Fréttatíminn - 28.01.2017, Blaðsíða 44
Öll viljum við ganga að hlutunum vísum heima hjá okkur og hafa röð og reglu. En það þarf ekki að fara
í grafgötur með það að okkur er
ekki öllum gefinn sá hæfileiki að
skipuleggja vel í kringum okk-
ur. En blessunarlega eru þau til
sem eru verulega flink í þessu og
internetið er til að mynda uppfullt
af góðum ráðum fyrir draslara og
safnara sem eru að reyna að taka
sig á.
Hér eru nokkur góð ráð fyr-
ir þau sem eru orðin leið á
óreiðunni:
• Stór hluti óreiðunnar er fólginn
í blaðadrasli. Dagblöð, bæk-
lingar, reikingar, listaverk barn-
anna… Pappírslufsur um allt
gera híbýlin drusluleg. Hafið
einn stað þar sem allur pappír
fer og takið til og flokkið einu
sinni í viku. Þetta getur verið
karfa, blaðagrind, kassi eða
hvað sem er. Þú þarft ekki að
taka heilan dag í að minnka
ringulreiðina á heimilinu, slíkt
plan getur verið óyfirstíganlegt
og dæmt til þess að breytast í
sófahangs og frestunaráráttu.
Einsettu þér að taka til í 5-10
mínútur á dag í heila viku.
Þetta getur verið ein skúffa,
einn flötur, ein hilla eða annar
afmarkaður hluti heimilisins.
• Veltu hverjum hlut eða flík fyrir
þér sem þú ert að meðhöndla
eða ganga frá og veltu fyrir þér
hvort hluturinn/flíkin sé í notk-
un. Ef svarið er nei, veltu þá fyrir
þér hvers vegna þú ert að halda
upp á hann og hvort það megi
hreinlega losa sig við hann.
• Farðu gegnum eldhússkápana
og taktu frá og gefðu allt sem
þú hefur ekki notað síðastliðna
sex mánuði. Sama gildir um
aðra staði á heimilinu, þ.á.m.
fataskápana.
• Allir hlutir eiga að eiga sér
stað. Ef það eru hlutir heima
hjá þér sem eru alltaf að daga
uppi á handahófskenndum
stöðum þá ættir þú annað
hvort að finna þeim stað eða
losa þig við þá. Líklegt er að
það sem á sér ekki stað megi
missa sín.
• Ef þú kaupir eitthvað nýtt,
hentu þá öðru út í staðinn.
Reglan 1 inn - 2 út er líka góð.
• Þegar þú ferð í gegnum skúff-
ur og aðrar hirslur er gott að
byrja á því að losa þær alveg
og flokka síðan; ein hrúga fyrir
það sem má losa sig við, önnur
hrúga fyrir það sem á heima
annars staðar og þriðja hrúgan
fyrir það sem raunverulega á
heima á staðnum.
• Horfðu yfir herbergið og veltu
fyrir þér hvort allt þar inni
sé nauðsynlegt. Er eitthvað
sem má missa sín? Þarftu að
hafa öll þessu húsgögn? Eru
veggirnir nokkuð ofhlaðnir eða
má fara í gengum bókahilluna?
• Ekki byrja á því að kaupa hirsl-
ur og körfur og annað sem á
að nota til þess að skipuleggja
heimilið, byrjaðu á því að sjá
hvað það er sem vantar pláss
fyrir, hversu stórar hirslurnar
mega vera og hversu margar
þig vantar.
• Reyndu - og þessi er erfiðastur
fyrir mestu draslarana - að gera
eitt í einu. Ekki byrja á sjö ver-
kefnum án þess að klára neitt
þeirra. Það verður til þess að þú
situr uppi með fullt af ókláruð-
um verkefnum og enga orku til
þess að klára neitt þeirra.
• Gott getur verið að skrifa niður
það sem þarf að gera í hverju
herbergi fyrir sig. Það er afar
fullnægjandi að geta tikkað í
box þegar verkefni lýkur og
mjög hvetjandi fyrir framhaldið.
Ráð fyrir draslara
Taktu skipulagið á heimilinu föstum tökum á nýju ári.
Allt fyrir innréttingarnar í Hegas
Úrvalið er ævintýri líkast
Unnið í samstarfi við Hegas
Hegas á Smiðjuveginum er sérhæfð heildversl-un með hráefni og íhluti fyrir innréttinga og tré-
iðnaðinn og er úrvalið í Hegas æv-
intýri líkast. „Nánast allir sem eru
í innréttingasmíðum eru eitthvað
að versla við okkur,“ segir Axel
Eyjólfsson framkvæmdastjóri He-
gas ehf.
Hegas þjónar ekki síður
einstaklingum en fyrirtækjum.
„Einstaklingar geta keypt sér það
sem þeir þurfa, ef þeim vantar t.d.
hnífaparabakka eða kryddbakka
í skúffurnar eða hvað sem er,“
segir Axel en til þess að einhver
hugmynd sé gefin um úrvalið má
nefna 15 tegundir af hnífapara-
bökkum og yfir 20 tegundir af
ruslafötum. Mikil vitundavakning
hefur átt sér stað varðandi endur-
vinnslu og flokkun og er Heg-
as með landsins mesta úrval af
lausnum fyrir úrgang heimilisins.
Fyrir utan það sem þegar hef-
ur verið nefnt er gríðarlegt úr-
val af hvers konar íhlutum fyrir
innréttingar s.s. lamir, íhlutir í
skúffur, vírkörfur í fataskápa,
hálfmánar og hringgrindur fyrir
eldhússkápa, lausnir fyrir belti,
bindi og skó, skilrúm, höldur og
hurðarhúna og svona mætti lengi
telja. Sjón er sögu ríkari.
Myndrænan vörulista má nálg-
ast á heimasíðunni www.hegas.
is og einnig er glæsilegur sýn-
ingarsalur í húsnæði þeirra að
Smiðjuvegi 1.
Nokkrar týpur af endur-
vinnslutunnum. Einstak-
lega hentugar og til í allt
að 20 útfærslum.
Frábærar lausnir fyrir fataskápa.
Einstaklega
vel hannaðar
lausnir fyrir
hornskápa.
Axel Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri
Hegas. Myndir | Hari
4 LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2017 HEIMILIOGHÖNNUN