Fréttablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 54
Þrátt fyrir að vera
komnar langt eru
konur enn ekki að kom-
ast í efstu stöður innan
vísindageirans svo bar-
áttan heldur áfram.
Lilja Kjalarsdóttir er nýráðin rannsókna- og þróunarstjóri hjá KeyNatura og
SagaMedica. MYND/EYþór
Lilja Kjalarsdóttir er nýráðin rannsókna- og þróunarstjóri hjá KeyNatura og SagaMe-
dica en hún er með doktorspróf í
sameindalíffræði og er með mikla
reynslu úr líftæknirannsóknum.
„Ég var mikið í íþróttum hér
áður fyrr og spilaði meðal annars
fótbolta með meistaraflokki
kvenna í Stjörnunni,“ segir Lilja
og bætir við: „Ég hafði alltaf miklu
meiri áhuga á fæðubótarefnum
heldur en liðsfélagarnir mínir
og stúderaði mikið hvað ég ætti
að borða til að ná sem mestu út
úr líkamanum í kringum leiki.
Hugsandi til baka þá var ég
kannski aðeins á undan minni
samtíð, en þetta er eðlilegur hluti
af því að vera íþróttamaður í dag.
Ég hætti svo í boltanum þegar
ég fór í doktorsnám við UTSW í
Dallas til að rannsaka sykursýki
týpu 2. Eftir námið hélt ég rann-
sóknum á sykursýki áfram en færði
mig til Duke University í Norður-
Karólínu og ætlaði að vera áfram
í Bandaríkjunum.“ Þær áætlanir
breyttust þegar Lilju var boðin
staða rannsóknar og þróunarstjóra
hjá líftæknifyrirtækinu Genís.
„Ég vann þar í gegnum þróunar-
ferli, uppskölun og loks markaðs-
setningu á fyrstu vörunni svo þessi
tími hjá Genís var mikill skóli fyrir
mig.“
Um áramótin tók svo nýtt ævin-
týri við hjá Lilju þegar að hún tók
við stöðu rannsóknar- og þróunar-
stjóra stöðu hjá KeyNatura og
SagaMedica.
„Ég mun vera með puttana í
mörgu hjá báðum fyrirtækjum allt
frá framleiðslu til vöruþróunar
og klínískra rannsókna. Bæði
fyrirtæki eru nú þegar komin með
öflugar vörur sem seljast vel, svo
sem AstaCardio og AstaLýsi frá
KeyNatura og SagaPro og Voxis frá
SagaMedica en við ætlum ekki að
hætta þar. Við erum á fullu í rann-
sóknum og vöruþróunum og erum
m.a. að vinna að spennandi blóð-
fitulækkandi fæðubótarefni frá
KeyNatura sem mun bráðlega fara
í klínískar prófanir. Síðan erum við
líka að þróa efni til inntöku fyrir
húð sem mun fara inn á hinn ört
stækkandi næringarsnyrtivöru (e.
nutricosmecutical) markað. Þar
er Astaxanthin með stórt hlut-
verk því það verndar húðina gegn
UV geislum sólarinnar sem valda
ótímabærri öldrun húðar.“
Lilja segir gaman að koma inn
á vinnustað með svo öflugan hóp
kvenna. „Sjöfn er auðvitað ein
af þessum konum sem hafa rutt
veginn fyrir okkur hinar svo það
er sérstaklega ánægjulegt að fá að
læra aðeins af henni. Þrátt fyrir
að vera komnar langt eru konur
enn ekki að komast í efstu stöður
innan vísindageirans svo baráttan
heldur áfram. Ég er einmitt ein af
stofnmeðlimun Samtaka kvenna í
vísindum (SKVÍS) sem stendur m.a.
fyrir því að efla tæki og tól kvenna
til að komast í hærri stöður.“
Landsmenn hafa tekið vel á móti
vörum KeyNatura. „AstaCardio,
AstaEnergy og AstaLýsi hafa virki-
lega átt erindi við landsmenn en
AstaCardio er uppselt í bili. Lýsið
okkar inniheldur síldarlýsi frá sam-
starfsaðilum okkar í Margildi, en
síldarlýsið hefur unnið til bragð-
verðlauna á erlendri grundu. Þá
þekkja flestir til SagaPro vörunnar
og vinsælu hálsbrjóstsykranna
Voxis. Voxis línan er að þróast
og hafa nú glænýjar vörur bæst í
hópinn en það eru hálsmixtúrur
í tveimur bragðtegundum. Núna
erum við á fullu að vinna að vöru-
þróun sem passar fyrir erlenda
markaði og munum við kynna þær
vörur á næstu misserum.“
Mikilvægt að efla framgang
kvenna í vísindum
Lilja Kjalarsdóttir, doktor í sameindalíffræði, er rannsókna- og þróunarstjóri SagaMedica
og KeyNatura og einn stofnmeðlima Samtaka kvenna í vísindum, SKVÍS.
Sjöfn er framkvæmdastjóri Key-
Natura og SagaMedica.
Öflugur hópur
kvenna starfar
hjá SagaMedica
og KeyNatura.
