rúmlega þrjú
þúsund Bandaríkjamanna. Rúm-
lega 300 af þessum 3000 klikkuðu
á eina af auglýsingunum á heima-
síðu Ivans og fékk hann samtals
um 200 sænskar krónur, rúmlega
2500 íslenskar krónur, frá aug-
lýsendum fyrir vikið.
Vinnur við að afvegaleiða fólk
Ivan, sem er 25 ára, býr í bænum
Kumanovo í Makedóníu og rekur
Focus News úr kjallaranum heima
hjá pabba sínum. „Ég er búinn að
vera atvinnulaus í fjögur ár. Þannig
að þetta er fullkomið fyrir mig. Ég
get setið heima og grætt peninga
og meira að segja reykt á sama
tíma.“
Þessi frétt sem Ivan skrifaði um
kirkjuna í Kristianstad gekk óvana-
lega vel hjá honum. Það sem hann
gerði var að taka sænska frétt sem
var sönn um að „nýir viðskipta-
vinir“ hefðu fróað sér, kúkað og
pissað í kirkju og segja að um væri
að ræða múslíma sem væru inn-
flytjendur. Fréttin var því rétt í
grunninn – atburðirnir í kirkjunni
áttu sér stað – en hann skáldaði
upp hverjir það voru sem „vanhelg-
uðu“ kirkjuna eins og það var orð-
að til að fá Bandaríkjamenn til að
klikka á fréttina og þar með græða
peninga á sölu auglýsinga.
„Nýju viðskiptavinir“ kirkjunnar
í Kristianstad, sem staðarblað þar
í borg sagði, frá voru í raun fíkni-
efnaneytendur sem leituðu skjóls
undan vetrarkuldanum í kirkjunni
og maðurinn sem fróaði sér þar
inni var sænskur fíkniefnaneyt-
andi sem búið hafði lengi í borginni
en sem lést fyrir nokkrum árum.
Þeir skildu líka eftir sig umbúðir
utan af skömmtum af meþadoni
sem þeir fengu frá nærliggjandi
meðferðarklíník. Ekki stóð því
steinn yfir steini í fréttaflutningi
Focus News enda var það ekki ætl-
unin: Múslímar og innflytjendur
komu hvergi nærri þeim atburðum
sem var lýst og virðast atburðirnir
í einhverjum tilfellum hafa verið
nokkurra ára gamlir.
Greinin í Dagens Nyheter er
merkileg fyrir þær sakir að hún
sýnir með mjög skýrum hvernig
falskar fréttir verða til og hvaða
áhrif þær hafa. Hún sýnir líka og
útskýrir hversu auðvelt það er fyr-
ir þá sem vilja búa til slíkar frétt-
ir að gera það því Stankovic lýsir
því hvernig hann lærði fag sitt af
myndböndum á Youtube.
Sannleikurinn skiptir ekki máli
Í greininni er viðtal við bandarísk-
an mann, Michael, sem býr á Flór-
ída og er stuðningsmaður Dona-
lds Trumps. Michael segir frá því
eftir að blaðamaðurinn segir hon-
um sannleikann í kirkjumálinu að
hann telji samt líklegt að það hafi
verið múslímar sem vanhelguðu
sænsku kirkjuna. Yfirvöld í Svíþjóð
vilji hins vegar ekki að reiði bein-
ist að múslímum og því hafi verið
fundin annar sökudólgur sem hafi
verið kennt um í málinu. „Maður
vanhelgar ekki hús Guðs. Múslím-
arnir hata kristna menn, ok. Íslam
snýst eiginlega bara um pólitík.
Það hefur ekkert með trúarbrögð
að gera, jafnvel þó þeir vilji að
þetta líti þannig út. Þeir hafa sagt
að þeir muni taka yfir allan heim-
inn. Ef þú lest Kóraninn þá stendur
það þar. Ég veit ekki alveg hvar en
þetta stendur þarna.“
Sannleikurinn skipti Michael því
engu máli því hann ákvað að trúa
frekar því sem hann vildi í stað
þess sem var satt.
Tengingin við ræðu Trumps
Grein Dagens Nyheter var birt
um svipað leyti og Donald Trump
Bandaríkjaforseti vísaði til ótil-
greindra atburða í Svíþjóð í ræðu til
stuðnings þess að gæta ætti að fjölda
innflytjenda. Svo virtist sem Dona-
ld Trump hafi haldið að hryðjuverk
hafi verið framið í Svíþjóð eftir að
hann sá heimildarmynd um inn-
flytjendur og glæpatíðni í landinu á
bandarísku sjónvarpsstöðinni Fox
News á föstudagskvöldið í síðustu
viku. „Þið sáuð hvað gerðist í Sví-
þjóð í gær.“ Heimildamyndin var í
áróðursstíl og var ætlað að undir-
Þannig verða
fölsku
fréttirnar til
Ekki stóð því steinn yfir
steini í fréttaflutningi
Focus News enda var það
ekki ætlunin: Múslímar
og innflytjendur komu
hvergi nærri þeim atburð-
um sem var lýst og virðast
atburðirnir í einhverj-
um tilfellum hafa verið
nokkurra ára gamlir.
Fyrir fölsku fréttina um múslímana í sænsku kirkjunni fékk Ivan Stankovic í Makedóníu rúmlega 2500 krónur. Hann sést hér í
kjallaranum þaðan sem hann skrifar fréttir sem hafa það að markmiði að vera smelludólgar (clickbait) fyrir Bandaríkjamenn.
ORKUSTOFNUN
Orka til breytinga
Hlutur vindorku og vatnsorku í
orkustefnu Noregs til 2030
- Auðlindir, kostnaður og leyfisveiting
Miðvikudaginn 1. mars kl 15:00 - 16:00
Fyrirlesarar frá NVE:
David Edward Weir og Fredrik Arnesen
frá Norges vassdrags- og energidirektorat (NVE)
Skráning á fundinn er á os.is
Fyrirlestrar verða í Orkustofnun,
1. hæð, Grensásvegi 9, Reykjavík
Fundurinn verður sendur beint út á
netinu, sjá upplýsingar á vef os.is
Kynningarfundur
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík
Sími 569-6000 - www.os.is
David Edw rd Weir og Fredrik
Arnesen