Fréttatíminn - 24.02.2017, Side 31
Kidz Pro-5 eru án allra aukaefna,
þeir eru bragðlausir og á duft-
formi og því sérlega þægilegir
í notkun. Það má hræra þeim í
vatn, strá þeim yfir graut eða
hollt morgunkorn, setja í boost
og raunar blanda þeim í hvað
sem er.
• Án sykurs
• Án gerviefna
• Án rotvarnarefna
• Án laktósa
• Án gers
• Án glúteins
• Er vegan
Sjá nánar:
www.artasan.is/product/kids-pro-5/
Kidz Pro-5 upplýsingar
3 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2017 HEILSA MÓÐUR&BARNS
Acidophillus fyrir börnin
Kidz Pro-5 mjólkursýrugerlar frá Natures Aid eru sérstaklega ætlaðir börnum frá 1 árs aldri en þeir geta hjálpað til við að halda
jafnvægi á þarmaflórunni, hindrað vöxt óæskilegra baktería, bætt meltinguna, eflt ónæmiskerfið og varnir líkamans gegn
sýkingum. Þeir eru á duftformi sem hægt er að strá yfir grautinn eða hræra saman við vökva og því afar einfaldir í notkun.
Unnið í samstarfi við Artasan
Það er fátt sem skiptir jafn miklu máli fyrir heilsuna okkar og heilbrigð og rétt samsett þarmaflóra.
Þarmaflóran í venjulegri mann-
eskju inniheldur yfir þúsund mis-
munandi tegundir gerla og bakt-
ería. Jafnvægi þessara baktería
getur auðveldlega raskast vegna
veikinda, inntöku sýklalyfja, mik-
illar kaffidrykkju og ýmissa lífs-
stílstengdra þátta eins og mikils
álags, neyslu næringarsnauðrar
fæðu og fæðu sem er mikið
unnin.
Fyrir 2000 árum
sagði Hippókrates:
„Allir sjúkdómar
hefjast í meltingar-
vegi.“ Það er ekki
fyrr en nú hin síðar
ár sem við erum að
skilja hversu mikið
er til í þessum orðum.
Þarmaflóra
ungbarna
Gríðarlega mikilvægt er að
þarmaflóran hjá börnunum okkar
sé í góðu lagi en hún er undir-
staða öflugs ónæmiskerfis.
Þarmaflóran flyst frá móður til
barns í fæðingunni. Rannsóknir
hafa sýnt að börn sem tekin eru
með keisaraskurði eru gjarnari á
að fá sýkingar og ónæmissjúk-
dóma eins og astma og barnaex-
em. Verðandi mæður og mæður
með börn á brjósti þurfa því að
gefa þarmaflórunni sinni gaum til
að styrkja ónæmiskerfi ungbarn-
anna.
Sýklalyf drepa
góðu bakteríurnar
Börn fá að meðaltali sex til átta
vírussýkingar í öndunar-
færi árlega en sýkingar í
öndunarfærum eru ein
algengasta ástæða
fyrir heimsókn til
læknis og um 75%
af notkun sýkla-
lyfja er vegna
öndunarfærasýk-
inga. Endurtekin
sýklalyfjanotkun get-
ur hreinlega gengið af
þarmaflórunni dauðri. Allir
sem taka sýklalyf þurfa að passa
þarmaflóruna og taka inn mjólk-
ursýrugerla (probiotics). Best
er að taka inn gerla 2-3 klukku-
stundum fyrir eða eftir inn-
töku á sýklalyfjum, ekki
samtímis.
Uppþemba og
vindgangur
Börn, rétt eins og
fullorðnir, geta
fengið magaónot,
uppþembu og vind-
gang og geta góðir
gerlar þá gert krafta-
verk. Það verður að sjálf-
VIÐ KYNNUM HÁGÆÐA VÍTAMÍNLÍNU FYRIR BÖRN
Sölustaðir: apótek, heilsubúðir og Fræið Fjarðarkaupum.
Öflug
þarmaflóra er
grunnurinn að
góðri heilsu
sögðu að huga að mataræðinu en
ef það er ekki jafnvægi í þarma-
flórunni, er meltingin ekki að
vinna rétt og getur það valdið
miklum óþægindum. Í mörgum
tilfellum er óþol fyrir ákveðnum
matvælum beintengt skorti á
góðum bakteríum í meltingunni
og svo eru líka ákveðin matvæli
eins og sykur og unnin matvara
ýmiskonar sem hafa afar slæm
áhrif á þarmaflóruna.
Strá yfir grautinn
eða í drykkinn
Kidz Pro-5 eru mjólkursýrugerl-
ar ætlaðir fyrir börn frá 1 árs
aldri. Þeir innihalda 8 gerlastofna
og þeirra á meðal eru hinn öfl-
ugi asídófílus (Lactobacillus
Acidophilus) sem m.a. ver okk-
ur fyrir óvinveittum bakt-
eríum sem geta verið í
þörmunum, Lact-
obacillus Plantar-
um hefur mikilvæg
áhrif á einkenni
eins og niðurgang,
hægðatregðu og
vindgang og hann
fóðrar einnig þarma-
veggina þannig að
líkurnar á því að slæm-
Kidz Pro-5
eru án allra
aukaefna, þeir eru
bragðlausir og á
duftformi og því
sérlega þægilegir í
notkun.
ar bakteríur komist í blóðrásina
minnka. Að lokum skal nefna
stofn sem kallast Steptococcus
Thermophilus en hann er þekktur
fyrir að draga úr líkum á niður-
gangi sem orsakast af inntöku á
sýklalyfjum.