Frá vinstri: Halla
Jónsdóttir, Sjöfn
Sigurgísladóttir,
Lilja Kjalars-
dóttir, Gunnur
Sveinsdóttir og
Jenný Björk þor-
steinsdóttir. Á
myndina vantar
Jónu Björk
Viðarsdóttur.
Sjöfn Sigurgísladóttir er framkvæmdastjóri KeyNatura og SagaMedica. Hún er með
doktorspróf í matvælafræði og lærði
í Kanada, Noregi og Íslandi. Sjöfn
býr að mikilli reynslu sem stjórn-
andi en hún hefur m.a. starfað sem
framkvæmdastjóri Ocean Ecopark
hjá Bluerise AG í Hollandi, for-
stjóri Matorku, forstjóri Matís og
forstöðumaður matvælasviðs Holl-
ustuverndar ríkisins. Hún er einnig
núverandi stjórnarformaður Matís.
Eftir að Sjöfn tók við sem
framkvæmdastjóri hafa fyrir-
tækin SagaMedica og KeyNatura
hafið formlegt samstarf sín á milli,
en fyrirtækin starfa bæði á sviði
framleiðslu og sölu náttúruvara
úr íslenskum hráefnum til heilsu-
bótar. Ávinningur samstarfsins
felst í samnýtingu á þverfaglegri
þekkingu starfsmannanna á sviði
rannsókna og framleiðslu. Jafnframt
er mikill ávinningur í samnýtingu á
sóknarfærum á erlendum markaði
en SagaMedica hefur á síðustu árum
stóraukið tengsl og sóknarmögu-
leika á erlendum mörkuðum og
selur nú þegar vörur sínar í Norður-
Ameríku, Kanada, Nýja-Sjálandi,
Finnlandi og Svíþjóð.
Hún segir viðskiptaþróun fyrir-
tækjanna byggja á að nýta heima-
markaðinn á Íslandi til að byggja
upp vörumerki og þróa nýjar vörur
sem seldar eru til stærri kaupenda
erlendis. „Meginmarkmiðið er að
selja vörurnar á erlenda markaði.“
„KeyNatura er líftæknifyrirtæki
sem hóf starfsemi sína árið 2014 og
sérhæfir sig í ræktun þörunga sem
framleiða náttúrulega andoxunar-
efnið Astaxanthin,“ segir Sjöfn.
„Astaxanthin er eitt af öflugustu
andoxunarefnum náttúrunnar og
mikill áhugi er á virkni efnisins en
það eru fleiri hundruð ritrýndra
greina sem fjalla um lífvirkni þess
og heilsubætandi áhrif.“
SagaMedica hefur frá stofnun
verið leiðandi fyrirtæki í íslenskum
náttúruvöruiðnaði en sérstaða
félagsins felst einkum í nýtingu
íslensku hvannarinnar í fæðubótar-
efni.
Hún segir fyrirtækin hafa öflugan
hóp starfsmanna sem hefur byggt
upp fyrirtækið á síðastliðnum árum,
þróað framleiðsluferlið sem verið er
að sækja um einkaleyfi á, rannsakað
lífvirkni, þróað öflugar vörur og eflt
söluna. „Það er gaman að segja frá
því að hlutfall milli karla og kvenna
í báðum fyrirtækjum er jafnt. Ég
tel það vera lykilatriði til þess að
viðhalda breidd og ekki skemmir
að mórallinn er líka betri í kjölfarið.
Við erum með alveg frábæran hóp
af kláru fólki með mjög fjölbreyttan
starfsbakgrunn og mismunandi
námsbakgrunn bæði úr bók og iðn-
námi. Það eru sérstök gleðitíðindi
að upplifa það hvað konur eru að
sækja sterkt inn á vísinda og fram-
leiðslusviðið og við erum með mjög
öflugan hóp kvenna hjá okkur. Lilja
Tækifærin felast í öflugum
hópi starfsmanna
Sjöfn Sigurgísladóttir er doktor í matvælafræði og framkvæmdastjóri KeyNatura og SagaMedica.
Hún segir fyrirtækin leggja áherslu á að ráða færar konur til starfa enda sé jafnt hlutfall karla og
kvenna í starfsmannahópnum og telur það lykilatriði í að viðhalda breidd og starfsánægju.
Kjalarsdóttir var að koma fersk inn,
Halla Jónsdóttir stýrir rannsóknar-
verkefnum KeyNatura, Gunnur
Sveinsdóttir er öflug í framleiðslunni
og gæðamálunum og síðan erum við
með Jennýju Björk Þorsteinsdóttur
sem er í framleiðslunni og sér um
rannsóknir tengdar framleiðslu-
þróun. Nýlega bættist Jóna Björk
Viðarsdóttir við markaðs- og sölu-
teymið en hún er með masterspróf í
næringarfræði.“
20 KYNNINGArBLAÐ 1 . F E B r úA r 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RKoNur í ATVINNuLíFINu
0
1
-0
2
-2
0
1
8
0
5
:0
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
0
-C
2
5
4
1
E
E
0
-C
1
1
8
1
E
E
0
-B
F
D
C
1
E
E
0
-B
E
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
8
s
_
3
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K