Fréttatíminn - 28.01.2017, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 28.01.2017, Blaðsíða 24
SENDUM FRÍTT ÚR VEFVERSLUNALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR ÚTSÖLULOK LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS 24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 28. janúar 2017 Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Þegar við kynntumst þá vorum við einhleypar blaðakonur með „happy hour“ á heilanum. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar,“ segir fjölmiðlakonan Þor- björg Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marinós, um vinskap sinn og Kristínar Ýrar Gunnars- dóttur, sérfræðings hjá Alþýðusam- bandinu. „Við erum reyndar ennþá með „happy hour“ á heilanum, það er bara erfiðara að finna tíma til að koma honum að. Okkur tekst það samt inn á milli,“ bætir Kristín við og hlær. En síðan þær kynntust fyrir tæpum sjö árum, þegar þær unnu saman hjá Birtíngi, Kristín sem blaðakona á Vikunni og Tobba á Séð og heyrt, hafa þær báðar eignast börn og unnusta og önn- ur þeirra gengið í gegnum skilnað. Kristín eignaðist sitt þriðja barn fyrir rúmum þremur árum og Tobba sitt fyrsta fyrir tveimur og hálfu. Þær hafa því verið nokkuð samtaka í þessum efnum frá því þær kynntust. Sambandið þróast mikið „Okkar samband hefur þróast mjög mikið. Það fór úr því að vera svo- lítið mikið tengt skemmtanalífi yfir í stuðning við hvor aðra með lítil börn, karlmenn og fjölskyldu. Svo erum við alltaf að reyna að kenna hvor annarri eitthvað. Krist- ín reynir að kenna mér að slaka á og benda mér á hvað skiptir máli. Hún er búin að vera í mikilli sjálfs- vinnu. Ég er hins vegar að reyna að kenna henni að versla, sem dregur aðeins úr sjálfsvinnunni sem hún er búin að vera í,“ segir Tobba og skell- ir upp úr. „Hún var semsagt pínd í fyrstu verslunarferðina fyrir jól,“ bætir hún við. Tobba segist stundum fá undar- legar spurningar frá Kristínu, sem hringir gjarnan þegar hana vantar sértækar upplýsingar. „Hún hringir til dæmis í mig þegar hana vantar uppskrift, því hún kann ekki að elda. Hún spyr mig oft um skrýtna hluti, eins og hvað sé í kartöflusalati.“ Kristín viðurkennir þetta hiklaust og skammast sín ekkert fyrir það. „Þá er ég að reyna að slá um mig og þykist ætla að mæta eitthvað með agalega fínt kartöflusalat. En Tobba stingur yfirleitt upp á því að við gerum þetta bara í eldhúsinu hjá henni, því hún treystir mér alls ekki fyrir því sem ég ætla að gera.“ 14 ára forskot í barnauppeldi Tobba segir Kristínu annars vera mjög þægilegan félagsskap og sein- þreytta til vandræða. „Hún seg- ir líka góðar sögur. Ég er búin að reyna að kenna henni að elda og versla en ég held að hún verið bara að fá að vera eins og hún er,“ seg- ir Tobba og Kristín samsinnir því. Hún hefur þó meiri þekkingu á öðr- um sviðum. „Ég hef fjórtán ára for- skot á Tobbu í barnauppeldi, þannig ég kem sterk inn þar. Ég segi henni yfirleitt bara að vera aðeins kæru- lausari,“ segir Kristín. „Það góða við hana er samt að hún er aldrei að reyna að þröngva neinu upp á mann þó að hún viti betur. Hún kann að bíða þangað til maður spyr hana ráða. Þetta er kannski eitthvað sem hún hef- ur lært af því að hún á ungling. En ein besta lexía sem hún hefur kennt mér er að nei þýðir nei. Ég á svo erfitt með að segja nei við barnið mitt. Hvað hana sjálfa varðar þá þýðir nei ekkert endilega nei. Þegar hún segir nei þá meinar hún yfir- leitt: hvert á ég að mæta og klukk- an hvað?“ Kvíðasjúklingur komst ekki í flug Vinskapur þeirra er margslunginn og snýst ekki bara um að skóla hvor aðra til. Þær hafa prófað ýmislegt saman og gengið í gegnum súrt og sætt. Jafnvel hjólað líka. „Við förum saman í hjólreiðaferðir og göngum Fimmvörðuháls. Við sveiflumst á milli þess að vilja vera sjúklega heil- brigðar og að fá okkur kokteila. Við reynum að sinna hvoru tveggja til að enda ekki í ræsinu,“ segir Tobba kímin. Þá eru þær duglegar að hvetja hvor aðra áfram og vera til staðar þegar eitthvað bjátar á. „Við höf- um oft rætt það að konur þurfi að vera aggressívari í að hvetja hver aðra áfram, hvað varðar laun og svona. Karlmenn gera það óhik- að. Þó að maður sé kannski ekki alltaf að gaspra um launin sín þá er ekkert sem stoppar mann að ræða þau að einhverju leyti sín á milli. Ef vinkona manns þarf á einhverju „pepptalki“ að halda, ef hún þarf að heyra einhverjar tölur til að hún sé ákveðnari í sínu, þá finnst mér það eðlilegt,“ segir Tobba „Við erum ótrúlega duglegar að drífa hvor aðra áfram. Það er alveg sama hversu bugaður maður er. Ef maður hittir vinkonurnar aðeins, eða heyrir í þeim, þá fær maður aukinn kraft,“ segir Kristín. „Við í vinahópnum komum líka allar úr mismunandi umhverfi og mætumst með okkar styrkleika. Mér finnst það hafa blandast vel saman,“ bæt- ir hún við. „Meðvirkni má aldrei taka yfir. Það er ekki hollt fyrir neinn. Tobba Marinós og Kristín Ýr kynntust fyrir sjö árum þegar þær voru báðar einhleypar blaðakonur. Í fyrstu var vináttan mjög tengd skemmtanalífinu en hún hefur þróast yfir í stuðning við hvor aðra með lítil börn. Síðustu misseri hafa þær báðar átt mjög erfitt tilfinningalega vegna áfalla sem hafa dunið yfir. Þær segja vináttuna aldrei dýrmætari en þegar erfiðleikar steðja að. Vinskapur Tobbu og Kristínar hef- ur þróast mikið síðustu ár, enda hafa þær gengið saman í gegnum súrt og sætt. Myndir | Hari Ástvinamissir og erfið sjúkdómsgreining hafa þroskað vinskapinn

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.