Víkurfréttir - 18.05.2017, Page 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagur 18. maí 2017 • 20. tölublað • 38. árgangur
Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbær S: 420 4000
Guðlaugur H. Guðlaugsson lögg. fasteignasali
Halldór Magnússon lögg. fasteignasali
Brynjar Guðlaugsson aðstm. fasteignasala
Haraldur Freyr Guðmundsson aðstm. fasteignasala
studlaberg@studlaberg.is studlaberg.is Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur stöðvað framkvæmdir við gatnagerð
ofan Iðavalla í Keflavík, á svokölluðum Flugvöllum. Þar hafa gamlir rusla-
haugar frá bandaríska hernum verið grafnir upp á stóru svæði. Tjara vellur
úr jarðveginum og mikið af járnarusli hefur komið upp úr jörðinni. Heil-
brigðiseftirlitið óttast að þrávirk efni eins og PCB kunni að vera þarna í jörð.
Vísindamenn taka nú jarðvegssýni til að sjá hvaða efni eru þarna í jörð. Þarna
gæti risavaxið mengunarslys verið að koma í ljós.
Magnús H. Guðjónsson hjá Heil-
brigðiseftirliti Suðurnesja staðfesti
í samtali við Víkurfréttir að fram-
kvæmdir hafi verið stöðvaðar. Þegar
verkið var stöðvað hafði umtalsverðu
magni af jarðvegi sem innihélt ýmis
konar járnarusl verið ekið brott af
svæðinu og losað á svæði á Ásbrú.
Verktakafyrirtækið ÍAV annast fram-
kvæmdir á svæðinu fyrir Reykja-
nesbæ. Við Flugvelli hefur flestum
lóðum verið úthlutað en bygginga-
framkvæmdir áttu að hefjast í sumar.
Það er nú í uppnámi.
Tjara lekur úr jarðvegi á svæðinu og
sagðist Magnús óttast að þarna hafi
verið urðuð tjara sem bandaríski her-
inn notaði m.a. við malbikun flug-
brauta á Keflavíkurflugvelli á sínum
tíma. Magnús segir að þetta séu stórir
haugar sem hafi verið opnaðir. Miðað
við það sem komið hefur upp af rusli
úr haugunum þá óttist hann að þarna
hafi m.a. verið urðaðir rafgeymar. Þá
þurfi að hafa varann á með það að
þarna sé að finna úrgangsolíu og þrá-
virk efni eins og PCB.
Úttekt er hafin á svæðinu þar sem
m.a. eru skoðaðar loftmyndir frá fyrri
tímum til að átta sig á umfangi haug-
anna. Þá er sýnataka úr jarðvegi einnig
hafin en VERKÍS leiðir rannsóknina.
Allar framkvæmdir á svæðinu hafa
verið stöðvaðar fyrir utan einn veg á
svæðinu.
Það voru starfsmenn Heilbrigðiseftir-
lits Suðurnesja sem komust sjálfir á
snoðir um að ekki væri allt með felldu
við gatnagerðina þegar þeir mættu
vörubíl sem var að flytja jarðveg þar
sem járnarusl stóð út úr farminum.
Verið var að flytja jarðveginn á los-
unarsvæði sem ÍAV er með á Ásbrú.
Magnús sagðist í samtali við Víkur-
fréttir ekki hafa haft hugmynd um að
þarna væru ruslahaugar frá banda-
ríska hernum. Þetta svæði hafi verið
innan girðingar í áratugi. Hann segir
að almenna reglan sé að láta gamla
urðunarstaði vera. Erfitt sé að segja
til um framhaldið á þessu svæði. Nú
þurfi að ljúka rannsóknum áður en
ákvörðun sé tekin um framhaldið.
●● Stórir●ruslahaugar●Varnarliðsins●grafnir●upp●við●Flugvelli
„Gerðum ráð fyrir
100 tonnum af járni“
TJARA FLÆÐIR ÚR JARÐVEGI OG FRAMKVÆMDIR STÖÐVAÐAR
Óttast úrgangsolíu
og þrávirk efni í jarðvegi
Tjara vellur úr jarðvegi á svæðinu þar sem grafið er á Flugvöllum.
Heilbrigðiseftirlit óttast að úrgangsolía hafi verið urðuð á svæðinu
og þar séu þrávirk efni eins og PCB. VF-mynd: Hilmar Bragi
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjanes-
bæjar, segir að gert hafi verið ráð fyrir allt að 100 tonnum af járni á
svæðinu þegar ráðist var í gatnagerðina. Önnur mengun á svæðinu hafi
komið mönnum á óvart.
Vitað var að braggar og bílflök hafi
verið urðuð á svæðinu en svæðið
hafi ekki verið viðurkennt urðunar-
svæði hjá Varnarliðinu á sínum
tíma.
Guðlaugur segir ljóst að sú mengun
sem komið hafi í ljós komi til með
að seinka framkvæmdum og gera
þær kostnaðarsamari. Hann segir
ljóst að svæðið verði allt hreinsað
og úrgangurinn verði urðaður á
viðurkenndum urðunarstað. Málið
verði unnið í góðri samvinnu við
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og
VERKÍS, sem sjái um rannsóknir á
svæðinu.
Mikið af járnarusli hefur
komið upp á svæðinu.