Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.02.2018, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 01.02.2018, Qupperneq 4
SÆLKERAMATUR Súrkál fyrir sælkera eftir Dagnýju Hermannsdóttur hefur að geyma fróðleik um hvernig gerja á grænmeti ásamt fjölda gómsætra uppskrifta. Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–19 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Veitumál Halldór Halldórsson og Marta Guðjónsdóttir, varamenn Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orku- veitu Reykjavíkur, segja margt hafa farið úrskeiðis við að koma upp- færðum upplýsingum til almenn- ings varðandi gerlamengun í neyslu- vatni er upp kom grunur um slíkt fyrr í þessum mánuði. „Ljóst er að skerpa þarf á verk- ferlum um tilkynningaskyldu til almennings þegar um umhverfis- og eða mengunarslys er að ræða,“ segir í bókun Halldórs og Mörtu í fundar- gerð stjórnar OR. Fréttatilkynningar hafi ýmist komið of seint eða voru með röngum upplýsingum. „Þegar mengun af þessu tagi kemur upp sem snertir meira og minna alla borgarbúa væri réttast að boða til blaðamannafundar og upplýsa um málið.“ – gar Ræða átti gerla á fjölmiðlafundi Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi. Fréttablaðið/anton brink Viðskipti Árið 2015 bjuggu 57 pró- sent einstaklinga á aldrinum 20-24 ára í foreldrahúsum. Hlutfallið hefur hækkað umtalsvert síðustu ár en árið 2004 bjuggu rétt um 50 prósent einstaklinga á þessum aldri hjá for- eldrum sínum. Greiningardeild Arion banka segir í nýrri skýrslu um húsnæðis- markaðinn, sem kynnt var í gær, að tölurnar frá 2015 séu nýjustu tiltæku upplýsingarnar en færa megi rök fyrir því að fjölgað hafi í þessum hóp síðustu tvö ár þar sem húsnæðisverð hefur hækkað skarpt. Á móti kemur að hlutfall fyrstu kaupa hefur farið hækkandi. „Við teljum líklegt að aldur fyrstu kaupenda hafi hækkað og því hafi fjölgun fyrstu kaupa frekar áhrif á eldra aldursbilið, það er að segja 25-29 ára. Eftirspurn á húsnæðis- markaði frá einstaklingum undir 22 ára er því að einhverju leyti tempruð,“ segir í skýrslunni. Greiningardeildin segir að hús- næðisverð hafi hækkað verulega umfram undirliggjandi þætti í öllum hverfum Reykjavíkur á síðasta ári. Gert er ráð fyrir að húsnæðisverð hækki enn. Hækkunin verði um 6,6 prósent í ár, svo verði hún 4,1 prósent á næsta ári og 2,3 prósent árið 2020. Greiningardeildin bendir á að útlit sé fyrir að undir lok spátímans muni raunverð húsnæðis lækka á milli ára. Það yrði í fyrsta sinn frá árinu 2010 sem raunverð húsnæðis lækkar. Greiningardeildin segir að íbúðum á landinu öllu hafi fjölgað um 1.700 á síðasta ári. Byggja þurfi hátt í níu þúsund íbúðir á landinu fram til árs- loka 2020 til að framboð haldi í við fólksfjölgun. Í nýrri greiningu Íbúða- lánasjóðs segir reyndar að íbúðum þurfi að fjölga um 17.000 til ársins 2020. Erna Björg Sverrisdóttir, sér- fræðingur hjá Greiningardeildinni, segir að útskýra megi muninn með því að í tölum þeirra sé ekki tekið tillit til þarfarinnar sem þegar hefur safnast upp. Í skýrslunni segir að einstaklingum 22 ára og eldri hafi fjölgað um rúm- lega 8.000 árið 2017. Útlit sé fyrir að fólksfjölgun verði nokkuð hröð á næstu árum. Hversu hröð hún verði muni ráðast að miklu leyti af inn- flutningi vinnuafls, sem aftur ræðst af efnahagsástandinu. Hröð fólks- fjölgun kunni að leiða til tímabund- innar umframeftirspurnar á hús- næðismarkaði sem aftur muni þrýsta verðinu upp. jonhakon@frettabladid.is Vísbendingar um að unga fólkið búi lengur hjá mömmu og pabba Hlutfall ungs fólks sem býr enn í foreldrahúsum hefur hækkað undanfarin ár. Húsnæðisverð hækkaði í öllum hverfum á síðasta ári. Dregur úr verðhækkunum næstu ár og árið 2020 gæti orðið raunlækkun. Greiningardeild arion banka segir að íbúðum hafi fjölgað um 1.700 á síðasta ári. að mati deildarinnar vantar 9.000 íbúðir til ársins 2020 til að framboð haldi í við fólksfjölgun. Ólíklegt sé að markmiðið náist. Fréttablaðið/GVa Erna björg Sverrisdóttir lÖGReGlumál Lögreglu var gert við- vart um meint kynferðisbrot starfs- manns ungmennaheimilis í Reykja- vík árið 2015. Þetta var haft eftir móður brotaþola í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Rannsókn á máli mannsins hófst í janúar þrátt fyrir að kæra á hendur honum hafi borist í ágúst á síðasta ári. Hann hefur setið í gæsluvarð- haldi frá 19. janúar grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn barni um árabil. Frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa þau svör fengist að rannsókn hafi ekki hafist fyrr vegna manneklu og annríkis. Brot þau sem maðurinn er kærð- ur fyrir eiga að hafa átt sér stað á árunum 2004 til 2010. Var það annar þáttur í drætti lögreglunnar en lögreglan mat það svo að önnur mál væru meira aðkallandi. Móðir kæranda segir að hún hafi gert lögreglu viðvart um málið árið 2015 og að þá hafi hún einn- ig getið starfsvettvangs mannsins. Hún hafi ekki getað kært málið þar sem sonur hennar var þá orðinn sjálfráða. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 var barnaverndar- yfirvöldum einnig gert viðvart um meint brot mannsins. Það var árin 2002 og 2008. Í Fréttablaðinu í gær var sagt frá því að öll mál kynferðisbrotadeild- ar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu, sem eru til rannsóknar, verði yfirfarin á nýjan leik vegna málsins. – jóe Móðir lét lögreglu vita af meintum brotum árið 2015 Mörgum þykir rannsókn hafa farið seint af stað. Fréttablaðið/EYÞÓr utanRíkismál Árni Páll Árnason, fyrrverandi ráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hefur verið ráðinn varaframkvæmdastjóri skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES í Brussel, að tilnefningu íslenskra stjórnvalda. Hann mun fara með samskipti við EES/EFTA-ríkin, Noreg, Ísland og Liechtenstein, og viðtökuríkin fimmtán. EFTA- ríkin fjármagna í gegnum sjóðinn ýmsar umbætur og uppbyggingu í þeim aðildarríkjum ESB sem lakar standa í efnahagslegu tilliti og eru styrkþegaríki sjóðsins öll í Suður- og Austur-Evrópu. Árni Páll er lögmað- ur með sérhæfingu í Evrópurétti og hefur starfað að Evrópu-, viðskipta og varnar- málum hjá utanríkis- ráðuneytinu. Hann tekur við stöðu v a r a f r a m - kvæmdastjóra í Brussel í dag. – sks Árni Páll til EES Árni Páll Árnason 1 . f e b R ú a R 2 0 1 8 f i m m t u D a G u R4 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð 0 1 -0 2 -2 0 1 8 0 5 :0 0 F B 0 8 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 0 -7 8 4 4 1 E E 0 -7 7 0 8 1 E E 0 -7 5 C C 1 E E 0 -7 4 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 3 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.