Fréttatíminn - 24.02.2017, Síða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2017
Sjónmælingar eru okkar fag
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
LAGERSALA
LÍN DESIGN
LAUGAVEGI 176
LAUGAR- O
G SUNNUD
AG
KL. 10
-17
KL.1
1-17
Miðstöð íslenskra bókmennta
auglýsir eftir umsóknum um
Útgáfustyrkjum er
ætlað að styðja við
útgáfu og miðlun
íslenskra ritverka
Þýðingastyrkjum er
ætlað að stuðla að
þýðingum erlendra
fagurbókmennta og
fræðirita á íslensku
Umsóknarfrestur
er til 15. mars 2017
Umsóknareyðublöð
og nánari upplýsingar
á www.islit.is
útgáfu- og
þýðinga styrki
Donald Trump Bandaríkjaforseti var staðinn að lygum um atburði í Svíþjóð sem
tengjast innflytjendum og múslímum.
byggja þá skoðun að innflytjend-
ur í Svíþjóð fremji fleiri glæpi og séu
meira til vansa en Svíar. Sænskir
fjölmiðlar tættu myndina í sig eft-
ir að mál Trumps kom upp og var
bent á fjölmargar villur sem komu
fram í henni þar sem ætlunin var
að mála upp dökka upp mynd af
innflytjendum í landinu. Ekkert í
heimildamyndinni benti þó til að
eitthvað hefði gerst í Svíþjóð daginn
áður eins og Trump hafði sagt.
Orð Trumps vöktu sterk við-
brögð í Svíþjóð og spurði Carl
Bildt, fyrrverandi forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra, meðal
annars að því hvað Donald Trump
hefði verið að reykja og benti á að
helmingi fleiri morð hefðu verið
framin í sýslunni í Flórída-fylki þar
sem hann hélt ræðuna en í Svíþjóð
í fyrra. Í stuttu máli var þetta til-
felli enn eitt dæmið um það að
Donald Trump er staðinn að því
að fara með rangt mál opinberlega,
ljúga hreint út og eða bulla og leit
hann vægast sagt illa út fyrir vik-
ið. Lygar Trumps í þessu tilfelli
byggðu á illa unninni og áróðurs-
kenndri sjónvarpsmynd sem var
full af staðreyndavillum og sjálf í
raun því „fölsk frétt“ eins og grein
Ivans í Makedóníu.
Reynt að sanna sýn Trumps
Í kjölfar þessarar umræðu reyndu
margir andstæðingar múslíma
og innflytjenda víða um
heim að styðja og
styrkja orð Trumps
um Svíþjóð með því
að vísa til óeirða
sem brutust út í
hverf inu Rynke-
by í Stokkhólmi í
byrjun vikunnar og
eins með því að vísa
til þess hvernig staðan
í borginni Malmö væri
orðin út af fjölda innflytj-
enda þar.
Þetta var líka raunin á Íslandi
þar sem Eyjan sagði frétt um
óeirðirnar í Rynkeby sem Jón
Valur Jensson deildi á Facebook
með orðunum: „Óeirðaseggirnir í
Stokkhólmi voru fljótir að afsanna
RÚV-ruglið sem gekk út á það á
ekkifréttastofunni um helgina
að rengja og rangfæra orð for-
seta Bandaríkjanna eins og þeim
væri borgað fyrir það, og raunar
var þeim einmitt borgað fyrir það
– af íslenzkum skattgreiðendum,
sem eru ekki aðeins hlustendur og
þolendur rangtúlkana og falsfrétta
RÚV, heldur einnig „heiðraðir“
með því að vera kostun-
araðilar lygafrétt-
anna!“
Útvarp Saga tók
svo meðal annars
viðtal við íslenska
konu sem er búsett
í Malmö. Guðmundur
Franklín Jónsson, fyrr-
verandi forvígismaður Hægri
grænna og þátttakandi í prófkjöri
Sjálfstæðisf lokksins, tók meðal
annars viðtalið upp á Facebook og
sagði: „Viðtal við Íslending sem lýs-
ir ástandinu í Malmö. Hælisleitend-
ur búnir að hertaka nokkur hverfi
og íbúar þora ekki út á kvöldin.
Rán, nauðganir og morð. Hvar eru
viðtölin á RÚV við vini þeirra í Sví-
þjóð?“ Á samfélagsmiðlum, und-
ir færslu Guðmundar Franklíns,
spurði einn einstaklingur líka:
„Hafði Trump ekki rétt fyrir sér?“
og staðhæfði ein kona að innflytj-
endurnir væru að „koma sér fyrir
og taka öll völd“.
Þannig varð kúkur og piss eit-
urlytjendaneytenda í kirkju í Sví-
þjóð að hatursfullri umræðu um
múslíma og innflytjendur í Banda-
ríkjunum og rangfærslur Donalds
Trumps um Svíþjóð leiddu til þess
að fólk á Íslandi, sem er andsnúið
innflytjendum, gaf sér að samfé-
lagslegir atburðir þar í landi væru
innflytjendum og eða múslimum
að kenna. Á endanum er rótin að
allri þessari umræðu tilbúningur,
rangfærslur, ýkjur, lygar og rugl
um Svíþjóð sem notað er sem vatn
á myllu þeirra sem eru á móti inn-
flytjendum og múslímum.