Fréttablaðið - 01.02.2018, Side 82
Kö l t- s ö n g l e i ku r i n n Rocky Horror verður frumsýndur í Borgar-l e i k h ú s i n u þ a n n 16. mars. Páll Óskar Hjálmtýsson fer með
aðalhutverkið, Frank N Furter, í sýn-
ingunni en það verður í annað sinn
sem hann bregður sér í hlutverkið.
Fyrsti gerði hann það í uppfærslu MH
á söngleiknum árið 1991.
Valdimar Guðmundsson ætlar
að tækla Eddie en Meatloaf fór með
sama hlutverk í kvikmyndinni.
Aðrir leikarar eru Arnar Dan
Kristjánsson sem Rocky, Björn
Stefánsson fer með hlutverk Riff
Raff, Brynhildur Guðjónsdóttir sem
Magenta, Haraldur Ari Stefánsson
sem Brad Majors, Katla Margrét
Þorgeirsdóttir leikur Dr. Scott, Vala
Kristín Eiríksdóttir verður Col-
umbia, Valur Freyr Einarsson sögu-
maðurinn og Þórunn Arna Krist-
jánsdóttir leikur Janet Weiss.
Með leikstjórn fer Marta Nor-
dal, Jón Ólafsson er tónlistarstjóri,
Lee Proud er danshöfundur, Ilmur
Stefánsson sér um leikmynd, Fil-
ippía Elísdóttir ásamt Elínu Sig-
ríði Gísladóttur sér um búninga og
Björn Bergsteinn Guðmundsson um
lýsingu. Það er svo Bragi Valdimar
Skúlason sem þýðir verkið.
„Þetta gekk hægar en ég bjóst
við, mér fannst það svolítið merki-
legt,“ segir Bragi aðspurður hvernig
Frá uppsetningu MH á verkinu árið 1991. Páll Óskar fór þá einnig með hlutverk Frank N Furter.
Páll
Óskar
fer með
hlutverk
Frank N
Furter.
Hrá og
hressileg
Söngleikurinn Rocky
Horror verður frum-
sýndur í mars.
Ákveðið var að
ráðast í að þýða allt
heila klabbið upp
á nýtt og til þessa
verks var fenginn
Bragi Valdimar, sá
frómi textasnillingur,
en honum fannst
verkið erfitt en
skemmtilegt.
költsýning
Þetta er
náttúru-
lega Hrátt og
Hressilegt, Það
Þarf að Halda í
Við Það. sVo er
Hellingur af lögum
– Það Þurfti að
finna rímorð í Þetta
allt saman.
honum hafi gengið
að koma verkinu
yfir á íslensku.
„Þetta er svolítið
flókið, þetta verk er
náttúrulega að nálg-
ast fimmtugsaldurinn
og ýmislegt þarna sem
þarf að færa inn í nýja
tíma. Þetta er náttúrulega
hrátt og hressilegt, það
þarf að halda í við það. Svo
er hellingur af lögum – það þurfti
að finna rímorð í þetta allt saman.
Þetta var mjög gaman.“
Forsala á söngleikinn hefst í dag.
Fyrstu 500 miðunum sem keyptir
verða á staðnum í miðasölu Borg-
arleikhússins fylgir miði á opna
æfingu föstudaginn 23. febrúar og
tækifærið til að vera í hópi þeirra
fyrstu sem sjá brot úr sýningunni.
Þá verður miðinn einnig á sérstök-
um forsöluafslætti fyrsta daginn
hvort sem keypt er á borgarleikhus.
is eða í miðasölunni.
stefanthor@frettabladid.is
sweet transvestiteTextabrot úr laginu Sweet Transvestite sem Frank N Furter (Páll Óskar) flyturElskurnar mínar
svona sætar og fínar
sá þið hittuð staffið mitt.
Þau eru ekkert of hress
en það er bara vegna þess
þau vantar… stöffið sitt.
Fríkið ekki út
þó að ég svona kjút.
Umbúðirnar augun blekkja.
Ég held aftur af mér
þar til myrkva fer
en þá tekur líka rekkjan að trekkja!
Því ég er djörf og djúsí drusla
frá háhæluðu Transylvaníu — aha!
Bragi Valdimar þýddi verkið.
Valdimar fetar í fótspor
Meatloaf og leikur Eddie.
1 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f I M M T U D a G U r50 l í f I ð ∙ f r É T T a b l a ð I ð
0
1
-0
2
-2
0
1
8
0
5
:0
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
0
-9
A
D
4
1
E
E
0
-9
9
9
8
1
E
E
0
-9
8
5
C
1
E
E
0
-9
7
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
8
8
s
_
3
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K