Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.05.2017, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 18.05.2017, Blaðsíða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M • fimmtudagur 18. maí 2017 • 20. tölublað • 38. árgangur Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbær S: 420 4000 Guðlaugur H. Guðlaugsson lögg. fasteignasali Halldór Magnússon lögg. fasteignasali Brynjar Guðlaugsson aðstm. fasteignasala Haraldur Freyr Guðmundsson aðstm. fasteignasala studlaberg@studlaberg.is studlaberg.is Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur stöðvað framkvæmdir við gatnagerð ofan Iðavalla í Keflavík, á svokölluðum Flugvöllum. Þar hafa gamlir rusla- haugar frá bandaríska hernum verið grafnir upp á stóru svæði. Tjara vellur úr jarðveginum og mikið af járnarusli hefur komið upp úr jörðinni. Heil- brigðiseftirlitið óttast að þrávirk efni eins og PCB kunni að vera þarna í jörð. Vísindamenn taka nú jarðvegssýni til að sjá hvaða efni eru þarna í jörð. Þarna gæti risavaxið mengunarslys verið að koma í ljós. Magnús H. Guðjónsson hjá Heil- brigðiseftirliti Suðurnesja staðfesti í samtali við Víkurfréttir að fram- kvæmdir hafi verið stöðvaðar. Þegar verkið var stöðvað hafði umtalsverðu magni af jarðvegi sem innihélt ýmis konar járnarusl verið ekið brott af svæðinu og losað á svæði á Ásbrú. Verktakafyrirtækið ÍAV annast fram- kvæmdir á svæðinu fyrir Reykja- nesbæ. Við Flugvelli hefur flestum lóðum verið úthlutað en bygginga- framkvæmdir áttu að hefjast í sumar. Það er nú í uppnámi. Tjara lekur úr jarðvegi á svæðinu og sagðist Magnús óttast að þarna hafi verið urðuð tjara sem bandaríski her- inn notaði m.a. við malbikun flug- brauta á Keflavíkurflugvelli á sínum tíma. Magnús segir að þetta séu stórir haugar sem hafi verið opnaðir. Miðað við það sem komið hefur upp af rusli úr haugunum þá óttist hann að þarna hafi m.a. verið urðaðir rafgeymar. Þá þurfi að hafa varann á með það að þarna sé að finna úrgangsolíu og þrá- virk efni eins og PCB. Úttekt er hafin á svæðinu þar sem m.a. eru skoðaðar loftmyndir frá fyrri tímum til að átta sig á umfangi haug- anna. Þá er sýnataka úr jarðvegi einnig hafin en VERKÍS leiðir rannsóknina. Allar framkvæmdir á svæðinu hafa verið stöðvaðar fyrir utan einn veg á svæðinu. Það voru starfsmenn Heilbrigðiseftir- lits Suðurnesja sem komust sjálfir á snoðir um að ekki væri allt með felldu við gatnagerðina þegar þeir mættu vörubíl sem var að flytja jarðveg þar sem járnarusl stóð út úr farminum. Verið var að flytja jarðveginn á los- unarsvæði sem ÍAV er með á Ásbrú. Magnús sagðist í samtali við Víkur- fréttir ekki hafa haft hugmynd um að þarna væru ruslahaugar frá banda- ríska hernum. Þetta svæði hafi verið innan girðingar í áratugi. Hann segir að almenna reglan sé að láta gamla urðunarstaði vera. Erfitt sé að segja til um framhaldið á þessu svæði. Nú þurfi að ljúka rannsóknum áður en ákvörðun sé tekin um framhaldið. ●● Stórir●ruslahaugar●Varnarliðsins●grafnir●upp●við●Flugvelli „Gerðum ráð fyrir 100 tonnum af járni“ TJARA FLÆÐIR ÚR JARÐVEGI OG FRAMKVÆMDIR STÖÐVAÐAR Óttast úrgangsolíu og þrávirk efni í jarðvegi Tjara vellur úr jarðvegi á svæðinu þar sem grafið er á Flugvöllum. Heilbrigðiseftirlit óttast að úrgangsolía hafi verið urðuð á svæðinu og þar séu þrávirk efni eins og PCB. VF-mynd: Hilmar Bragi Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanes- bæjar, segir að gert hafi verið ráð fyrir allt að 100 tonnum af járni á svæðinu þegar ráðist var í gatnagerðina. Önnur mengun á svæðinu hafi komið mönnum á óvart. Vitað var að braggar og bílflök hafi verið urðuð á svæðinu en svæðið hafi ekki verið viðurkennt urðunar- svæði hjá Varnarliðinu á sínum tíma. Guðlaugur segir ljóst að sú mengun sem komið hafi í ljós komi til með að seinka framkvæmdum og gera þær kostnaðarsamari. Hann segir ljóst að svæðið verði allt hreinsað og úrgangurinn verði urðaður á viðurkenndum urðunarstað. Málið verði unnið í góðri samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og VERKÍS, sem sjái um rannsóknir á svæðinu. Mikið af járnarusli hefur komið upp á svæðinu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.