Fréttablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 84
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann
atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Verður ekkert
hönnuður með því
að ákveða það bara“
Upp á síðkastið hafa vefverslanir verið að spretta upp þar sem kín-
verskur fjöldaframleiddur varningur er markaðssettur sem íslensk
hönnun og seldur á uppsprengdu verði. Halla Helgadóttir hjá Hönn-
unarmiðstöðinni segir fólk oft fara frjálslega með orðið „hönnun“.
Armbandsúr alveg eins og þetta sem sést hér að ofan er selt í nokkrum íslenskum vefverslunum. Úrin eru markaðssett
sem íslensk hönnun og yfirleitt seld á um 20.000 krónur. Það er óhætt að segja að um mikla álagningu sé að ræða.
Undanfarið hefur borið nokkuð á því að fólk sé að kaupa hræ ódýra hluti, svo sem armbandsúr og skartgripi, í miklu
magni frá Kína í gegnum vefverslan-
ir og selja á Íslandi á uppsprengdu
verði undir þeim formerkjum að um
íslenska hönnun sé að ræða.
Nýjasta dæmið eru armbandsúrin
frá Nora sem eru markaðssett sem
íslensk hönnun. Á Facebook-síðu
Nora segir meðal annars: „Öll hönn-
un og vöruþróun á sér stað á vinnu-
stofu á Íslandi.“ En netverjar hafa
undanfarið vakið athygli á að úrin
eru keypt í netverslun í Kína og að
ekki sé um íslenska hönnun að ræða.
Halla Helgadóttir, framkvæmda-
stjóri Hönnunarmiðstöðvar
Íslands, segir þessa þróun slæma
en huggar sig þó við að flestir séu
að verða æ meðvitaðri um mikil-
vægi hönnunar og áhugasamari
um vandaða hönnun.
„Þú verður ekkert hönnuður með
því að ákveða það bara sjálfur,“ segir
Halla. „Það liggur yfirleitt þriggja til
fjögurra ára nám að baki því að vera
hönnuður. Hönnun er starfsgrein og
það að vera hönnuður er ekki það
sama og að búa eitthvað til. Það er
mikill misskilningur,“ útskýrir Halla
sem finnst stundum eins og orðið
„hönnun“ sé notað ansi frjálslega.
Halla tekur dæmi: „Eins og sagan
sem ég heyrði um daginn af konu sem
kaupir ódýr teppi í IKEA og klippir
þau á ákveðinn hátt. Svo leggur hún
gríðarlega á þau og selur sem sína
hönnun.“
„Annars held ég að vitundar-
vakningin sé að aukast og á undan-
förnum árum hefur áhugi á hönn-
un og virðing fyrir menntun verið
að færast í vöxt.“
gudnyhronn@frettabladid.is
Það liggur yfir-
leitt Þriggja til
fjögurra ára nám að baki
ÞVí að Vera
Hönnuður.
Halla Helgadóttir,
framkvæmdastjóri
Hönnunarmiðstövar
HlutVerk Hönnunar-
miðstöðVar íslands:
Hönnunarmiðstöð Íslands er
kynningar- og upplýsingamið-
stöð fyrir íslenska hönnun á Ís-
landi og erlendis. Meginhlutverk
Hönnunarmiðstöðvar er að efla
skilning þjóðarinnar á mikilvægi
hönnunar fyrir samfélagið og
íslenskt efnahagslíf og benda á
þá miklu verðmætasköpun sem
getur falist í íslenskri hönnun
fyrir þjóðfélagið allt.
Netverjar hafa undanfarið verið duglegir við að vekja athygli á því að úrin frá
Nora Watches virðast fást á vefsíðum á borð við Aliexpress.
1 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f I M M T U D a G U r52 l í f I ð ∙ f r É T T a b l a ð I ð
.is
Allt það
helsta úr heimi
TÍSKUNNAR
á einum stað
0
1
-0
2
-2
0
1
8
0
5
:0
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
0
-8
7
1
4
1
E
E
0
-8
5
D
8
1
E
E
0
-8
4
9
C
1
E
E
0
-8
3
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
3
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K